Fréttablaðið - 12.01.2013, Page 12

Fréttablaðið - 12.01.2013, Page 12
12. janúar 2013 LAUGARDAGURSKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 SPOTTIÐ AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR Ísland er lokað í gildru gjald-eyrishafta. Þjóðarinnar bíður það hlutskipti að hlaupa hring eftir hring; ýmist við að hækka laun eða fella gengi. Hún mun mest nærast á froðu verð- bólgunnar því að jarðvegur henn- ar er nú frjórri en hollari afurða. Helst má líkja aðstæðum þjóð- arinnar við dýr í búri sem bíta í skottið hvert á öðru. Draumur flestra er þó samlíking við fjall- göngumenn á leið á tindinn. Hugur stjórnmálamanna er í ríkari mæli bundinn við skamm- tímalausnir en framtíðarsýn. Þar af leiðir að fyrirheitin í aðdrag- anda kosninganna minna fremur á misjafnlega stór búr en búnað til að ná á tind- inn. Allar breyt- ingar lúta síðan tveimur tak- mörkunum sem styðjast við rétt- lætiskennd. Annars vegar er almenn sam- staða um að ekkert megi gera sem raskar ríkjandi landbúnaðarkerfi. Það er helst að Samfylkingin kæri sig kollótta í þeim efnum. Hins vegar er ríkur meirihluta- stuðningur við ráðagerðir um að vinda ofan af þeim þjóðhagslega ávinningi sem markaðslausnir í sjávarútvegi hafa skilað. Sagt er að réttlætið felist í fjölgun starfa og fiskiskipa og að taka arðinn í ríkissjóð til að kosta jarðgöng og styrki til atvinnufyrirtækja. Í staðinn verður almenningur að borga sveiflujöfnunina fyrir útgerðina í gegnum gengislækk- anir. Sjálfstæðisflokkurinn stendur einn fyrir þann málstað að sjávar- útvegurinn skili arði og geti ráðið við að jafna sveiflur upp á eigin spýtur án þess að fleyta þeim yfir á almenning. Þetta er minnihluta- sjónarmið. En í sjálfu sér er ekki síður réttlátt að útgerðin haldi arðinum og borgi sjálf sveiflu- jöfnunina því það bætir kjör launafólks. Gildran Eigi þjóðin að halda á tind-inn þarf að koma í veg fyrir að hún festist í gildru verð- bólgunnar. Til að það takist þarf að láta sjávarútveginn jafna óhjá- kvæmilegar sveiflur fyrir eigin reikning. Ella er stöðug mynt óhugsandi. Samhliða verður að sníða launabreytingum stakk í réttu hlutfalli við verðmætasköp- un og framleiðni. Nærri lætur að fjórir fimmtu hlutar útflutnings landsmanna eigi rætur í nýtingu auðlinda. Henni eru hins vegar takmörk sett. Til að bæta kjörin þarf því að skapa nýja útflutningsstarfsemi á sviði þekkingar í framleiðslu og þjónustu. Það getur því aðeins gerst að Ísland sé samkeppnis- hæft. Til að svo megi verða þurfa sömu eða betri leikreglur að gilda hér en í viðskiptalöndunum. Ísland kemst því ekki hjá því að vera þátttakandi í alþjóðavæðing- unni. Við verðum að horfast í augu við þá staðreynd að Ísland er eft- irbátur annarra í framleiðni. Í nýlegri skýrslu McKinsey kom fram að framleiðni á vinnustund er nálægt því sem er í Grikklandi. Sjávarútvegurinn er eina atvinnu- greinin sem náð hefur framleiðni- stigi sem jafna má við það sem best gerist. Nú á að hverfa til baka og fórna þeim árangri fyrir félagsleg markmið. Af McKinsey-skýrslunni má einnig ráða að flytja þurfi þrett- án þúsund störf úr þjónustugrein- um í nýja atvinnustarfsemi til að ná framleiðni sem tryggir sam- keppnishæfni landsins. Á næstu fimmtán árum þarf ný atvinnu- starfsemi að auki að gera tvö- földun útflutningsverðmætanna mögulega. Ísland er eft irbátur annarra Draumurinn um að ná á tind-inn þýðir að ráðast verður á fjallið. En fjallganga er ekki fyrirhafnarlaus. Verkurinn er sá að í kosningum er ekki til vin- sælda fallið að lofa nokkru því sem kostar fyrirhöfn eða erfiði. Meðan stjórnmálaflokkarnir koma sér hjá því að segja satt um fjallgönguna verður heldur engin trúverðug framtíðarsýn af tindinum. Eigi að takast að tvöfalda útflutning að talsverðum hluta með annars konar starfsemi en auðlindanýtingu þarf marghátt- aðar kerfisbreytingar. Lækkun skatta dugar ekki alla leið. Hér þarf gjaldmiðil sem er stöðugur og hlutgengur í viðskiptum. Krón- an uppfyllir hvorugt skilyrðið og enginn hefur sýnt fram á að unnt sé að breyta því. Vel má vera að einhverjir telji að önnur pólitísk markmið séu mikilvægari en að tryggja sam- bærileg lífskjör við það sem best þekkist. Það er val sem sjálfsagt er að ræða. En þeir sem útiloka aðra kosti en óskert fullveldi í peninga- málum geta ekki með trúverð- ugum hætti haldið fram málstað frjálsra óhindraðra viðskipta. Þeir sem velja takmörkun á viðskipta- frelsi geta ekki lofað bestu lífs- kjörum og norrænni velferð. Þeir sem ákveða félagslegar lausnir í sjávarútvegi í stað markaðslausna fórna sveiflujöfnunarmöguleikan- um og geta því ekki boðað upptöku evru. Hver flokkur boðar nú ósam- rýmanleg markmið. Við svo búið er enginn þeirra að bjóðast til að leiða þjóðina á tindinn. Verk- efnið fram undan er því að finna meirihluta fyrir samrýmanlegum markmiðum. Á að ráðast á fj allið? A ð minnsta kosti tvær athyglisverðar ranghugmyndir skutu upp kollinum í opinberri umræðu um nýárs- ávarp Agnesar Sigurðardóttur biskups og þá tillögu hennar að þjóðkirkjan hefði forystu um landssöfnun fyrir betri tækjum handa Landspítalanum. Önnur var sú sem Sigríður I. Ingadóttir þingmaður setti fram í viðtali við Ríkisútvarpið; að það væri fráleitt að ein ríkisstofn- un, sem þar að auki hefði verið að biðja um meiri fjárframlög, safnaði peningum fyrir aðra. Þar gleymdi þingmaðurinn ýmsum grundvallarstað- reyndum málsins, eins og þeirri að þjóðkirkjan er í lögum skil- greind sem sjálfstætt trúfélag. Sömuleiðis að ríkið hefur haldið eftir hluta af sóknargjöldunum, sem það innheimtir bæði fyrir þjóðkirkjuna og önnur trúfélög. Líka að beint framlag ríkisins til kirkjunnar er byggt á samningi um jarðeignir kirkjunnar, sem á sínum tíma voru 17% af öllum jörðum í landinu. Ríkið fékk jarðirnar en greiðir í staðinn laun presta. Síðast en ekki sízt gleymdist að þrátt fyrir tengsl sín við ríkið er kirkjan grasrótarsamtök, þar sem þúsundir manna vinna mikið sjálfboðastarf, meðal annars í þágu líknar-, velferðar- og æskulýðsmála. Kirkjan er í raun elzta líknarfélag landsins og hefur í aldanna rás hlúð að sjúkum og öldruðum. Tillaga biskups er, ef eitthvað er, til þess fallin að kirkjan rækti tengslin við þær rætur sínar fremur en að hún líti á sig sem stofnun. Hin hugmyndin, sem býsna margir settu í orð, er að það sé hneyksli að fjárveitingar úr ríkissjóði dugi ekki fyrir endur- nýjun á tækjum Landspítalans og að hann þurfi að reiða sig á gjafafé. Ríkið á bara að redda því máli, finnst mörgum. En ef það er hneyksli að spítalinn þurfi gjafir frá félagasamtökum, er þá ekki líka skandall að nokkur annar hluti velferðarkerfisins sé ekki að fullu fjármagnaður með skattpeningunum okkar? Staðreyndin er að líknar- og hjálparsamtök veita víðtæka vel- ferðarþjónustu og reka talsverðan hluta heilbrigðis- og félags- kerfisins. Við getum nefnt SÁÁ, Blindrafélagið, Hjartavernd eða Samtök um kvennaathvarf sem dæmi. Oft er starfsemin fjármögnuð að hluta með framlögum úr ríkissjóði, en samtökin standa sjálf í gríðarlegri fjáröflun og draga inn sjálfboðaliða sem hafa áhuga á málefninu en væru ekki líklegir til að vinna fyrir ekki neitt í þágu ríkisstofnana. Án þessarar starfsemi, sem stunduð er kölluð þriðji geirinn, væri velferðarþjónustan annaðhvort miklu lélegri eða skattarnir okkar miklu hærri. Hugmyndin um að öll velferðarþjónusta skuli ríkisrekin hefur verið prófuð. Í Sovétríkjunum sálugu var starf líknar- félaga að stærstum hluta bannað í sjötíu ár – enda átti ríkið að græja þetta – en lét aftur á sér kræla í lok Sovéttímans. Þá voru til dæmis stofnuð félög sem sinntu munaðarlausum börnum og stuðluðu að ættleiðingum, eftir að það komst í hámæli hvers konar stofnanir ríkisrekin munaðarleysingjahæli voru í raun. Í okkar samfélagi er það líka svo að velferðarþjónusta, líknar- og hjálparstarf væri ekki nema svipur hjá sjón án starfs þriðja geirans. Mikið af því starfi fær ekki þá athygli sem það verð- skuldar og ætti kannski að halda því meira á lofti, þannig að færri haldi að ríkið reddi þessu bara. Framlag frjálsra félagasamtaka til velferðarsamfélagsins er stundum vanmetið: Reddar ríkið því? Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is ÚTSALA! kíktu inn á www.pfaff.is Pfaff // Grensásvegi 13 // Sími 414 0400 TAK LJÓSAKRÓNA – SVÖRT EÐA HVÍT VERÐ ÁÐUR 49.900,- NÚ 25.000,- Opið í dag, laugardag kl. 11-16. 50%50% Fjöldi loftljósa og lampa á ótrúlega góðu verði! IMPULS GÓLFLAMPI VERÐ ÁÐUR 29.800,- NÚ 15.000,-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.