Fréttablaðið - 16.12.2015, Blaðsíða 54
Mozart við kertaljós
Styrkt af Tónlistarsjóði Menntamálaráðuneytisins, Reykjvíkurborg, Hafnarfjarðarbæ, Kópavogsbæ og Garðabæ
Miðasala við innganginn, miðaverð kr. 2.500 / 1.500
Camerarctica
Mozart by candlelight
Kammertónlist á aðventu 2015
Hafnarfjarðarkirkju laugardag 19. des. kl 21.00
Kópavogskirkju sunnudag 20. des. kl 21.00
Garðakirkju mánudag 21. des. kl 21.00.
Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudag 22. des. kl 21.00
Óvenjulegt og ævintýralegt lífs-
hlaup hefur ósjaldan ratað í ævi-
sögur. Oftar en ekki er þó um að
ræða frásögur þekktra stórmenna,
karlanna sem skrifa söguna, en
Munaðarleysinginn, örlagasaga
Matthíasar Bergssonar, er ekki
þannig saga. Matthías er alþýðu-
maður með þunga og erfiða æsku
án baklands og móðurástar á
sínum mótunarárum og það var
meðal þess sem heillaði Sigmund
Erni Rúnarsson sem skráði sögu
Matthíasar.
Venjulegur alþýðumaður í óvenjulegum aðstæðum
Munaðarleysinginn, örlagasaga Matthíasar Bergssonar, var skráð af Sigmundi Erni Rúnarssyni og hann
segir Matthías eiginlega vera Forrest Gump Íslands enda á hann að baki fádæma litríkt lífshlaup.
Móðurástin
Sigmundur segist hafa frétt af þess-
um manni og ekki trúað hálfu af því
sem hann hafi sagt. „Í raun ekki fyrr
en hann leiddi okkur sjálfur í allan
sannleika um hvernig ævi hann
hefði lifað. Matthías kom hingað til
lands fyrir þremur árum eftir fjöru-
tíu og fimm ára rússíbanareið um
allan heim, hafandi verið í Ástralíu,
Japan, Havaí og um þver og endilöng
Bandaríkin þar sem hann var meðal
annars í bandaríska hernum og lenti
í ótal ævintýrum.
En það sem heillaði mig mest var
þessi dramatíski hluti ævisögunnar.
Þetta er eiginlega samfelldur óður til
móðurástarinnar sem mér sýndist
eftir að ég var búinn að skrifa bók-
ina að sé kannski sterkasta kenndin í
okkur. Ef maður tapar móður sinni á
unga aldri þá reynir maður að finna
hana í öllum konum sem verða á vegi
manns. Það var raunin hjá Matthíasi
því hann sá ekki mömmu sína í tíu
ár, frá því var hann sjö til sautján ára,
þessi mótunarár sem eru einhver
viðkvæmasti aldur lífsins. Þannig að
þessi bók er annars vegar gríðarleg
dramatík og hins vegar ótrúlegt
ævintýri. Og ég held að þessi bók
standi undir nafni með að þarna sé
Forrest Gump Íslands á ferð.
Einlægni og heiðarleiki
Matthías var einhvern veginn alltaf
á réttum stað á réttum tíma innan
um frægasta fólkið. Og fylgir í raun
mannkyns- og Íslandssögunni með
fremur augljósum hætti. Hann jafn-
vel lendir í því þegar hann lendir í
Keflavík, í eitt af þessum örfáu skipt-
um sem hann kom hingað á þessum
útvistarárum, að eitt það fyrsta sem
hann gerir eftir að hann er kominn
út í bíl er að bílnum er ekið yfir á
hægri akrein. Þannig að hann hitti
á daginn þegar við vorum að breyta
umferðinni. Þetta er á einhvern hátt
alveg dæmigert fyrir kallinn.
En svo þar sem mér þykir svo
vænt um hann þá vil ég segja að
þetta er þessi venjulegi alþýðu-
maður sem lenti svo oft í óvenju-
legum aðstæðum. Það eru að mörgu
leyti skemmtilegustu ævisögurnar
sem eru að verða til í dag. Þessi
hefðbundna viðtalsbók við fræga
manninn er soldið að fjara út því við
vitum orðið allt um þann mann sem
heldur alltaf ákveðnum fronti að
okkur. En svona fólk, það þarf ekki
að halda neinum fronti að okkur,
það bara opnar hjarta sitt og segir
sína sögu.“
Sigmundur Ernir segir að það
leyni sér ekki á viðtökunum að það
sé í seinni tíð miklu meiri áhugi
á alþýðufólki. „Ég tók sérstaklega
eftir því eftir hrun haustið 2008
þegar ég sendi frá mér bókina um
Magneu, algjörlega óþekkta konu.
Þessi bók seldist í bílförmum því
fólk var kannski búið að fá nóg af
þessari upphafningu og stærilæti.
Vildi bara kynnast venjulegu fólki
og þráði einlægni og heiðarleika.“
Kvennasaga og æskuástin
Sigmundur Ernir hefur á orði að
það hafi verið sérstakt og skemmti-
legt ferli að skrifa bókina um
Matthías. „Hann býr á Patreksfirði
þar sem hann komst til manns eftir
að hann fann pabba sinn. Þannig
að ég fór vestur og það var dásam-
legt að vera þar í þeim fjallasal og
svo tók ég mig til og fór til Banda-
ríkjanna til þess að skrifa því sagan
gerist líka þar að miklu leyti. En það
var bara svo gaman að skrifa þessa
bók. Það er misjafnlega gaman að
skrifa en þarna var maður bara slá-
andi sér á lær og skellihlæjandi við
skriftirnar. Það er líka svo gaman að
skrifa sögu venjulega fóksins.
Það kemur mörgum á óvart að
þetta er mikil kvennasaga, en ég
hef verið talsvert í því síðustu ár
að skrásetja sögur kvenna, en það
er vegna þess að Matthías er alltaf
að leita að mömmu sinni í öllum
konum. Mér finnst mjög gaman að
færa þann hluta Íslandssögunnar
til bókar því sú saga sem mín kyn-
slóð lærði var bara mynd af kalli
með yfirvaraskegg og bindi og
hann réð alveg rosalega miklu. En
það hefur alltaf gleymst að skrifa
stærsta hluta Íslandssögunnar sem
er drifinn áfram af konum. Konum
sem sáu um samfélagið, uppeldi
kennslu og heimilin og voru límið
í samfélaginu. Þannig finnst mér
Íslandssagan kolvitlaust skráð.
Þannig var það líka kona, æsku-
ástin, sem dró Matthías aftur hingað
heim. Málið var að rétt í þann mund
sem hann fann mömmu sína úti í
Bandaríkjunum þá er hann búinn
að kynnast æskuástinni og verður
að velja á milli æskuástarinnar og
móðurástarinnar. Hann var búinn
að leita svo lengi að móðurástinni
að hann valdi hana. Fjörutíu og
fimm árum seinna þegar hann
er búinn að fara um hæstu hæðir
og dimmustu dali, er illa farinn af
læknadópi, drykkju og neyslu og
dóttir hans búin að taka hann heim
til sín og reyna að koma honum
aftur til manns, þá dregur enn til
tíðinda. Hann sér á Face book, sem
hann vissi ekki einu sinni að væri
til, nafn Heiðu, konunnar sem
hann hafði leitt um ástar lund fyrir
tæplega hálfri öld. Þau byrja að tala
saman og það kemur í ljós að hún er
orðin ekkja og þau eru saman í dag.
Þetta er magnað.“
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Sigmundur Ernir Rúnarsson rithöfundur hafði ákaflega gaman af því að skrásetja
sögu Matthíasar Bergssonar. FRéttaBlaðið/StEFán
Matthías í herþjálfun fyrir Víetnam
1969.
Skipstjóri á humarveiðum við Havaí
1985.
Matthías árið 2012, að byrja að fikra sig upp frá botninum í lífi sínu.
1 6 . d e s e m b e r 2 0 1 5 m I Ð V I K U d A G U r34 m e n n I n G ∙ F r É T T A b L A Ð I Ð
menning