Fréttablaðið - 12.01.2013, Page 64

Fréttablaðið - 12.01.2013, Page 64
| ATVINNA | Hlutverk Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er að veita íbúum höfuðborgarsvæðisins aðgengi- lega, samfellda og alhliða heilsugæsluþjónustu. Þjónustan grundvallast á sérþekkingu á sviði heimilislækninga, hjúkrunar og heilsuverndar og byggir á víðtæku þverfaglegu samstarfi. Hún samanstendur af fimmtán heilsugæslustöðvum í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Mosfellsum- dæmi, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði, Þróunarstofu heilsugæslunnar, Þroska- og hegðunar- stöð, Göngudeild sóttvarna, Geðheilsu-eftirfylgd/iðjuþjálfun og stjórnsýslu Heilsugæslunnar. Hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins starfa um 550 manns. Framkvæmdastjóri Þróunarsviðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins auglýstir laust til umsóknar starf framkvæmdastjóra þróunarsviðs. Framkvæmdastjóri þróunarsviðs situr í framkvæmdastjórn Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og er hlutverk hans að hafa forystu um þróun og nýjungar í starfsemi stofnunarinnar og heilsugæslu almennt. Starfshlutfall er 100% og er skipað í stöðuna frá 1. mars 2013, til 5 ára. Helstu viðfangsefni: • Þróun og nýjungar í heilsugæslu • Gæða- og öryggismál • Vísindarannsóknir og samstarf við stofnanir • Þróun verkferla og klínískra leiðbeininga • Þróun og innleiðing árangursmælinga og -mats • Úrvinnsla staðtalna og upplýsinga • Starfsþjálfun, fræðslumál og kennsla • Fagleg leiðsögn um ýmis viðfangsefni innan sviðsins Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun á sviði heilbrigðismála. Framhalds- menntun skilyrði • Umtalsverð starfsreynsla á sviði heilbrigðisþjónustu og haldgóð reynsla af þróunarstarfi, breytingastjórnun eða vísindastarfi • Þekking, reynsla og hæfni á sviði stjórnunar • Reynsla af forystu í þróunarverkefnum. Færni og aðrir eiginleikar: • Áhugi og hæfni til að leiða þverfaglegan hóp heilbrigðis starfsmanna • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum. • Leiðtogahæfni og metnaður til að ná árangri í starfi • Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt • Góð hæfni til að tjá sig í ræðu og riti Valnefnd mun fara yfir umsóknir og meta menntun, reynslu og hæfni umsækjenda. Nánari upplýsingar um starfið veitir Svanhvít Jakobsdóttir, forstjóri í síma 585 1300 eða netfangi: svanhvit.jakobsdottir@ heilsugaeslan.is. Umsóknir sendist til Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík, fyrir 11. febrúar 2013. Umsóknum um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Hægt er að sækja um starfið á vef Heilsugæslu höfuðborgar- svæðisins, www.heilsugaeslan.is Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins www.heilsugaeslan.is Álfabakka 16 109 Reykjavík ÚTBOÐ 15374 FORVAL - FLE INNRI FRÁGANGUR OG KERFI - ENDURHÖNNUN SUÐURBYGGINGAR 2013 Ríkiskaup fyrir hönd Isavia ohf. óskar eftir umsóknum áhugasamra aðilar um þátttöku í forvali fyrir lokað útboð vegna Endurhönnun Suðurbyggingar 2013. Verkið felst í innréttingu á afmörkuðum svæðum á 1. hæð (um 1100m2), 2.hæð (um 400m2) og í kjallara (um 400m2). Meðal verkefna er innrétting rýmanna á 1. og 2.hæð ásamt tilheyrandi tæknikerfum, færsla á loftræsisamstæðu, smíði og uppsetning lyftustokka og stálstiga ásamt nýjum almenningssalernum í kjallara. Áætlað upphaf verks er 01.03.2013 og skal stærstum hluta verksins vera lokið eigi síðar en 05.06.2013. Þeir aðilar sem uppfylla kröfur forvalsgagna verður boðin þátttaka í lokuðu útboði. Nánari upplýsingar er að finna í forvalsgögnum sem verða aðgengileg á vef Ríkiskaupa, www.ríkiskaup.is, ekki seinna en miðvikudaginn 16.01.2013 nk. Þátttökutilkynningar verða opnaðar í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska 28. janúar 2013 kl. 14.00 hjá Ríkiskaupum , Borgartúni 7c, 105 Reykjavík. Við leitum að UNIX meistara Starfið felst í rekstri á UNIX kerfum sem eru í hýsingarumhverfi Símans. Fengist er við fjölbreytt verkefni sem tengjast öllu frá vefþjónum yfir í stór kerfi viðskiptavina. Leitað er að einstaklingi með reynslu af rekstri upplýsingatæknikerfa. Menntun og reynsla: · Góð þekking á Internetstöðlum og -þjónustum · Þekking og reynsla af Debian, Red Hat og/eða HP-UX, AIX og Solaris · Þekking á Open source hugbúnaði, svo sem Bind, Apache vefþjónum og Tomcat · Háskólapróf í tölvunarfræði eða verkfræði er æskilegt Umsóknarfrestur er til og með 21. janúar nk. Fyrirspurnir berist til Brynhildar Halldórsdóttur (brynhildur@skipti.is). Aðeins er tekið á móti umsóknum í gegnum www.siminn.is. Við höfum gildi Símans að leiðarljósi í störfum okkar og erum skapandi, áreiðanleg og lipur. Einar Ágúst, Microsoft sérfræðingur Skannaðu hérna til að sækja B arcode Scanner Hvað segir Símafólkið? Skoðaðu viðtöl með því að skanna kóðann. E N N E M M / S ÍA / N M 5 6 11 3 Hæfniskröfur: · Samskiptalipurð og hæfni til að vinna í hópi · Kraftur og frumkvæði · Sjálfstæð vinnubrögð · Sveigjanleiki og góð aðlögunarhæfni 12. janúar 2013 LAUGARDAGUR18
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.