Fréttablaðið - 11.08.2018, Side 85
VEISLA
SKÓLA
Reykjavík Hallarmúla 2 563 6900 | Akureyri Undirhlíð 2 430 6900
NÝ
2018 HAU
ST LÍNAN
FRÁ ACE
R
Laugardagur
10:00 - 18:00
Sunnudagur
13:00 - 18:00
OPIÐ ALLA HELGINA
ÞÉR ÍS
Ljúffengur
Emmess Tívolí
lurkur
Hera Hilmarsdóttir leikur Hester Shaw í Mortal Engines. Reeve hreifst mjög af
einbeitingu hennar og efast ekki um að hún verði frábær í myndinni.
ÉG HELD AÐ HERA VERÐI
FRÁBÆR. HÚN ER MJÖG
ÖFLUG LEIKKONA OG VAR
OFBOÐSLEGA EINBEITT
VIÐ TÖKURNAR SEM VORU
MARGAR HVERJAR ERF-
IÐAR OG TÓKU Á.
í íslenskri náttúru. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
hverju leyti. Ég held að það sé málið
en get auðvitað ekki talað fyrir Peter
Jackson.“
Hera er frábær
Hera Hilmarsdóttir leikur eitt aðal-
hlutverkanna, uppreisnarsegginn
og flóttakonuna Hester Shaw. Reeve
hreifst mjög af því sem hann sá til
Heru við tökur á myndinni.
„Hún er frábær,“ segir Reeve og
telur fullkomlega eðlilegt að Íslend-
ingar fylgist spenntir með hvernig
henni og myndinni reiðir af. „Hún er
náttúrlega ekki mín Hester, heldur
Hester Peters Jackson og Christians
Rivers. En það sem ég sá til hennar
að störfum var frábært. Hún er mjög
öflug leikkona og var ofboðslega ein-
beitt við tökurnar sem voru margar
hverjar erfiðar og tóku á.“
Ísland virkjaði ímyndunaraflið
Fjórða og síðasta Mortal Engines-
bókin, A Darkling Plain, kom út
2006 og Reeve segir að fyrir honum sé
sögunni lokið þegar hann er spurður
hvort hann muni jafnvel taka upp
þráðinn og spinna söguna áfram ef
vinsældir Mortal Engines verða jafn
miklar og útlit er fyrir.
„Ég er nú ekki mikið fyrir að fara til
baka en ferðalagið um Ísland og þetta
stóra og mikilfenglega landslag fékk
mig til þess að leiða hugann að þessu.
Fyrir mér hverfist sagan ekki síst um
stórbrotið landslag.
Ég held að í grunninn sé ég gramur
landslagsmálari og ef ég væri nógu
góður þá væri ég að mála fjöll og
firnindi. En í staðinn skrifa ég bara
um þetta og neyðist til að spinna
sögur í þessu landslagi svo fólk vilji
lesa bækurnar.
Kannski verður eitthvað meira úr
þessu en í augnablikinu á ég síður
von á því.“
En Ísland hefur sem sagt örvað
ímyndunaraflið?
„Já, algjörlega. The Lord of the
Rings-bækurnar eru það fyrsta sem
heillaði mig gersamlega í æsku og
nú geri ég mér grein fyrir því að þær
bækur Tolkiens eru á vissan hátt
um Ísland,“ segir Reeve og veðrast
nokkuð upp. Á sinn yfirvegaða hátt.
„Ég held að skálduð sýn hans
á Ísland birtist í þessum bókum.
Landslagið hérna er einfaldlega
hinn fullkomni Miðgarður. Þetta er
ótrúlegt! Um daginn ókum við frá
austurströndinni í norður og þegar
við komum yfir eina hæðina blasti
Mordor bókstaflega við okkur.
Þetta var stórkostlegt og ég hugs-
aði bara með mér „ég þekki þetta
landslag“, þessa dökku, drungalegu
eyðimörk þar sem eldfjall gnæfir yfir
í fjarska.
Nokkrum dögum seinna komum
við í Skagafjörð og á sléttur Róhans.
Þetta er búið að vera stórkostlegt. Að
ganga stöðugt inn í landslag sem ég
þekki úr bóklestri æsku minnar. Ég
held að þetta hafi ekki getað annað en
kveikt hjá mér hugmyndir að sögum.“
H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 35L A U G A R D A G U R 1 1 . Á G Ú S T 2 0 1 8