Fréttablaðið - 12.01.2013, Page 76

Fréttablaðið - 12.01.2013, Page 76
12. janúar 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 44 Sigríður Björg Tómasdóttir | sigridur@frettabladid.is Á skíðum skemmti ég mér Árstími skíðaiðkunar er runninn upp og þó að enn sem komið er hafi íbúar höfuðborgarsvæðisins ekki geta farið oft á skíði í Bláfjöllum í vetur er vonast eftir því að veður leyfi opnun um helgina. Skíðasvæði fyrir norðan, vestan og austan voru öll opin í gær og gott útlit um helgina. Þrír valinkunnir skíða- og brettagarpar segja hér frá vetrarsportinu sínu. Í BLÁ FJÖLLUM Skíða- og brettafólk í brekkunum í Bláfjöllum á góðum degi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Gott nesti er lykilatriði þegar farið er í skíðaferð en það þarf alls ekki að vera flókið. Heitt kakó á brúsa er nauðsynlegt og samloka sömuleiðis. Hér getur ráðið úrslitum að fara í bakaríið áður en lagt er af stað, kaupa uppáhaldsbrauðið en skera hnausþykkar sneiðar sjálfur heima við. Setja nóg af smjöri og þykkar ostsneiðar eða annað álegg að smekk. Kakó og brauð Notað eða nýtt? Á helstu skíðasvæðum landsins er hægt að leigja sér skíðagræjur. Sem dæmi um verð má nefna að leiga á græjum einn dag í Blá- fjöllum fyrir fullorðinn er 4.500 krónur en 3.700 í Hlíðarfjalli. Þeir sem ætla að kaupa græjur ættu að gera verðsamanburð. Samkvæmt óformlegri könnun á verði kosta ný barnaskíði með bindingum og skóm um 30.000 krónur. Skíðapakka (skíði, bindingar, skó og stafi) fyrir fullorðna er hægt að fá frá 70.000 krónum. Gönguskíði fyrir brautir má fá frá 45.000 krónum en utanbrautar- skíði eru dýrari, kosta frá 80.000 krónum. Brettapakkar eru svo frá 70.000 krónum. Það getur verið skynsamlegast að fjárfesta í notuðum skíðagræjum en þær eru yfirleitt um helmingi ódýrari hið minnsta. Skíðakennsla Á flestum skíðasvæðum er boðið upp á kennslu á bæði skíðum, brettum og jafnvel gönguskíðum. Upplýsingar má finna á síðunni skidasvaedi.is. Haldið til fjalla Ég er fædd og uppalin á Grundarfirði og þar kenndi mamma mér á skíði og í minn- ingunni var ég á skíðum meira og minna allan veturinn. Fór á skíðum í skólann, fór svo upp í fjall eftir skóla og var þar allan daginn þangað til lyftunni var lokað, þá labbaði ég lengra upp í fjallið og renndi mér heim. Ég náði fljótt góðum tökum á skíðunum og skíði hafa alltaf verið mín uppáhaldsíþrótt og eina íþróttin sem ég hef haldist eitthvað við,“ segir Þórhildur Ólafsdóttir. Þórhildur flutti til Akureyrar fyrir tveimur árum og segir það hafa heillað sig mjög hversu auðvelt er að stunda skíði fyrir norðan. „Það er svo auðvelt að skjótast í fjallið og gott að geta farið eftir vinnu. Ég er með vetrarkort í Hlíðarfjall og reyni að fara sem oftast.“ Hlíðarfjall er í mestum metum hjá Þórhildi af skíðasvæðum innanlands en hún hefur einnig farið í skíðaferðir til útlanda. „Skíðaferðir eru ein mesta dekurútlandaferð sem hægt er að komast í. Við erum öll fjölskyldan í þessu og það er hreinlega æðislegt að geta verið heilan dag í mörgum fjöllum,“ segir Þórhildur sem hefur ekki látið nokkur óhöpp í gegnum tíðina stöðva sig. „Ég hef slasast á hné og oft dottið og fengið myndarlegustu marbletti en kippi mér ekki upp við það.“ Þórhildur er nýfarin að læra á gönguskíði sem hún segir spennandi en brettaiðkun hefur hún að mestu látið vera. „Ég mæli sterklega með því að fólk finni sér einhverja leið til að renna sér á snjó, það er bara svo skemmtilegt.“ ➜ Þórhildur Ólafsdóttir skíðaði heim úr skólanum „Ég sá skíðagöngukeppni í sjónvarpinu og fór í kjölfarið og keypti mér gönguskíði og æddi svo af stað. Það gekk nú ekki sérlega vel en áhuginn var kviknaður og ég hef stundað gönguskíði eingöngu síðan. Þetta var um 1970,“ segir Þóroddur F. Þóroddsson gönguskíðagarpur. Hann vill veg gönguskíðamennsku sem mestan á Íslandi og tók sig til ásamt fleiri áhugasömum skíðaiðkendum fyrir nokkrum árum og stofnaði skíðagönguklúbbinn Ull. „Félagið hefur verið mikil lyftistöng fyrir gönguskíðamennsku á Íslandi. Við stöndum reglulega fyrir stuttum námskeiðum til að koma fólki af stað og núna eru um 70 manns á biðlista eftir að komast að á námskeiðin okkar. Það hefur líka bætt hag okkar að við erum komin með skála í Bláfjöllum og eigum skíði til útleigu,” segir Þóroddur. Spurður hvað heilli mest við gönguskíðin segir Þóroddur það vera hversu holl og góð hreyfing það sé að vera á gönguskíðum. „Gönguskíði eru mikil og góð hreyfing og frábært fjölskyldusport sem hægt er að stunda á troðnum brautum en líka utan þeirra. Þeir sem eru á gönguskíðum með stál- köntum geta gengið utan brauta en hefðbundin gönguskíði henta best á brautum. Göngubrautir eru víða lagðar við skíðasvæði, það er auðvelt að leggja gönguskíðaspor og þau auðvelda skíðamönnum sannarlega leikinn. Til dæmis mætti að ósekju leggja spor á orlofshúsasvæðum um landið.“ Hvert er svo uppáhaldsskíðasvæðið? „Bláfjallasvæðið er eitt besta gönguskíðasvæði landsins. Þar er hægt að leggja endalaus spor en vilji maður vera utan brauta er hægt að ganga niður í Grindar- skörð eða fara á Heiðina háu, þetta er frábært svæði.“ ➜ Þóroddur F. Þóroddsson hefur gengið á skíðum í yfir 40 ár Linda Sumarliðadóttir tók snjóbretti fram yfir skíði um leið og hún hafði prófað brettið. „Ég var á skíðum þegar ég var lítil og langaði til að prófa bretti. Um leið og ég gerði það fannst mér það henta mér betur, vera skemmtilegra og bjóða upp á meira frjálsræði.“ Linda segir eitt það skemmtilegasta við brettasportið vera félags- skapinn. „Ég er búin að kynnast ótrúlega mörgum í þessu sporti og það hefur alltaf verið mjög góður andi á meðal brettafólksins. Ég fíla það mjög vel.“ Linda, sem er formaður Brettafélags Íslands, lætur snjóleysi sunnanlands ekki stöðva sig þegar það á við og fer norður oft yfir veturinn. „Ég er nú þegar búin að fara tvisvar og er að fara nú um helgina, ég tel það ekkert eftir mér. Ég skíða líka eins lengi og hægt er fram eftir vori og sumri, hef farið á bretti í júlí bæði á Snæfellsjökul og í Kerlingarfjöll.“ Siglufjörður er í uppáhaldi hjá Lindu. „Ég held upp á Siglufjörð því það er svo flott svæði, mikið af hengjum og auðvelt að komast í fyrsta flokks aðstæður í utanbrautarrennsli.“ ➜ Linda Sumarliðadóttir fílaði félagsskapinn á brettunum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.