Fréttablaðið - 16.12.2015, Blaðsíða 68
staldri hér við
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Miklar líkur eru á því að stórstjarnan Justin Bieber muni dvelja nokkuð lengi hér á landi, í
kringum fyrirhugaða tónleika hans
9. september á næsta ári. Þegar dag-
setningar á tónleikaferðalagi hans
eru skoðaðar kemur í ljós að langur
tími líður frá tónleikum hans í
Kórnum og þeirra næstu á eftir, sem
verða í Berlín. Eftir þá tónleika tekur
við tæplega tveggja mánaða keyrsla
á milli evrópskra borga, þar sem
sjaldan líða meira en tveir dagar á
milli tónleika.
Bieber er þekktur fyrir að æfa af
krafti fyrir tónleika sína. Samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins hefur
Kórinn verið leigður út í lengri tíma
en þegar Justin Timberlake heim-
sótti Ísland í fyrra.
Sölupunktur
Samkvæmt heimildum Fréttablaðs-
ins er hluti af sölupunkti íslenskra
tónleikahaldara, að tónlistarmenn
geti staldrað lengur hér á landi en
annars staðar og fengi góða aðstöðu
til æfinga. Þetta var meðal annars
fyrirkomulagið þegar bandaríska
stórsveitin Eagles kom hingað til
landsins 2011. Þá gátu meðlimir
sveitarinnar æft í Laugardalshöll-
inni í nokkra daga, þar sem tónleik-
arnir fóru svo fram. Þetta er eftir-
sóknarvert fyrir tónlistarmenn; að
fá að æfa í höllum og leikvöngum,
þar sem búið er að setja allar þær
græjur upp sem nota á við tónleika-
haldið. Erlendis getur reynst erfitt
að bjóða upp á slíkt fyrirkomulag,
sökum þess hve mikil ásókn er í tón-
leikahallir stórborganna.
Æfir vel
Bieber er þekktur fyrir að leggja
mikið upp úr því að æfa vel fyrir
tónleika sína. Tónleikaferðalagið á
næsta ári, sem hann kallar Purpose
World Tour, hefst í Bandaríkjunum
í mars og mun Bieber ferðast um
landið þvert og endilangt þar til í júlí.
Þá tekur hann sér gott frí og byrjar
svo aftur í Kópavogi í september.
Þetta verður fyrsta tónleikaferða-
lag Biebers síðan 2013, en þá var
hann á hinum svokallaða Believe-
túr. Hann hófst í Glendale í Banda-
ríkjunum og æfði Bieber stíft í höll-
inni þar í borg fyrir tónleikana. Hann
tók þrjú rennsli á tónleikunum, með
öllu tilheyrandi, síðustu tvo sólar-
hringana áður en hann steig á svið
fyrir framan áhorfendur. Eins og
frægt er orðið kastaði stjarnan upp
á þeim tónleikum, en kláraði þá af
krafti. Sumir röktu magakveisuna til
álags og því er líklegt að stjarnan taki
sér meiri tíma í rennslin fyrir þetta
tónleikaferðalag.
Kórinn bókaður
Ekki hefur tekist að staðfesta það
fyllilega að Bieber ætli að dvelja
hér á landi í góðan tíma fyrir og
eftir tónleikana, en þó hefur heyrst
sterkur orðrómur þess efnis. Talið er
að Bieber muni nýta sér aðstöðuna
í Kórnum og æfa vel áður en haldið
verður til meginlands Evrópu. Bók-
anir á Kórnum renna stoðum undir
það, en samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins er gert ráð fyrir lengri
leigutíma á húsnæðinu en þegar
Justin Timberlake kom hingað til
lands. Dagsetningar á tónleikum
Biebers í Evrópu og annáluð aðdáun
hans á landinu rennir stoðum undir
orðróminn. En eins og frægt er kom
Bieber í heimsókn hingað til lands
í sumar og tók upp myndband hér
á landi.
Poppstjarnan heldur tónleika hér á landi í september. Kórinn hefur
verið leigður út í lengri tíma en þegar Timberlake tróð upp í fyrra.
Justin Bieber treður upp
í tólf borgum í Evrópu
1 9. september Kópavogur
2 14. september Berlín
3 16. septemberMünchen
4 18. septemberKöln
5 20. septemberParís
6 23. og 24. september Ósló
7 26. september Helsinki
8 29. september Stokkhólm
9 2. október Kaupmannahöfn
10 5. og 6. októberAntwerpen
11 8 októberArnhem
12 11. og 12. októberLondon
Líkur á aðBieber
PurPosE-túrinn Er þriðJa
tónLEikafErð BiEBErs. Hinar
fyrri nEfndust urBan
BEHaviour árið 2009, My
WorLd tour, frá 2010 tiL 2011
og BELiEvE frá 2012 tiL 2013.
tónLEikafErðin Er
nEfnd í Höfuðið á fJórðu
BrEiðskífu BiEBErs.
saMtaLs Mun söngvar-
inn koMa fraM á 97 tón-
LEikuM á tónLEikafErðinni.
Kjartan Atli
Kjartansson
kjartanatli@frettabladid.is
1 6 . d e s e m b e r 2 0 1 5 m I Ð V I K U d A G U r48 L í f I Ð ∙ f r É T T A b L A Ð I Ð
1
2
3
4
5
6
78
9
10
11
12
HORFÐU
Í GÆÐIN
5 ÁRA ÁBYRGÐ Á ÖLLUM
SONY SJÓNVÖRPUM
Nýherji / Borgartúni 37
Kaupangi Akureyri
netverslun.is
W8
Afburðahönnun og frábær myndgæði
frá meisturum Sony
43" – Verð: 149.990 kr.
50" – Tilboðsverð: 179.990 kr.
55" – Tilboðsverð: 209.990 kr.
X8
W85
Sjáðu stærstu myndina í snjallasta
sjónvarpinu
65" – Verð: 369.990 kr.
75" – Verð: 569.990 kr.
4K Ultra HD upplausn, sjáðu hvert
smáatriði í nýju ljósi
43" – Verð: 199.990 kr.
49" – Tilboðsverð: 219.988 kr.
55" – Tilboðsverð: 279.990 kr.