Fréttablaðið - 12.01.2013, Blaðsíða 22
12. janúar 2013 LAUGARDAGUR
➜ „Björn Hlynur bætist við leikarahópinn. Hans persóna spilar stóran
þátt í lífi okkar Bjarna sem Kjartan Guðjónsson leikur.“
Tökur eru nýhafnar á nýrri þáttaröð sem nefnist Ástríður. Það er sería númer tvö með því nafni. Ilmur Kristjánsdóttir leikur titilhlutverkið eins
og í fyrri seríunni. Hún var tilnefnd
til Edduverðlauna 2010 sem leik-
kona ársins í aðalhlutverki fyrir
frammistöðu sína þá. Því er fyrsta
spurning sem leikkonan fær þessi:
Ilmur, er gaman að rifja upp
kynnin af Ástríði?
„Já, það er mikil gleði hér á
tökustað og allir spenntir.“
Þér hefur auðvitað fundist
Ástríður eiga framhaldslíf skilið.
„Algerlega. Við vorum fjögur
sem skrifuðum handritið saman,
Sigurjón Kjartansson, María Reyn-
dal, Hannes Pálsson og ég. Silja
Hauks leikstýrir núna eins og
síðast og Björn Hlynur bætist við
leikarahópinn. Hans persóna spil-
ar stóran þátt í lífi okkar Bjarna
sem Kjartan Guðjónsson leikur.
(Hvíslar: Á ég að þegja? Nei, ókei.)
Aðeins hærra: Ég er aðeins of
nálægt upptökuvélunum.“
Ástríður orðin yfirmaður
Gerist serían á sama stað og sú
fyrri?
„Nei, það hafa orðið breytingar.
Fyrri serían gerðist í banka. Óskil-
greindum banka. Hann er auðvitað
farinn á hausinn þannig að fólkið
sem þar vann er núna að vinna fyrir
skilanefnd. Ástríður er orðin yfir-
maður þannig að hún er orðin aðeins
fínni með sig en í fyrri seríunni.“
Hvað geturðu sagt mér um
einkalífið hjá Ástríði?
„Þar er fullt í gangi, að sjálf-
sögðu. Ég ætla ekki að segja þér
hvernig það endar en það byrjar að
minnsta kosti ekki vel.“
Verða þetta margir þættir?
„Þetta eru tíu þættir og sýningar
byrja með vorinu, jafnvel í mars.
En serían er búin að vera í þróun
lengi. Við tókum okkur góðan
tíma í að skrifa og raða handritinu
saman.“
Allt í bland
Ertu í fleiri leiklistarverkefnum
núna?
„Nei, ég tók mér frí í leikhús-
unum í vetur en var að leika í bíó-
mynd hjá Ágústi Guðmundssyni
fyrir jól, Ófeigur gengur aftur,
sem verður frumsýnd í bíóhúsum
um páskana. Það er draugagrín-
mynd, við Gísli Örn leikum þar par
og Laddi leikur pabba minn. Ég er
sem sagt bara að sinna sjónvarps-
og kvikmyndaleik núna. Svo er
framtíðin óskrifað blað og ég kann
því mjög vel.“
Hvort fellur þér betur að vinna á
sviði eða í kvikmyndum?
„Ég vil hafa þetta allt í bland.“
Ljósmyndarinn komst að því að
Ástríður er með eigin skrifstofu í
nýju seríunni. Spurð hvort henni
finnist það svo heillandi vinnu-
umhverfi að hún gæti lagt leiklist á
hilluna fyrir skrifstofustörf svarar
Ilmur:
„Nja, ég er bara þakklát fyrir að
vera leikkona, fá að vera viss týpa
í stutta stund og geta síðan svissað
yfir í eitthvað annað. Þannig fæ ég
smjörþefinn af mörgu. Ég er svo
mikill sveimhugi að mér hentar
mjög vel að vera í þessu starfi.“
HELGIN
12. janúar 2013 LAUGARDAGUR
Suðurland
Höfuðborgarsvæðið
Vesturland
-3,5% Austurland
+5,4%
+0,9%
Norðurland
-4,1%
+0,8%
Þakklát
fyrir að vera
leikkona
Ilmur Kristjánsdóttir hljómar ánægð en óvenju
lágróma í símanum. Það er fyrsti tökudagur á
sjónvarpsseríu númer tvö um Ástríði, skrifstofukonu
sem hún túlkar, og þetta stutta viðtal er tekið með
nokkrum hléum þegar hún er kölluð „á sett“.
Umferðin á hringveginum allt árið
2012 reyndist 0,4 prósentum minni
en árið 2011. Þetta segir á vef Vega-
gerðarinnar, en í þessum tölum er
miðað við sextán lykilteljara á hring-
veginum.
Þetta er mun minni samdráttur en
árið 2011 þegar umferð dróst saman
um 5,3 prósent frá árinu áður, en
árið 2010 nam samdrátturinn 2,3
prósentum.
Umferð hefur dregist mikið
saman frá hruni, en er nú svipuð og
var á árunum 2005 til 2006. Fyrir
hrun mældist gjarnan fimm til sex
prósenta aukning á umferð milli ára.
Síðasta ár jókst umferð lítillega
á Suðurlandi og við höfuðborgar-
svæðið, og um heil 5,4 prósent á
Austurlandi. Umferð dróst hins vegar
saman á Vesturlandi, um 3,5 prósent
og á Norðurlandi um 4,1 prósent.
Sé eingöngu litið til desember síð-
astliðins í samanburði við desember
2011 er um talsverða aukningu að
ræða, eða um 5,7 prósent á lands-
vísu.
Mesta aukningin í desember
mælist á Suðurlandi, tæplega tólf
prósent. - þj
UMFERÐ UM HRINGVEGINN DRÓST LÍTILLEGA SAMAN
Umferðartölur Vegagerðarinnar sýna minniháttar breytingu milli ára. Samdráttur á umferð er mun minni en árið 2011 og 2010.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
5,7%
aukning varð á umferð í
desember 2012 miðað við
umferð í desember árið
2011.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Sigurður Guðmundsson
tónlistarmaður
Með tærnar upp í loft
Ég var að spila í Hollandi
með Ásgeiri Trausti og ætla
að liggja í sófanum með
tærnar upp í loft um helgina.
Elín Hirst frambjóðandi
Í þrettándaboð
Ég byrja daginn í dag á fundi
í Valhöll, svo held ég erindi
á fundi Þjóðræknisfélagsins
og enda á þrettándaboði hjá
mömmu.
Elín Lilja Jónasdóttir
ritstjóri
Tekur niður jólin
Ég ætla í sund með fjöl-
skyldunni, taka svo niður
jólin og vonandi kemst ég á
Hobbitann um kvöldið.
Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóri RÚV
Út að borða og í leikhús
„Ég verða að vinna í dag, þarf að lesa handrit. Svo
ætla ég að bjóða konunni óvænt út að borða á
Bambus áður en við förum í leikhús að sjá Jónsmessu-
nótt eftir Hávar Sigurjónsson.“