Fréttablaðið - 12.01.2013, Page 38
12. janúar 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 38
Varstu ákveðinn í því að verða leik-stjóri strax á meðan þú varst í leikaranáminu? „Ég fann snemma út í leikaranáminu að ég er of mikil frekja til þess að það nægði mér. Mig langaði til þess að hafa
um allt að segja: búninga, texta, leikmynd,
ljós, og fannst það gaman. Var svo heppinn
að búa með annan fótinn í Berlín á þessum
tíma og sá þar mjög spennandi leikhús. Það
kveikti mikinn áhuga hjá mér og ég sá að
þegar maður er svona mikil frekja hentar
leikstjórnin manni betur og að sennilega
væri það eitthvað sem maður þyrfti að læra.
Sótti um í Statens Teaterskole í Kaupmanna-
höfn, komst inn og hef verið meira og minna
viðloðandi hann síðan og prófessor þar síðan
2005.“
Þú hefur alltaf bæði kennt og leikstýrt
til skiptis, hver er helsti munurinn á því
tvennu? „Þetta eru gjörólíkir heimar.
Heimur listamannsins sem leikstjóra í
atvinnuleikhúsi er svo síngjarn. Þar fjallar
allt um það hvaða hugmyndir ég hef, mína
sýn o.s.frv. sem er auðvitað að mörgu leyti
mjög gott og eins og það á að vera. En á
sama tíma er það alveg hrikalega óhollt því
þá er hætt við að maður verði svo síngjarn,
þannig að mér finnst mjög hollt að skipta
um umhverfi og hef alltaf gert það. Farið
að kenna til þess að láta „renna af mér“
eftir uppfærslu því kennslan er ósíngjörn
í eðli sínu. Hún fjallar um miðlun og að
nemandinn eigi að verða betri en þú, sem er
manni holl lexía. Í kennslunni er maður líka
að endurskilgreina fræðin og þannig þjálfa
þau, á meðan þú ert alltaf að nota þau í leik-
stjórninni. Það sem getur verið hættulegt
við það að vera sífellt að leikstýra er að þú
ert alltaf að nota sömu tækin, þau annað
hvort þreytast í höndunum á þér eða verða
þér svo daglegt brauð að þú gleymir hvað
það í raun er sem þú ert með í höndunum.
Leikhúsið er líka svo móðursjúkt í eðli sínu
og valkvætt. Maður á ákveðinn tíma þar
og svo er maður ekki nógu skemmtilegur
lengur, eða ekki nógu „hot“ eða að síðasta
sýning gekk ekki nógu vel eða hvað það nú
er. Leikhúsið er dyntótt og skammsýnt á
meðan skólarnir hugsa meira um framtíðina
og sjá miklu lengra. Ef við viljum sjá leik-
listina breytast og þroskast gerist það ekki
með einni og einni sýningu inni í leikhús-
unum. Það gerist í náminu og miðluninni
og skilar sér í því að það sviðslistafólk sem
kemur út hefur tileinkað sér aðrar leiðir. Það
er meginástæðan fyrir því að mér fannst
mjög mikilvægt að fara að kenna.“
Alls konar verk í ýmsum löndum
Þú hefur verið að leikstýra í Danmörku,
Þýskalandi, Svíþjóð, Finnlandi, Íslandi og
víðar. Er einhver munur á því að vinna í
þessum löndum? „Já, það er mjög ólíkt. Milli
þjóða er mikill munur, bæði á hinni svoköll-
uðu þjóðarsál og því hvernig leiklist er búin
til. Munurinn á þjóðarsálum smitast inn í
vinnulag og vinnusiðferði og hvernig það
sem sagt er í leiklistinni er sett fram. Það
sem er sammerkt með þessum þjóðum hins
vegar og hefur breyst síðan ég útskrifaðist
er að hin sterka hugmyndafræði frjáls-
hyggjunnar smitaðist inn í allt rekstrar-
fyrirkomulag leikhúsanna. Þetta varð okkur
dálítið sjokk og þessi krafa um hagnað af
miðasölu er oft erfið þegar við viljum vinna
á sérviskulegan hátt, á það sem við köllum
listrænan máta, þótt hitt sé auðvitað listrænt
líka. Samtímis þessari þróun á sér stað öflug
sprenging í öllum miðlum og hugmyndir um
það hvernig manneskjan er kynnt í listinni
gjörbreytast. Sjálfssköpunin verður ein-
kennilega tengd einhverjum markaðslög-
málum og einstaklingshyggju. Spurningin
sem leikhúsin á Norðurlöndunum og í Þýska-
landi, sem eru að mörgu leyti mjög framar-
lega á sínu sviði, standa frammi fyrir er:
hvernig kynnum við þennan nýja veruleika?
Það er á þessum tíma sem póstmódern-
isminn fer að verka mjög sterkt á leikhúsið
og það verða til ólíkar greinar innan þess,
leiksýning verður ekki lengur bundin við
dramað heldur verða til þessi brotakenndu
verk sem gjarna byggja á beinum sam-
skiptum við samfélagið. Gerast kannski ekki
einu sinni í leikhúsinu lengur heldur eru
bundin við ákveðna staði, það sem kallast
„site-specific“ leiksýningar. Maður er ekki
lengur að búa til heildstætt verk heldur fer
að glíma við ákveðið þema.
Ég bjó til dæmis til kvintett af verkum
sem hverfast um spurninguna: hvers lags
geðheilsu býr hin vestræna Evrópa yfir?
Við fórum að nota vestræna hugmynda-
fræði til að laga geðheilsu okkar og það
gekk náttúrulega bara verr og verr. Annað
verk kallaðist Democrazy og byggir á hroll-
vekju Fukuyama um að nú sé kominn endir
Leikhúsið er líka svo móður-
sjúkt í eðli sínu og valkvætt.
Maður á ákveðinn tíma þar og svo
er maður ekki nógu skemmtilegur
lengur, eða ekki nógu „hot“ …
Of mikil frekja til að verða leikari
Egill Heiðar Anton Pálsson er einn okkar best menntaði og víðförlasti sviðslistamaður. Hann hefur starfað sem leikstjóri víða um
Evrópu, er prófessor í leikstjórn við Statens Teaterskole í Kaupmannahöfn, kennir við Listaháskóla Íslands og leikstýrði eigin leikgerð
af kvikmynd eft ir Kaurismäki hjá LA í haust. Hann er nú í Berlín að setja upp sýningu sem tengist matarást Leonardos da Vinci.
LEIKSTJÓRINN
Egill Heiðar
er floginn til
Berlínar þar sem
hann setur upp
verk Argentínu-
mannsins
Rodrigos García,
Eldhúsráð, sem
meðal annars
sækir innblástur
í matreiðslubók
sem sögð var vera
eftir Leonardo da
Vinci.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Friðrika
Benónýsdóttir
fridrikab@frettabladid.is
Ferill Egils Heiðars í grófum dráttum
Útskrifast
sem leikari úr
Leiklistarskóla
Íslands
Útskrifast
sem leikstjóri
úr Statens
Teaterskole í
Kaupmanna-
höfn
Prófessor
í leiktúlkun
við LHÍ
Hættir sem
prófessor
í leiktúlkun
við LHÍ
Prófessor á
leikstjórnar-
braut Statens
Teaterskole í
Kaupmanna-
höfn
HELSTU UPPSETNINGAR
Arabíska nóttin Stockholms Stadtsteater
Electronic City Viirus Teatteri Helsinki
Invasion Nationaltheater Mannheim
Galskab Det Kongelige Teater København
Hunger Gøteborgs Stadsteater
Bogtyven Det Kongelige Teater København
Estemand Cassavetes Nationaltheater Mannheim
Kellermensch Schaubühne Berlin
Cassavetes 1.2.3. Mammut Teater København
Die Tiefe Schaubühne Berlin
tímans, baráttunni sé lokið og við höfum
fundið að markaðslýðræðið er það sem koma
skal. Þessi kvintett hélt svo áfram í Mind
Camp hér á Íslandi þar sem við gerðum til-
raun til að skoða tilveru manneskjunnar
sem eingöngu skilgreinir sig út frá neyslu
sinni og yfirborðskenndum hlutum eins og
stjörnuspeki og raunveruleikasjónvarpi.
Svo gerðum við verk sem heitir Hungur og
var sett upp í Gautaborg þar sem við veltum
fyrir okkur hvað það sé sem okkur hungrar
eftir í dag. Öll þessi verk urðu til á æfinga-
tímabilinu, svokölluð samsett verk, og sum
„site-specific“ eins og Pretty Woman sem
við settum upp með vændiskonum á Isted-
gade. Þar settum við upp lítið leikhús þar
sem áhorfendur hittu vændiskonur sem voru
að reyna að komast í spor vændiskonunnar í
myndinni frægu Pretty Woman, sem er víst
ein vinsælasta kvikmynd kvikmyndasög-
unnar, svo ótrúlegt sem það nú er. Ég setti
líka upp töluvert af nýjum leikritum eftir
áhugaverða höfunda, en hef í seinni tíð verið
að færa mig meira í átt að dramatísku leik-
skáldunum; setti upp Tékov og svo Strind-
berg hérna í LHÍ um daginn. Annar angi af
minni vinnu tengist uppáhaldskvikmyndum
mínum og kvikmyndaleikstjórum og ég hef
til dæmis gert fjórar uppsetningar af kvik-
myndum Johns Cassavetes um manneskj-
urnar, einmanaleikann og þrá okkar eftir
ást. Af sama meiði er uppsetningin á I Hired
a Contract Killer eftir Aki Kaurismäki sem
ég setti upp hjá L.A. í haust undir nafninu
Leigumorðinginn.“
Dugleg að pikka upp strauma
Þú kemur eiginlega sem gestur inn í
íslenskan leikhúsheim annað slagið, hvernig
finnst þér hann standa í samanburði við hin
löndin sem þú vinnur í? „Við erum náttúr-
lega enn þá að glíma við afleiðingar þess að
hafa verið nýlenda þannig að minnimáttar-
kenndin er gríðarleg og þegar hún grípur
okkur tökum við heljarstökk og dettum
| 1999 | 2002 | 2004 | 2005 | 2008