Fréttablaðið - 12.01.2013, Side 24
12. janúar 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 24
Áhuginn á heilsu kviknaði í menntaskóla, kannski svona sautján ára. Þá tók ég mataræðið dálít-ið föstum tökum, fór að lesa mér til og fékk mik-
inn áhuga á heilbrigðu líferni. Fór
þó ekki út í neinar öfgar, fann bara
hvað það var gott að hafa holl-
ustuna sem rauðan þráð í gegn-
um lífið. Það er allt í lagi að fara
aðeins út af sporinu annað slagið
en gott að hafa skýr markmið.“
Hvenær byrjaðirðu svo að
hlaupa? „Í kringum átján ára ald-
urinn byrjaði ég í líkamsrækt og
fór fljótlega eftir það út að skokka.
Byrjaði svo að hlaupa markvisst í
MR þegar við vorum látin taka
hlaupapróf og hlaupa 2 kílómetra
á tíma. Þá fór ég að fara reglulega
út að hlaupa og æfa mig í að ná
hraða. Smátt og smátt hafa hlaupin
svo verið að lengjast. Byrjaði á að
hlaupa 10 kílómetra, svo hálfmara-
þon og fyrsta maraþonið hljóp ég
í kringum tvítugt. Árið 2009 próf-
aði ég að hlaupa Laugaveginn og
það opnaði á ýmsar pælingar. Þá
kom hvatinn til að hlaupa lengra
og lengra.“
Þig dreymir um að taka þátt í
hlaupi sem er um 168 kílómetr-
ar, ekki satt? „Jú, það heitir Ultra
Trail du Mont Blanc og er í Ölp-
unum. Ég er búin að sækja um að
fá að taka þátt í því í sumar og fæ
svar núna 18. janúar. Þetta er mjög
vinsælt hlaup og erfitt að komast
inn, en ég vona það besta.“
Sagan segir að það sé ekki hægt
að fara út úr húsi í Reykjavík án
þess að sjá þig á hlaupum, er eitt-
hvað til í því? „Það er ábyggilega
eitthvað til í því. Mér finnst gaman
að hlaupa alls staðar, bæði úti í
náttúrunni og á götum borgarinn-
ar. Ég er ekkert feimin við að fólk
sjái mig úti að hlaupa í hvers konar
galla sem er.“
Frelsistilfinning og hugleiðsla
Hvað er svona æðislegt við að
hlaupa? Er þetta ávanabindandi?
„Já, það er rosalega ávanabindandi
að hlaupa. Í fyrsta lagi er gott að
hafa einhverja ákveðna hreyfingu
sem maður getur stundað hvar
sem er og hvenær sem er. Mér
finnst líka gaman að hafa eitthvert
stórt markmið og það hjálpar mér
rosalega mikið í öllu sem ég geri.
Það setur aðeins meiri spennu í
lífið. Hlaupin gefa manni líka svo
mikla frelsistilfinningu; að geta
bara farið út, ekki með símann, og
einhvern veginn tjúnað sig alveg
út úr heiminum í smástund. Þetta
er eiginlega hugleiðsla í leiðinni.“
Hvernig kemur þetta niður á
heimilislífinu, hleypur maðurinn
þinn með þér? „Nja, stundum, en
honum finnst skemmtilegt að gera
ýmislegt annað en að hlaupa. Hann
fer að lyfta og er í fótbolta en hann
er farinn að hlaupa meira en hann
gerði þegar við kynntumst og
ætlar að skrá sig í Laugavegs-
hlaupið í ár. Ég ætla að aðstoða
hann við það og er mjög spennt,
þótt ég verði bara á hliðarlínunni.“
Taka öll frí mið af því hvort
hægt sé að hlaupa á viðkomandi
áfangastað? „Ekki alveg, ég reyni
að fara að minnsta kosti eina ferð
á ári sem tengist ekki hlaupum,
kannski einhverja helgarferð. En
það er líka hægt að hlaupa hvar
sem er, maður pakkar bara niður
hlaupaskónum, hlaupagallanum
og GPS-tækinu og þá getur maður
til dæmis kynnst nýjum borgum
á mjög skemmtilegan og öðruvísi
hátt. Ég hef gert mikið af því að
hlaupa þar sem ég er að ferðast.
Svo er líka óskaplega gaman að
fara í maraþonferðir með góðum
hópi.“
Eitt skref í einu
Þú gerir fleira en að hlaupa, lærð-
ir lífefnafræði og næringarfræði
og rekur næringarráðgjöf. Kom
aldrei annað til greina en að fara
í nám sem tengdist áhuganum á
hollustu? „Eiginlega ekki. Ég fór
í lífefnafræðina strax eftir MR og
ákvað svo að taka master í nær-
ingarfræði. Markmiðið var alltaf
að fara þessa braut og með því að
fara í lífefnafræðina hafði ég val
um að taka annaðhvort matvæla-
fræði eða næringarfræði í mast-
ersnáminu. Þegar til kom varð
næringarfræðin ofan á því mig
langaði að starfa við næringar-
ráðgjöf.“
Og nú ertu komin með hana,
hvað er langt síðan þú opnaðir
þjónustuna Betanæring? „Það er
tæpt ár síðan, ég byrjaði í mars
2012. Það hefur bara gengið mjög
vel og mér finnst spennandi að
takast á við það og gaman að sjá
þegar fólk sem leitar til mín nær
árangri.“
Hvað ráðleggurðu fólki sem leit-
ar til þín og vill breyta lífsstílnum?
„Það eru nokkur atriði sem mér
finnst að sem flestir ættu að reyna
að tileinka sér. Svona beisik hlutir
eins og að reyna að borða mikið af
grænmeti og ávöxtum á hverjum
degi. Borða fisk að minnsta kosti
tvisvar í viku og passa upp á fjöl-
breytnina í fæðinu. Hreyfingin
verður auðvitað líka að vera inni
í lífsstílnum hvort sem fólk er að
reyna að léttast eða ekki, hún er
alveg nauðsynleg. Það þarf bara
að finna sinn takt. Feillinn sem
margir gera er að reyna að taka
of stór skref í einu. Það er miklu
vænlegra til árangurs að breyta
mataræðinu smátt og smátt. Taka
HOLLUSTAN
RAUÐI
ÞRÁÐURINN
Í LÍFINU
Elísabet Margeirsdóttir er þekktust sem veður frétta-
maður á Stöð 2 en hún rekur líka næringarráðgjöf og
er ástríðufullur hlaupari sem stefnir á 168 kílómetra
fj allahlaup í haust. Hvernig stóð á því að hún gerði
hreyfi ngu og mataræði að uppistöðu í lífi sínu og
hvaða ráð á hún fyrir þá sem dreymir um að taka upp
hollari lífsstíl á nýju ári?
● 1 bolli vatn eða hreinn safi
● Hálft epli
● Hálf pera
● ¼ lítil lárpera
● ½ frosinn banani
● ½ bolli frosið mangó eða
ananas
● Fersk engiferrót eftir smekk
● Stór lúka af fersku eða frosnu
spínati
Allt sett í góðan blandara.
Græn orkubomba
Léttur morgunverður
eða millibiti
1 Taktu fá og auðveld skref í
einu í áttina að heilbrigðari
lífsstíl.
2 Finndu skemmtilega
líkams rækt og settu þér
raunhæf en krefj andi
markmið.
3 Borðaðu úr öllum fæðu-
fl okkunum daglega.
4 Kynntu þér réttar skammta-
stærðir.
5 Stjórnaðu blóðsykrinum og
hungrinu betur með hollum
millibitum.
RÁÐ TIL
AÐ BÆTA
LÍFSSTÍL5
kannski eina viku þar sem þú
sleppir sætindunum, það getur
gert heilmikið gagn. Næstu viku
er svo hægt að skipta út hvítu
hveiti fyrir annað grófara og forð-
ast mikið unna matvöru. Þannig
finnur fólk smátt og smátt eitt-
hvað sem hentar því og það á auð-
velt með að viðhalda. Svo er alltaf
hægt að gera betur með tímanum.
Ekki byrja á einhverju sem þú
veist innst inni að þú munt ekki
halda út. Finndu einhverja línu
sem þú getur hugsað þér að halda
við. Það sama gildir um hreyf-
inguna. Í fyrsta lagi þarf að finna
eitthvað sem hæfir viðkomandi
og byggja svo ofan á það. Fyrst og
fremst þarf fólk að þjálfa sig í því
að viðhalda þessum siðum þangað
til þeir verða að föstum venjum og
á endanum verður þú kominn með
hollari lífsstíl.“
Spurning um jafnvægi
Tók það þig langan tíma að breyta
lífsstílnum? „Já, ég held það hafi
tekið mig nokkur ár að finna þetta
jafnvægi. Það eru ákveðnir hlutir
sem maður breytir ekki út af en
svo er allt í lagi að svindla aðeins
inn á milli svo lengi sem maður
heldur sig við rauða þráðinn. Það
þarf bara að passa að ætla sér
ekki um of. Það er til dæmis ekk-
ert sniðugt að hafa bara einn alls-
herjar nammidag í viku og úða þá
í sig sælgæti og óhollustu í staðinn
fyrir að leyfa sér að borða nammi
í hófi þegar mann virkilega lang-
ar eða við sérstök tilefni. Það er
miklu erfiðara að borða ekkert
sælgæti daginn eftir ef þú leyfir
þér að fara yfir strikið í nammi-
átinu einn dag í viku. Þetta er allt
spurning um jafnvægi.“
Margir velta því kannski fyrir
sér hvernig á því standi að kona
með þína menntun skuli vinna
sem veðurfréttamaður, hvernig
kom það til? „Ég sótti um þetta
sumarstarf á meðan ég var að
klára lífefnafræðina. Krafan var
menntun í raungreinum á háskóla-
stigi en ég vissi svo sem ekkert
nákvæmlega hvað ég var að fara
út í. Fyrst og fremst er þetta auð-
vitað blaðamennska og framkoma
í sjónvarpi en ég fór í gegnum
undir búningstímabil áður en ég
byrjaði til að vera með öll grund-
vallaratriði á hreinu og mér fannst
það mjög áhugavert og spennandi.
Mig grunaði samt aldrei að ég yrði
svona lengi í þessu. Ég verð búin
að vera fimm ár á skjánum í júní
og mér finnst það mjög skemmti-
legt, býst við að halda áfram á
meðan ég hef gaman að því.“
Sérðu fyrir þér að þú viðhaldir
þessum lífsstíl það sem eftir er?
„Já, vonandi. Ég held það þurfi að
koma eitthvað mikið upp á til að
ég hætti því. Mér finnst það algjör
forréttindi að geta stundað mína
uppáhaldslíkamsrækt sem eru
hlaupin og haft svona gaman af
því. Það er algjörlega ómetanlegt.“
NÆRING OG HLAUP
Elísabet getur ekki
hugsað sér öðruvísi
lífsstíl.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Friðrika
Benónýsdóttir
fridrikab@frettabladid.is