Fréttablaðið - 12.01.2013, Blaðsíða 94

Fréttablaðið - 12.01.2013, Blaðsíða 94
12. janúar 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 62 Halla Bára Gestsdóttir Gunnar Sverrisson homeanddelicious.com 1 Kartöflulöguð aspassúpa með tarragon-rjóma 20 g smjör 1 laukur, fínt saxaður 2 hvítlauksrif, fínt söxuð 2 stórar kartöflur, afhýddar og skornar í teninga ½ l kjúklingasoð 400 g ferskur aspas eða góður úr dós Salt og svartur pipar Tarragon-rjómi 2 msk. ferskt, saxað tarragon, mega vera aðrar kryddjurtir 1 dl sýrður rjómi ½ tsk. rifinn sítrónubörkur 2 msk. þeyttur rjómi Byrjið á því að útbúa rjómann en athugið að hér má sleppa tarragoni og setja estragon eða marjoram í staðinn. Einfaldur, þeyttur rjómi virkar líka vel! Saxið tarragonið smátt eða merjið í mortéli. Hrærið saman sýrða rjómann og þann þeytta, blandið tarragoni saman við ásamt sítrónuberki. Hrærið vel. Kælið þar til súpan er borin fram og látið bragðið taka sig. Bræðið smjörið á miðlungshita í góðum potti. Mýkið lauk og hvítlauk í smjörinu. Setjið kartöfluteninga saman við. Hellið soði í pottinn. Látið suðuna koma upp og sjóðið í 5 mínútur. Ef notaður er ferskur aspas þarf að snyrta af honum trénaða enda og skera hann í litla bita. Bætið aspasinum saman við súpuna og sjóðið í aðrar 10 mínútur eða þar til bitarnir eru mjúkir. Smakkið til með salti og pipar. Maukið helming súpunnar með töfrasprota, þannig þykknar hún. Hrærið súpuna saman. Berið fram með tarragon-rjómanum en hann mýkir súpuna upp og gefur henni kremkenndara bragð. 2 Kókoslöguð fiskisúpa 1 msk. olía 600 ml kókosmjólk 250 ml kjúklingasoð 60 ml fiskisósa 2 msk. púðursykur 600 g hvítur fiskur að eigin vali, skorinn í 3 sm bita Hnefafylli af grænkáli eða klettasalati Safi úr hálfri til einni sítrónu Soðnar hrísgrjónanúðlur, magn eftir smekk Ferskt kóríander til skrauts Mauk 4 sm ferskt engifer 2 hvítlauksrif 1 ferskt, grænt chili 2 msk. ferskt kóríander 1 tsk. broddkúmen Byrjið á því að sjóða hrísgrjóna- núðlur skv. leiðbeiningum á pakka. Setjið allt hráefnið sem fer í maukið í mat- vinnsluvél og maukið vel. Hér getið þið minnkað magnið af chili-inu til að hafa maukið ekki of sterkt. Hitið olíu í potti á meðalhita. Setjið maukið í olíuna, hrærið í 2 mínútur svo það hitni og taki sig í olíunni. Hellið kókosmjólk og soði, sykri og fiskisósu saman við og látið malla í 5 mínútur. Setjið fiskbitana og salatið saman við og látið malla þar til fiskurinn er soðinn, um 3-5 mínútur. Smakkið til með sítrónusafa. Setjið soðnar hrísgrjónanúðlur í skál og ausið fiskisúpunni yfir. Berið fram. 3 Rauðrófu- og eplasúpa 500 g ferskar rauðrófur 1 stór gulrót 2 sellerístilkar 1 laukur 100 g græn epli, kjarnhreinsuð ½ rautt chili, kjarnhreinsað, má sleppa eða minnka magn ½ rauð paprika 2 tsk. sykur 1 lárviðarlauf 2 tsk. sítrónusafi 1½ l kjúklingasoð 2 dl rjómi Salt og svartur pipar Sýrður rjómi Steinselja til skrauts Saxið grænmetið og eplin. Setjið í pott og látið vatn rétt fljóta yfir. Sjóðið í 15 mínútur. Sykrið og setjið lárviðarlauf og sítrónusafa saman við og látið sjóða í nokkrar mínútur í við- bót áður en soðinu er hellt í pottinn. Þá látið þið súpuna sjóða í 30 mínútur. Maukið að því loknu með töfrasprota eða setjið í matvinnsluvél af mikilli nærgætni. Setjið súpuna aftur í pottinn og smakkið til með salti og pipar. Hrærið rjómann saman við en takið eftir að honum má sleppa. Berið fram með sýrðum rjóma og saxaðri steinselju. 4 Sætkartöflusúpa með beikoni 3 meðalstórar, sætar kartöflur, afhýddar og skornar í teninga 4 msk. ólífuolía 10 sneiðar beikon, skornar í bita 2 fersk hvítlauksrif, söxuð 2 tsk. paprikuduft 1 laukur, fínt saxaður 1 l kjúklingasoð Safi úr hálfri sítrónu Salt og svartur pipar Sýrður rjómi Stökkt beikon til skrauts Hitið ofn í 200 gráður. Veltið kartöfl- unum upp úr 2 msk. af ólífuolíu og bakið í ofni í 15-20 mínútur eða þar til þær eru mjúkar. Steikið beikon á pönnu þar til nokkuð stökkt. Mýkið lauk og hvítlauk í 2 msk. af olíu í góðum potti, bætið beikoninu saman við, stráið paprikudufti yfir. Hrærið. Hellið soðinu yfir, hrærið og látið suðuna koma upp. Setjið sætu kartöflurnar saman við og látið sjóða í 10 mínútur. Maukið súpuna að því loknu með töfrasprota, eða setjið gætilega í matvinnsluvél. Smakkið til með salti, pipar og sítrónusafa. Berið fram með sýrðum rjóma og örlitlu af stökku beikoni. Þessi súpa er skemmtilega öðruvísi en maður á að venjast. SÚPUR Í VETRARKULDANUM Eft ir jólin sækjum við í annars konar mat en yfi r hátíðirnar, meiri fi sk og grænmeti. Súpur eru gjaldgengar allt árið en þær eiga sérstaklega vel við í vetrartíðinni. Hér eru uppskrift ir að fj órum góðum súpum þar sem sætar kartöfl ur, aspas, rauðrófur og fi skur eru uppistaðan. 1 2 3 4 BÍÓ ★★★★ ★ The Master Leikstjórn: Paul Thomas Anderson. Leikarar: Joaquin Phoenix, Philip Seymour Hoffman, Amy Adams, Laura Dern, Madisen Beaty, Amy Ferguson. Ljósmyndarinn Freddie Quell (Joa- quin Phoenix) er stórskemmdur eftir herþjónustu sína í seinna stríði og væflast úr einni vinnu í aðra. Hann drekkur ótæpilega, er gjarn á að lenda í slagsmálum og eftir að hann byrlar vinnufélaga sínum á hvítkálsbúgarði ólyfjan tekur hann til fótanna og endar sem laumufarþegi á snekkju hins plebbalega Lancasters Dodd (Phi- lip Seymour Hoffman). Með þeim tekst mikill vinskapur, en Dodd þessi er sjálfskipaður leiðtogi sér- trúarsafnaðarins The Cause. Þessi nýjasta kvikmynd fyrr- um undrabarnsins, og nú undra- mannsins, Pauls Thomas Ander- son, er sögð byggja að miklu leyti á tilurð Vísindakirkjunnar í upp- hafi 6. áratugar síðustu aldar, en hvergi er nafn hennar tekið fram í myndinni. Því fer þó fjarri að The Master deili sérstaklega á Vísindakirkjuna umfram aðra söfnuði. Leiðtoginn, sem í fyrstu er vingjarnlegur og sjarmer- andi, ber öll helstu einkenni lodd- arans. Hann notfærir sér veik- leika áhrifagjarns fólks, og við þekkjum öll þessa persónu, bæði úr sjónvarpinu og úr íslenskum raunveruleika. Þær eru alls stað- ar í heiminum. Þeir Phoenix og Hoffman eru báðir ótrúlegir leik- arar, og sennilega hefur hvorugur þeirra verið betri en einmitt hér. Hinn siðblindi Quell væri óþol- andi persóna á prenti, en Phoenix nær á undraverðan hátt að koma á góðri tengingu við áhorfendur. Anderson leyfir tvímenningunum að leika sér með línurnar, þó hand- ritið sé svo sannarlega ekkert slor, og líkt og í fyrri myndum leikstjór- ans er engin feimni við langar og óklipptar senur þar sem perform- ansinn fær að taka gott pláss. Listræn stjórnun er af bestu gerð og ásamt óaðfinnanlegri kvikmyndatöku gerir hún The Master að einni áferðarfegurstu mynd sem lengi hefur sést. Hvert einasta skot væri flott í ramma uppi á vegg, en þrátt fyrir að vera stílhrein verður myndin aldrei steríl. Ég skil ekki hvers vegna myndin fékk engar Óskarstilnefn- ingar í þessum útlitsflokkum því það hefði hún svo sannarlega átt skilið. Síðasti þriðjungur myndarinnar er sá sísti en mig grunar að annað áhorf kæmi mér á aðra skoðun. Þannig er það allavega oft með Anderson. Myndirnar hans batna með hverju áhorfi, og ég fullyrði að The Master mun verða mér ofarlega í huga á næstu vikum og mánuðum. Haukur Viðar Alfreðsson NIÐURSTAÐA: Enn eitt listaverkið frá undramanninum Anderson. Tveir á toppnum THE MASTER „Hvert einasta skot væri flott í ramma uppi á vegg en þrátt fyrir að vera stílhrein verður myndin aldrei steríl.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.