Fréttablaðið - 12.01.2013, Blaðsíða 84
12. janúar 2013 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 52TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
„Þetta byrjaði þannig að ég var í
Námaskarði heilan dag og fékk þá
flugu í höfuðið að festa fínleg form
og litbrigði svæðisins á mynd með
þeim formerkjum að nýta náttúruna á
Íslandi án þess að skemma hana,“ segir
Einar Ólason ljósmyndari, sem opnar
sýningu í Tjarnarsal Ráð hússins í dag.
Hún ber heitið Eldur-Ís og er fyrsta
einkasýning Einars, en hann hefur
tekið þátt í fjölmörgum samsýningum
blaðaljósmyndara á Íslandi enda til-
heyrði hann þeirri stétt í þrjátíu ár.
Þegar litið er á myndir Einars
mætti í fljótu bragði ætla að sumar
væru teknar úr talsverðri fjarlægð
af klettum og klungri, vatnsflaumi og
eldgosum, jafnvel úr lofti þar sem við
blasa fjallgarðar, jöklar og lón. Þetta
eru sjónhverfingar því myndirnar
eru allar af fínlegum formum í jarð-
skorpunni á háhitasvæðum landsins.
„Ég er alveg ofan í jörðinni með
myndavélina og mynda það sem fer
fram hjá mörgum,“ segir Einar bros-
andi og kveðst hafa heillast af hinu
smágerða í náttúrunni alla tíð. „En
það eru fjögur ár frá því ég byrjaði
að vinna markvisst í þessu efni. Á
endanum átti ég orðið yfir 1.000
myndir af jarðhitasvæðum víða um
land, byrjaði á að velja um 500 af þeim
sem ég vinsaði síðan 30-40 úr.“
Einar er frá Húsavík og kveðst hafa
haft áhuga á ljósmyndun frá því hann
var smástrákur. „Ég neitaði einu sinni
að fara í skólann í viku af því pabbi
vildi ekki kaupa handa mér mynda-
vél sem fékkst á 375 krónur í Bóka-
verslun Þórarins Stefánssonar. Pabbi
gaf ekki eftir og ég fór að safna mér
fyrir vélinni sjálfur,“ rifjar hann upp.
„En ég eignaðist mína fyrstu almenni-
legu vél árið 1977. Þá fór ég að vinna
fyrir Víkur blaðið og svo gerðist ég
frétta ritari Dagblaðsins fyrir norðan.
Árið 1980 var ég ráðinn á Dagblaðið og
myndaði síðan fyrir blöðin samfleytt í
þrjátíu ár, endaði á Birtingi 2007.“ Einar
rifjar upp að eitt sinn hafi hann verið
sendur að höfninni í Kópavogi fyrir
Fréttablaðið til að taka myndir á eina
síðu. „Það voru mest smáatriða myndir,“
segir hann. „Seinna prentaði ég þær
út á vatnsheldan segldúk í stærðinni
100x150 cm og sýndi þær á Hafnar-
dögum í Kópavogi þar sem ég lagði þær
á bryggjuna. Ég er enn með tvær uppi á
vegg og eina sem sturtuhengi.“
Einar er þegar byrjaður að undirbúa
aðra sýningu. Vinnuheitið á henni er
Fjörur og klettar landsins. „Ég er strax
kominn með á þriðja hundrað myndir,“
upplýsir hann. „Hún verður af smá-
atriðum líka þannig að ég held áfram
að skríða um landið!“ gun@frettabladid.is
Mynda það sem fer
fram hjá mörgum
Einar Ólason ljósmyndari hefur næmt auga fyrir því smáa og fagra í náttúrunni. Það krist-
allast á fyrstu einkasýningu hans, Eldur-Ís, sem hann opnar í dag í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Í TJARNARSAL RÁÐHÚSSINS „Ég vil nýta náttúruna á Íslandi án þess að skemma hana,“ segir Einar, sem var í óða önn að ganga frá
myndunum þegar ljósmyndarinn kom. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
HANNES HALLDÓRSSON
frá Másstöðum,
síðast til heimilis að Lindargötu 61,
Reykjavík,
lést sunnudaginn 23. desember á hjúkrunar-
heimilinu Skógarbæ. Útförin hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hins látna. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug. Bestu þakkir fær starfsfólk Skógarbæjar fyrir alúð
og umhyggju. Guð veri með ykkur.
Gylfi Sigurðsson Anna Rósa Traustadóttir
Þorbjörg Hannesdóttir Guðmundur Magnússon
Jóhanna Hannesdóttir Ólafur Haraldsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær systir okkar, mágkona og frænka,
EVA SVEINBJÖRG EINARSDÓTTIR
ljósmóðir,
Digranesheiði 19, Kópavogi,
lést 5. janúar. Útför hennar fer fram frá
Digraneskirkju mánudaginn 14. janúar
kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast
afþakkaðir en þeir sem vilja minnast hennar
láti Líknardeildina í Kópavogi eða Krabbameinsfélagið njóta þess.
Hermann Einarsson Lára Runólfsdóttir
Guðmunda Þ. Einarsdóttir Sigurbjörn Ólason
systkinabörn og fjölskyldur.
Föðursystir mín,
INA BILDSÖE-HANSEN
fædd Imsland,
lést 15. desember. Útför hennar hefur farið
fram í kyrrþey að hennar ósk. Starfsfólki á
Skjóli eru færðar sérstakar þakkir fyrir góða
umönnun síðastliðin ár.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Edda Rakel Imsland.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
SESSELJA SÓLEY
SIGURBJÖRNSDÓTTIR
frá Vestur-Stafnesi,
Suðurgötu 16, Sandgerði,
lést í faðmi fjölskyldunnar að kveldi
22. desember á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Útför hefur
farið fram í Hvalsneskirkju í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þökkum sýndan hlýhug.
Guðjón Óskarsson
Anna Lilja Guðjónsdóttir Hörður Már Karlsson
Klara Guðjónsdóttir
Sigrún Björg Guðjónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar
GUNNARS DÚA JÚLÍUSSONAR.
Starfsfólki á dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri
eru færðar þakkir fyrir góða umönnun.
Guðrún Gunnarsdóttir
Eyvör Gunnarsdóttir Björgvin R. Leifsson
Hreinn Gunnarsson
Benjamín Gunnarsson Dagbjört K. Þórhallsdóttir
Svanhildur D. Karlsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Sverrir
Einarsson
Kristín
Ingólfsdóttir
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Suðurhlíð 35, Reykjavík • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Alúð - virðing - traust
Áratuga reynsla
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUNNLAUG SIGURBJÖRG
SIGURÐARDÓTTIR
(BOGGA MUNDA VALDA GARÐS)
áður til heimilis að Bárustíg 3,
Sauðárkróki,
sem lést á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki 7. janúar,
verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju þriðjudaginn
15. janúar klukkan 14.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent
á Heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki.
Margrét N. Guðmundsdóttir Rafn Benediktsson
Guðlaug I. Guðmundsdóttir Steinn Elmar Árnason
barnabörn, makar og langömmustelpurnar.
Elskuleg móðir okkar, systir, amma og
langamma,
ÞÓRUNN BJÖRGÚLFSDÓTTIR
sem lést á þrettándanum 6. janúar, verður
jarðsungin frá Seltjarnarneskirkju
mánudaginn 14. janúar kl. 13.00.
Guðrún Hreggviðsdóttir James Stuart Crosbie
Þórunn Hreggviðsdóttir Finnbogi Rútur Arnarsson
Ása Hreggviðsdóttir Birgir E. Birgisson
Ólafur Björgúlfsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar,
HENNING KARL BACKMAN
Hörðalandi 10,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir fimmtudaginn
10. janúar. Útförin fer fram frá Guðríðarkirkju
fimmtudaginn 17. janúar kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Arna Jóna Backman
Guðjón Broddi Backman
Elsa Sigurbjörg Backman
Helgi Backman