Fréttablaðið - 12.01.2013, Blaðsíða 64
| ATVINNA |
Hlutverk Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er að veita íbúum höfuðborgarsvæðisins aðgengi-
lega, samfellda og alhliða heilsugæsluþjónustu. Þjónustan grundvallast á sérþekkingu á sviði
heimilislækninga, hjúkrunar og heilsuverndar og byggir á víðtæku þverfaglegu samstarfi.
Hún samanstendur af fimmtán heilsugæslustöðvum í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Mosfellsum-
dæmi, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði, Þróunarstofu heilsugæslunnar, Þroska- og hegðunar-
stöð, Göngudeild sóttvarna, Geðheilsu-eftirfylgd/iðjuþjálfun og stjórnsýslu Heilsugæslunnar.
Hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins starfa um 550 manns.
Framkvæmdastjóri Þróunarsviðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins auglýstir laust til umsóknar starf framkvæmdastjóra þróunarsviðs.
Framkvæmdastjóri þróunarsviðs situr í framkvæmdastjórn Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og er hlutverk hans
að hafa forystu um þróun og nýjungar í starfsemi stofnunarinnar og heilsugæslu almennt. Starfshlutfall er 100% og
er skipað í stöðuna frá 1. mars 2013, til 5 ára.
Helstu viðfangsefni:
• Þróun og nýjungar í heilsugæslu
• Gæða- og öryggismál
• Vísindarannsóknir og samstarf við stofnanir
• Þróun verkferla og klínískra leiðbeininga
• Þróun og innleiðing árangursmælinga og -mats
• Úrvinnsla staðtalna og upplýsinga
• Starfsþjálfun, fræðslumál og kennsla
• Fagleg leiðsögn um ýmis viðfangsefni innan sviðsins
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði heilbrigðismála. Framhalds-
menntun skilyrði
• Umtalsverð starfsreynsla á sviði heilbrigðisþjónustu og
haldgóð reynsla af þróunarstarfi, breytingastjórnun eða
vísindastarfi
• Þekking, reynsla og hæfni á sviði stjórnunar
• Reynsla af forystu í þróunarverkefnum.
Færni og aðrir eiginleikar:
• Áhugi og hæfni til að leiða þverfaglegan hóp heilbrigðis
starfsmanna
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
• Leiðtogahæfni og metnaður til að ná árangri í starfi
• Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt
• Góð hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
Valnefnd mun fara yfir umsóknir og meta menntun, reynslu og
hæfni umsækjenda.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Svanhvít Jakobsdóttir,
forstjóri í síma 585 1300 eða netfangi: svanhvit.jakobsdottir@
heilsugaeslan.is.
Umsóknir sendist til Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins,
Álfabakka 16, 109 Reykjavík, fyrir 11. febrúar 2013. Umsóknum
um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf
þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og fram kemur
rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Hægt er að sækja um starfið á vef Heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins, www.heilsugaeslan.is
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
www.heilsugaeslan.is
Álfabakka 16
109 Reykjavík
ÚTBOÐ
15374 FORVAL - FLE INNRI FRÁGANGUR
OG KERFI - ENDURHÖNNUN
SUÐURBYGGINGAR 2013
Ríkiskaup fyrir hönd Isavia ohf. óskar eftir umsóknum
áhugasamra aðilar um þátttöku í forvali fyrir lokað útboð
vegna Endurhönnun Suðurbyggingar 2013.
Verkið felst í innréttingu á afmörkuðum svæðum á 1. hæð
(um 1100m2), 2.hæð (um 400m2) og í kjallara (um 400m2).
Meðal verkefna er innrétting rýmanna á 1. og 2.hæð ásamt
tilheyrandi tæknikerfum, færsla á loftræsisamstæðu, smíði
og uppsetning lyftustokka og stálstiga ásamt nýjum
almenningssalernum í kjallara.
Áætlað upphaf verks er 01.03.2013 og skal stærstum hluta
verksins vera lokið eigi síðar en 05.06.2013.
Þeir aðilar sem uppfylla kröfur forvalsgagna verður boðin
þátttaka í lokuðu útboði.
Nánari upplýsingar er að finna í forvalsgögnum sem
verða aðgengileg á vef Ríkiskaupa, www.ríkiskaup.is, ekki
seinna en miðvikudaginn 16.01.2013 nk.
Þátttökutilkynningar verða opnaðar í viðurvist þeirra
bjóðenda sem þess óska 28. janúar 2013 kl. 14.00 hjá
Ríkiskaupum , Borgartúni 7c, 105 Reykjavík.
Við leitum að
UNIX meistara
Starfið felst í rekstri á UNIX kerfum sem eru í hýsingarumhverfi
Símans. Fengist er við fjölbreytt verkefni sem tengjast öllu frá
vefþjónum yfir í stór kerfi viðskiptavina.
Leitað er að einstaklingi með reynslu af rekstri upplýsingatæknikerfa.
Menntun og reynsla:
· Góð þekking á Internetstöðlum og -þjónustum
· Þekking og reynsla af Debian, Red Hat
og/eða HP-UX, AIX og Solaris
· Þekking á Open source hugbúnaði, svo sem
Bind, Apache vefþjónum og Tomcat
· Háskólapróf í tölvunarfræði eða verkfræði
er æskilegt
Umsóknarfrestur er til og með 21. janúar nk.
Fyrirspurnir berist til Brynhildar Halldórsdóttur (brynhildur@skipti.is).
Aðeins er tekið á móti umsóknum í gegnum www.siminn.is.
Við höfum gildi Símans að leiðarljósi í störfum okkar og erum
skapandi, áreiðanleg og lipur.
Einar Ágúst, Microsoft sérfræðingur
Skannaðu hérna
til að sækja
B
arcode Scanner
Hvað segir Símafólkið?
Skoðaðu viðtöl með því
að skanna kóðann.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
6
11
3
Hæfniskröfur:
· Samskiptalipurð og hæfni til að
vinna í hópi
· Kraftur og frumkvæði
· Sjálfstæð vinnubrögð
· Sveigjanleiki og góð aðlögunarhæfni
12. janúar 2013 LAUGARDAGUR18