Fréttablaðið - 16.12.2015, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 16.12.2015, Blaðsíða 42
MARKAÐURINN SVIPMYND INGÞÓR KARL EIRÍKSSON Ingþór Karl Eiríksson var á dög- unum skipaður í embætti fjársýslu- stjóra til fimm ára. Hann tekur við starfinu 1. janúar næstkomandi. Hann segir starfið leggjast mjög vel í sig. „Þetta er lykilstofnun á sviði opinberra fjármála og spennandi verkefni að fara að takast á við,“ segir Ingþór. Fjársýsla ríkisins er lykilaðili í fjárstjórn og rekstri ríkisins. Hlut- verk hennar er að stuðla að hag- kvæmri og árangursríkri starfsemi ríkisins með samhæfingu fjármála- stjórnar og þjónustu við ríkisaðila. Stofnunin samræmir reikningsskil ríkisaðila, tryggir tímanlegar og áreiðanlegar upplýsingar um fjár- mál og starfsemi ríkisins og stuðlar að öruggri og skilvirkri greiðslu- miðlun ríkissjóðs. Hún annast þróun og rekstur sameiginlegra upplýsingakerfa ríkisins á sviði fjár- og mannauðsmála. Ingþór Karl lauk cand. oecon.- prófi af fjármálasviði viðskipta- deildar Háskóla Íslands árið 1998 og M.Sc.-gráðu í fjármálum fyrir- tækja frá sama skóla árið 2012. Síðastliðin sjö ár hefur hann starfað sem sérfræðingur á skrif- stofu stjórnunar og umbóta í fjár- mála- og efnahagsráðuneyti. Þar hefur hann verið tengiliður ráðu- neytisins við Fjársýslu ríkisins og hefur borið ábyrgð á helstu mála- flokkum stofnunarinnar fyrir hönd ráðuneytisins. „Ég er því í sama umhverfi, en Fjársýslan er sjálfstæð stofnun sem heyrir undir ráðu- neytið,“ segir Ingþór. Áður starfaði Ingþór Karl sem fjármálastjóri SMI ehf., sem sér- fræðingur í fjárhagsdeild hjá Íslandsbanka, sem sérfræðingur í fjárhagsdeild og deildarstjóri fjár- reiðudeildar hjá Eimskipafélagi Íslands ehf. og deildarstjóri fjár- hagsdeildar Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur. Ingþór er kvæntur Lísu Björk Óskarsdóttur, rekstrarstjóra hjá ÍSAM, og eiga þau tvö börn. Utan vinnunnar segir Ingþór helsta málið vera samveru með vinum og fjölskyldu. „Þegar frítími gefst stunda ég aðallega útivist með fjölskyldunni. Við ferðumst og stundum skíði og stangveiði, og svo hef ég aðeins verið að reyna að koma mér af stað í golfi,“ segir Ingþór. Hann segir engin sérstök svæði standa upp úr í veiðinni. „Ég reyni bara að stunda bæði laxveiði og silungsveiði.“ Fjölskyldan hefur stundað skíði á Akureyri í vetrarfrí- um barnanna og svo farið í Bláfjöll. Ingþór tekur ekki við starfinu fyrr en á nýju ári. „Fram að því er verið að fara yfir mín verkefni með yfirmönnum mínum, loka því sem hægt er að loka og finna öðrum verkefnum farveg innan ráðuneyt- isins og fara yfir það hvernig þeim verður best fyrirkomið,“ segir Ing- þór. saeunn@frettabladid.is Nýtur stangveiða og að skíða Ingþór Karl Eiríksson tekur við embætti fjársýslustjóra þann 1. janúar næstkomandi. Hann hefur starfað hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu síðustu sjö ár sem sérfræðingur og verið tengiliður við Fjársýsluna. Utan vinnu stundar hann skíði og stangveiði með fjölskyldunni og er að reyna að koma sér af stað í golfinu. Ingþór Karl Eiríksson hefur starfað hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu síðustu sjö ár. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Guðrún Agnes Þorsteinsdóttir hefur verið skipuð formaður nýrrar úrskurðarnefndar velferðarmála til fimm ára. Nefndin tekur til starfa 1. janúar næstkomandi. Guðrún Agnes verður jafnframt forstöðumaður úrskurðarnefndar- innar. Guðrún Agnes lauk lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands árið 1991. Hún hefur frá árinu 2008 verið fram- kvæmdastjóri úrskurðarnefndar almannatrygginga. – sg Skipuð yfir úrskurðarnefnd velferðarmála Kristín Pétursdóttir hefur verið ráðin forstjóri upplýsingatækni- fyrirtækisins Mentors ehf. og tekur hún til starfa í janúar 2016. Kristín Pétursdóttir er annar stofnenda og fyrrverandi forstjóri Auðar Capital. Kristín var aðstoð- arforstjóri hjá Kaupþingi Singer & Friedlander í London árin 2005- 2006 og framkvæmdastjóri fjár- stýringar Kaupþings frá 1997-2005. Kristín er hagfræðingur frá Háskóla Íslands og með mastersgráðu í alþjóðaviðskiptum frá Handels- höyskolen í Bergen. – sg Í stól forstjóra hjá Mentor GUÐRÚN AGNES ÞORSTEINSDÓTTIR KRISTÍN PÉTURSDÓTTIR ÞRÖSTUR EYSTEINSSON Þröstur Eysteinsson hefur verið skipaður skógræktarstjóri til fimm ára frá 1. janúar næstkomandi. Þröstur hefur frá árinu 2003 starfað sem sviðsstjóri Þjóðskóganna hjá Skógrækt ríkisins. Þröstur lauk doktorsprófi í skógarauðlindum frá háskólanum í Maine í Bandaríkj- unum og meistaragráðu í skógfræði frá sama skóla. Áður en hann tók við stöðu sviðsstjóra Þjóðskóganna starfaði hann sem fagmálastjóri Skógræktar ríkisins. – sg Skógræktarstjóri um áramótin George Lucas, skapari Star Wars, er einn auðugasti maður í Holly- wood. Hann hefur hagnast gríðar- lega á Star Wars þar sem hann samdi við Fox-myndverið á sínum tíma um að þiggja lægri laun fyrir leikstjórn fyrstu myndarinnar gegn því að eignast allar fram- haldsmyndirnar og réttinn á öllu tengdu efni. Síðan þá hafa heildartekjur alls þess sem tengt er Star Wars numið um 3.700 milljörðum króna. Þetta var meðal þess sem kom fram í máli Björns Bergs Gunnarssonar, fræðslustjóra VÍB, á fundi um fjár- mál Star Wars í gær. Fram kom á fundinum að árið 2012 keypti Disney Lucasfilm (þar með talið Star Wars) af George Lucas á um 530 milljarða íslenskra króna, sem er ekki fjarri eignar- hlut lífeyrissjóðanna á íslenskum hlutabréfamarkaði, eða um þriðj- ungur landsframleiðslu Íslands. Það kemur ef til vill sumum á óvart að 46 prósent af tekjum af Star Wars koma úr leikfanga- sölu, en einungis 12 prósent úr miðasölu í kvikmyndahúsum. 19 prósent af tekjum koma frá VHS- og DVD-sölu, og 12 prósent frá tölvuleikjum. Nýjasti kaflinn í Star Wars seríunni, Star Wars: The Force Awakens er væntanleg í kvikmyndahús hér á landi í vik- unni. Áætlaðar tekjur af Star Wars árið 2016 eru svipaðar fjárlögum íslenska ríkisins. Disney sér mikla möguleika í Star Wars. Hafist verður handa við smíði tveggja gríðarstórra skemmtigarða árið 2016 (í Flórída og Kaliforníu) og næstu sex árin kemur út að minnsta kosti ein mynd á ári. Ef allt gengur upp er áætlað að heildartekjur Star Wars verði yfir 3.000 milljarðar króna, en Disney fær þó að sjálfsögðu ekki allt í vasann. – sg Tekjur af Star Wars svipaðar tekjum íslenska ríkisins 530 milljarða króna fékk George Lucas fyrir Lucasfilm 1 6 . D E S E M B E R 2 0 1 5 M I Ð V I K U D A G U R8
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.