Fréttablaðið - 12.01.2013, Blaðsíða 10
12. janúar 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 10
Styrkir
til náms í hafrétti
Hafréttarstofnun Íslands er rannsókna- og fræðslustofnun á sviði
hafréttar við Háskóla Íslands og er meginmarkmið stofnunarinnar að
treysta þekkingu á réttarreglum á sviði hafréttar. Að stofnuninni standa
Háskóli Íslands, utanríkisráðuneytið og atvinnu- og nýsköpunar-
ráðuneytið.
Hafréttarstofnun auglýsir hér með eftirfarandi styrki til náms í hafrétti til
umsóknar:
1. Styrk til framhaldsnáms í hafrétti á háskólaárinu 2013 - 2014.
2. Styrki til þátttöku í sumarnámskeiði Ródos-akademíunnar í hafrétti
30. júní - 19. júlí 2013.
Umsóknir berist Hafréttarstofnun Íslands, utanríkisráðuneytinu,
Rauðarárstíg 25, 150 Reykjavík fyrir 1. febrúar nk.
Nánari upplýsingar veitir Tómas H. Heiðar, forstöðumaður
stofnunarinnar, í síma 545 9900.
Boltinn á Xinu 977
– alla virka daga kl. 11 - 12
BRETLAND Breski skemmtikrafturinn
Jimmy Savile er talinn hafa misnotað
að minnsta kosti 214 manns á árunum
1995 til 2009. Breska lögreglan telur
fullvíst að fjöldi þolenda hans sé mun
meiri, því brotaferill hans stóð yfir í
meira en hálfa öld.
Savile lést árið 2011, þá 84 ára gam-
all, og fór útför hans fram með við-
höfn enda var hann þekktur í bresku
samfélagi, bæði sem skemmtikraftur í
útvarpi og sjónvarpi og sem ötull bar-
áttumaður góðgerðarsamtaka.
Í skýrslu, sem birt var í gær og var
unnin í sameiningu af bresku lög-
reglunni og breskum barnaverndar-
samtökum, kemur fram að nærri 500
manns hafi haft samband við lögreglu
með upplýsingar um kynferðisbrot
Saviles.
Meðal kynferðisbrota hans eru 34
nauðganir, en fórnarlömb hans voru
á aldrinum átta til 47 ára. 73 prósent
þolenda brotanna voru yngri en 18
ára, en 82 prósent voru kvenkyns.
Mörg brotanna voru framin á vinnu-
stað hans hjá breska útvarpinu BBC
en fimmtíu kynferðisbrot framdi hann
á sjúkrahúsum og fjórtán í skólum.
„Nú er ljóst að Savile var í felum
fyrir allra augum og notaði frægðar-
stöðu sína og fjáröflunarstörf til þess
að fá óheftan aðgang að varnarlausum
einstaklingum yfir sex áratuga tíma-
bil,“ segir í skýrslunni.
„Hann valdi aðeins þá sem varnar-
lausastir voru,“ segir David Gray frá
bresku lögreglunni, annar höfunda
skýrslunnar: „Hann var nógu klár til
að sjá hverjir væru ólíklegastir til að
segja eitthvað gegn honum.“
„Allt þetta subbulega mál hefur leitt
í ljós hve hryggilegar afleiðingar það
hefur þegar varnarleysi mætir vald-
mennsku,“ segir Peter Spindler, yfir-
maður sérfræðideildar lögreglunnar.
Ríkissaksóknari Bretlands sendi í
gær frá sér yfirlýsingu þar sem beð-
ist er afsökunar á því að kynferðis-
brot Saviles hafi ekki verið rannsökuð
nægilega vel fyrr en nú, þótt embætt-
inu hafi borist ábendingar og ásakanir
á árunum 2007 og 2008.
gudsteinn@frettabladid.is
Misnotaði hundruð
manna á hálfri öld
Breska lögreglan segir að sjónvarpsmaðurinn Jimmy Savile hafi brotið gegn meira
en 200 manns á árunum 1995 til 2009. Meirihlutinn var á barns- eða unglingsaldri.
Ríkissaksóknari biðst afsökunar á að hafa ekki rannsakað málið fyrr.
ÍTARLEG SKÝRSLA Í nýrri skýrslu frá bresku
lögreglunni er dregin upp nokkuð nákvæm
mynd af því sem nú er vitað um kynferðis-
brot Jimmys Savile. NORDICPHOTOS/AFP
KYNFERÐISBROT
JIMMYS SAVILE
Fjöldi þolenda sem
vitað er um:
174
Yngri en 10 ára 18
10 til 13 ára 23
13 til 16 ára 63
16 til 18 ára 17
Eldri en 18 ára 52
Aldur óþekktur 1
Samtals
KVENKYNS
EINSTAKLINGAR
40 SamtalsKARLKYNS
EINSTAKLINGAR
Yngri en 10 ára 10
10 til 13 ára 15
13 til 16 ára 10
Eldri en 18 ára 5