Fréttablaðið - 17.03.2016, Blaðsíða 70
ég fattaði fyrir löngu, alveg tuttugu
árum, en þá var enginn vettvangur til
að koma þessu frá sér. Þetta er margt
sem er bara fast í hausnum á manni
síðan í gamla daga. Mér dettur alltaf
eitthvað hug á hverjum degi,“ segir
hann.
Pétur hvetur fólk til þess að taka
þátt í gríninu og segist sjálfur nota
grínið til þess að gera lífið skemmti-
legra. „Mín kenning hefur alltaf verið
að grín þurfi ekkert að vera það fynd-
ið, sérstaklega á vettvangi þar sem
fólk býst ekki við gríni. Einu sinni
fór ég í lúgusjoppu, og spurði: „Hvað
kostar Vikan hjá þér?“ sem er blað
eins flestir vita og starfsmaður nefndi
eitthvert verð og ég svaraði þá: „Á ég
þá ekki bara að sækja þig eftir vinnu?“
Afgreiðslustúlkan grenjaði úr hlátri,
þannig að þetta er dæmi um grín á
vettvangi þar sem fólk býst ekki við
því,“ útskýrir Pétur léttur í lundu.
gunnarleo@frettabladid.is
„Það má segja að síðan hafi sprungið
út þegar að Jónsa-brandarinn fór í
loftið. Meðlimafjöldinn fór úr sirka
500 og í 1.900 og eitthvað á einum
mánuði eftir að brandarinn fór í loft-
ið,“ segir Pétur Sveinsson, stofnandi
Facebook-hópsins Myndskrítlu-
félagsins.
Um er að ræða Facebook-hóp þar
sem fólk birtir hinar ýmsu mynd-
skrítlur, sem einkennast gjarnan af
svokölluðu orðagríni með mynda-
spaugi. Þó svo að síðan hafi verið
stofnuð árið 2014 hefur hún hingað
til farið frekar hljótt en eins og fyrr
segir kveikti ein myndskrítlan neista
og hefur meðlimum hópsins fjölgað
svo um munar.
Ein af ástæðunum fyrir því að Pétur
stofnaði hópinn er sú að hann var
settur í nokkurs konar brandarabann
í öðrum vinsælum Facebook-brand-
arahóp. „Ég byrjaði að setja eitt og
eitt myndband inn á mína eigin síðu
og fólk tók alveg vel í það. Svo fór ég
að gera einn og einn myndabrandara
og fór að taka eftir því að fólki fannst
betra að fá bara myndir því þá sér
fólkið þær strax og þarf ekki að bíða
eftir að myndbandið hlaðist inn. Svo
fór ég að dæla inn bröndurum á aðra
brandarasíðu og fékk mjög góðar und-
irtektir, alveg mörg hundruð læk. Mín
kenning er sú að eigendur síðunnar
hafi orðið pínu afbrýðisamir því þeir
báðu mig um að hætta að setja inn á
síðuna og í kjölfarið ákvað ég bara að
búa til mína eigin síðu,“ útskýrir Pétur.
Hann segist alla tíð hafa haft
gaman af bröndurum og orðagríni.
„Alveg síðan ég var ég lítill hef ég
verið að snúa út úr öllu til að gera
lífið skemmtilegra, svo eru þetta líka
gamlir brandarar fastir í hausnum á
manni.“
Pétur segir að brandararnir hans
séu frumsamdir af honum. „Allt sem
ég hef gert þarna er frumsamið, fólk
hefur alveg sent mér og beðið mig um
að búa til brandara úr hinu og þessu
en þetta er allt eitthvað sem ég hef
fattað. Mikið af þessu er eitthvað sem
Var settur í
brandarabann
Pétur Sveinsson stofnaði Facebook-hópinn
Myndskrítlufélagið þar sem finna má myndir
með orðagríni. Brandari um Jónsa í Í svörtum
fötum jók vinsældir hópsins umtalsvert.
Pétur Sveinsson situr hér og hannar myndaskrítlu, sem án efa á eftir birtast í Facebook-hópnum hans, Myndskrítlufélaginu.
Nýjar og glæsilegar eignir á hverjum degi
fasteignir.is á
Mín kenning er
sú að eigendur
síðunnar hafi orðið
pínu afbrýðisaMir þVí
þeir báðu Mig uM að
hætta að setja inn á
síðuna og í kjölfarið
ákVað ég bara að búa
til Mína eigin síðu.
fjórar fyndnar Myndskrítlur eftir pétur sVeinsson
Myndskrítlan um Jónsa í Í svörtum fötum sló í gegn á vefnum og jók vinsældir hópsins á Facebook. Dóttir Péturs, Amanda Emma, er hér með í skemmtilegri myndskrítlu þar sem hún er með Buff í hárinu.
1 7 . m a r s 2 0 1 6 F I m m T U D a G U r70 L í F I ð ∙ F r É T T a B L a ð I ð