Fréttablaðið - 12.01.2013, Blaðsíða 44
FÓLK|| FÓ K | HELGIN4
Hópur hjólafólks hittist annan hvern laugardagsmorgun og hjólar
saman í nokkra klukkutíma. „Við höfum staðið fyrir þessum hjóla-
ferðum í nokkur ár,“ segir Skúli H. Skúlason, framkvæmdastjóri Úti-
vistar, en ferðirnar eru opnar öllum og ekki er greitt þátttökugjald
fyrir.
Hjólahópurinn hittist á tilteknum stað og tekin er ákvörðun um
hjólaleiðina. „Það fer eftir veðri og aðstæðum hverju sinni hvert er
hjólað. Stundum er hjólað í tvo tíma en ferðirnar geta tekið allt upp
í fimm tíma ef veður er gott og allir í stuði,“ segir Skúli og tekur sem
dæmi að stundum hjóli hópurinn upp í Mosfellsbæ og tylli sér jafn-
vel á kaffihús.
Skúli segir ferðirnar miðaðar við hinn almenna hjólamann. „Þetta
eru ekki garpaferðir,“ bætir hann kíminn við. Inntur eftir fjölda þátt-
takenda svarar Skúli að yfirleitt mæti um tíu til tuttugu manns til
að hjóla en í hópnum sem hafi stundað ferðirnar séu um fjörutíu
manns.
En er ekkert mál að hjóla á veturna? „Nei, það er oft fínt og þurrt
færi á veturna en vissulega þurfa
menn að vera með nagladekk ef
það er hálka.“
Hópurinn hittist í dag klukkan 10
en næsta hjólaferðin verð-
ur farin laugardaginn
26. janúar frá Topp-
stöðinni í Elliðaárdal.
Nánari upplýsingar
um styttri og lengri
hjólaferðir er að finna
á vefnum www.utivist.is.
HIST OG HJÓLAÐ
Hjólað á höfuðborgarsvæðinu kallast fastur liður
hjá ferðafélaginu Útivist.
Á HJÓLASTÍG Útivist stendur fyrir ókeypis hjólaferðum annan hvern laugardag í vetur.
Íslenska landsliðið í handbolta keppir í sínum fyrsta leik á heims-meistaramótinu á Spáni í dag
þegar liðið mætir Rússlandi. Það eru
liðin 55 ár síðan landsliðið í hand-
bolta keppti á fyrsta heimsmeistara-
móti sínu í Austur-Þýskalandi árið
1958. Hallsteinn Hinriksson þjálfaði
landsliðið sem var skipað fjórtán leik-
mönnum, þar af sjö úr FH og fjórum
úr KR. Karl V. Jóhannsson, leikmaður
KR, var varafyrirliði landsliðsins á
mótinu og segir hann þetta fyrsta
stórmót landsliðsins hafa verið mikla
upplifun fyrir alla þá sem tóku þátt.
„Mótið var mikil upplifun fyrir okkur
leikmenn og þá sem fóru með, aðal-
lega því æfingaaðstaða okkar var svo
léleg á þessum tíma. Við þurftum að
æfa í Hálogalandi en líka að keyra
upp á Keflavíkurflugvöll tvisvar í viku
og æfa í íþróttahúsi bandaríska hers-
ins. Það var mikil upplifun að æfa í
svo stórum sal.“
Landsleikirnir í Austur-Þýskalandi
voru fyrstu landsleikir allra leik-
manna liðsins. Aðstæður ytra voru
nokkuð frumstæðar að sögn Karls.
„Við ferðuðumst með lest til Magde-
burg og vorum mjög lengi á leiðinni.
Hermenn stoppuðu lestina reglulega
og kíktu inn til okkar. Þegar komið var
á staðinn kom í ljós að íþróttahúsið
sem við spiluðum í var einnig braggi
en þó töluvert stærri en við vorum
vanir. Við æfðum á 17 x 34 metra velli
heima en völlur í Magdeburg var 20 x
40 metra langur. Gólfið var þó svipað
því sem við vorum vanir.“
ÞEKKTU EKKI MÓTHERJANN
Ísland lenti í níunda sæti á mótinu
en sextán lið tóku þátt. Landsliðið
lék þrjá leiki, vann Rúmena en tap-
aði á móti Tékkum og Ungverjum.
Sigurinn gegn Rúmenum var jafn-
framt fyrsti sigurleikur íslenska
landsliðsins í handbolta. „Við viss-
um ekkert hverju við áttum von á
þarna úti og höfðum engar sérstakar
væntingar. Við þekktum ekki leik-
menn hinna liðanna en vissum þó af
BRAGGALIÐ
NÆR GÓÐUM
ÁRANGRI
GAMLAR KEMPUR Íslenska landsliðið í handbolta tók
fyrst þátt í HM í handbolta fyrir 55 árum. Liðið æfði við
frumstæðar aðstæður en náði góðum árangri.
ÓVISSA
„Við vissum ekkert hverju
við áttum von á þarna
úti og höfðum engar sér-
stakar væntingar,“ segir
Karl V. Jóhannsson, fyrr-
verandi landsliðsmaður.
MYND/STEFÁN
einum góðum tékkneskum leikmanni
sem hét Eretz. Eftir leikinn við Tékka
spurðum við reyndar hver þessi
Eretz væri því við tókum aldrei eftir
honum. Níunda sæti á þessu fyrsta
heimsmeistaramóti var bara ágætis
árangur hjá okkur, sérstaklega þegar
tillit er tekið til þess að við vorum
að koma frá litlum velli yfir á stóran
völl.“
Birgir Björnsson, fyrirliði liðsins
og leikmaður FH, var markahæsti
leikmaður liðsins á mótinu með 13
mörk. Sjálfur skoraði Karl tvö mörk á
mótinu en hann spilaði stöðu skyttu
vinstra megin og á miðjunni.
Karl átti langan feril sem leik-
maður hérlendis auk þess að starfa
sem milliríkjadómari á mörg ár. Hann
hefur því fylgst vel með handbolt-
anum undanfarna áratugi. En hvernig
líst honum á íslenska liðið sem hefur
leik í dag? „Mér líst ekki nógu vel á
þá. Ég sá leikinn á móti Svíum fyrr í
vikunni. Mér fannst nýju leikmennirn-
ir eitthvað taugaveiklaðir og skiluðu
ekki því sem ég bjóst við. Það var
þó frábært að sjá Aron í markinu. Ég
spái okkur tveimur sigrum en held að
við vinnum ekki Rússa og Dani auk
þess sem Makedóníumenn hafa alltaf
verið okkur erfiðir.“
TILBÚNIR! Íslenska liðið stillir
upp fyrir fyrsta leik mótsins gegn
Tékkum. Karl er annar frá hægri í
neðri röð. MYND/ÚR EINKASAFNI
10.000 METRA ÁSKORUN!
Kynnt verður ný og metnaðarfull
fjallgönguáætlun með yfir 10.000 metra
hæðarhækkun. Hvannadalshnúkur
eða Hrútsfjallstindar sem
lokatakmark. Allir velkomnir!
Nánari upplýsingar
á www.fjallafelagid.is
KYNNINGARFUNDUR
Í SPORTHÚSINU Í KÓPAVOGI
ÞRIÐJUDAGINN
15. JANÚAR KL. 20