Fréttablaðið - 17.03.2016, Blaðsíða 22
viðskipti
Á síðastliðnu ári var tilkynnt um
niðurfellingu 140 þúsund starfa hjá
stærstu bönkum Evrópu og Banda
ríkjanna. Enn er beðið tilkynn
inga um hópuppsagnir hjá bæði
Barclays og BNP Paribas. Auk þess
sem nokkrir bankar hafa nú þegar
gefið það út að þeir muni segja upp
stórum hluta starfsmanna sinna á
árinu, þó ekki liggi fyrir hve margir
það verða.
Á Íslandi bendir hins vegar lítið
til mikillar fækkunar meðal starfs
manna viðskiptabanka landsins. Hjá
sumum þeirra fjölgaði starfsfólki á
árinu 2015. Framkvæmdastjóri
Samtaka fjármálafyrirtækja segir
skýringuna ef til vill liggja í því að á
Íslandi hafi fjármálafyrirtæki tekið
út mjög kröftuglegan niðurskurð
beint í kjölfar fjármálakreppunnar,
á meðan bankar víða annars staðar
héldu lengur út.
Í vikunni var greint frá því að
Royal Bank of Scotland hefði ákveð
ið að segja upp þúsund starfsmönn
um á næstu misserum. Ákvörðunin
var tekin vegna skipulagsbreytinga
til að lækka rekstrarkostnað, og er
hluti af þróun sem hefur átt sér stað
undanfarið árið.
Stærstu bankar Evrópu og Banda
ríkjanna hafa áform um að segja
upp allt að tíu til tuttugu prósentum
starfsfólks á næstu fjórum árum. Allt
frá nokkur hundruð starfsmönnum
upp í tugi þúsunda. HSBC er sá banki
sem hefur tilkynnt um flestar upp
sagnir, eða um 25 þúsund á komandi
árum. Þessi gríðarlegi niðurskurður
bætist ofan á þá hálfu milljón
bankamanna sem The Financial
Times áætlar að hafa misst störf sín
á fyrstu fimm árunum eftir að efna
hagskreppan skall á árið 2008.
Niðurskurður virðist einkum
vera viðvarandi á fjárfestingarsviði
bankanna sem og meðal verðbréfa
miðlara. Auk þess sem sumir bankar,
þeirra á meðal RBS, eru að draga úr
fjölda ráðgjafa sem veita fjárfesting
arráðgjöf og vélvæða ráðgjöfina að
ákveðnu leyti.
Mikill niðurskurður átti sér stað
á Íslandi í kjölfar bankahrunsins
árið 2008, starfsmönnum viðskipta
banka og sparisjóða fækkaði um
tæplega tuttugu og fimm prósent
milli áranna 2007 og 2009. Á síðast
liðnum árum hefur hins vegar dreg
ið verulega úr niðurskurði og hafa
tilkynningar um hópuppsagnir ekki
borist. Stöðugildum hjá Arion banka
fjölgaði um 11 á árinu 2015, eða úr
865 í árslok 2014 í 876 í árslok 2015,
á meðan stöðugildum hjá Íslands
banka fækkaði einungis um 36 frá
árslokum 2014 til ársloka 2015.
Guðjón Rúnarsson, framkvæmda
stjóri Samtaka fjármálafyrirtækja,
telur að hluti skýringarinnar á
þessum mismun sé sá mikli niður
skurður sem átti sér stað hér á landi
strax í kjölfar efnahagshrunsins.
„Bankar á Íslandi tóku þetta mjög
kröftuglega út í kjölfar hrunsins,
enda voru þeir neyddir til að gera
það. Á meðan bankar víða annars
staðar héldu út lengur, þeir lentu í
miklum erfiðleikum, en hafa verið
að taka þetta út seinna, ég held að
það sé örugglega meginskýringin,“
segir Guðjón.
Rúmlega 140 þúsund
uppsagnir á einu ári
Stærstu bankar Evrópu og Bandaríkjanna tilkynntu um fjölda uppsagna á síð-
astliðnu ári. Síðast var tilkynnt að leggja ætti niður þúsund stöðugildi hjá RBS á
komandi misserum. Þetta er ofan á þær 500 þúsund uppsagnir sem áttu sér stað
í kjölfar efnahagskreppunnar. Sama ástand ríkir ekki á Íslandi.
Guðjón Rúnarsson er framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja.
Glæsilegt iðnaðar-
og lagerhúsnæði
Nánari upplýsingar í síma 666 4000 eða leiga@reginn.is
reginn.is simi: 512 8900 reginn@reginn.is
Glæsilegt húsnæði til leigu við Miðhellu 2
í Hafnarfirði
Um er að ræða 4 leigurými sem geta leigst saman
eða í sitthvoru lagi, alls um 1.650 m2 sem skiptast í tvö
550 m2 rými og tvö 275 m2 rými. Milliloft er yfir hluta
af gólffletinum og það væri hægt að nýta sem t.d. lager
eða skrifstofur. Lofthæð er mikil og innkeyrsludyr
stórar og góðar. Gott athafnasvæði er fyrir utan húsið
og lóðin er rúmgóð.
Frábær eign á góðum stað með mikla möguleika í
vaxandi hverfi.
✿ Tilkynntur niðurskurður hjá stærstu bönkum
Bandaríkjanna og Evrópu á síðustu tólf mánuðum*
HSBC StanChart RBS UniCredit RabobankDeutche
Bank
Credit
Suisse
SocGen Crédit
Agricole
Morgan
Stanley
241
25
90
15
108,7
14
146
18,2
89,1
9
48,3
9 9
45,8 148
4
72,6
1,4
55,8
1,2
*Í þúsundum
Heimild: The Financial Times, Bloomberg, Reuters og BBC.
Peningastefnunefnd Seðlabanka
Íslands hefur ákveðið að breyta ekki
vöxtum bankans. Meginvextir bank
ans, vextir á sjö daga bundnum inn
lánum, verða því áfram 5,75 prósent.
Á fundi peningastefnunefndar í
gær gaf Már Guðmundsson seðla
bankastjóri í skyn að tíðinda væri að
vænta af aflandskrónuútboði og tak
mörkunum á vaxtamunaviðskipti á
ársfundi Seðlabanka Íslands í dag.
Þá ýjaði Már einnig að því að laga
breytingar yrðu fyrir þinglok, sem
liðka ættu fyrir afnámi hafta. Vísaði
hann þá til takmarkana á vaxta
munaviðskiptum og aflandskrónu
útboðs. „Það er hægt að færa fyrir því
rök að þetta tæki þyrfti helst að vera
tilbúið um leið og útboðið fer fram.
Það er ákveðin lagasetning sem þar
að fara fram vegna útboðsins,“ sagði
Már. – sg
Seðlabankinn heldur
stýrivöxtum óbreyttum
n Núverandi starfsmannafjöldi
n Fjöldi starfsmanna sem sagt verður upp á næstu misserum
Sæunn
Gísladóttir
saeunn@frettabladid.is
HSBC er sá banki sem tilkynnti á síðasta ári um flestar uppsagnir, eða um 25
þúsund störf. FRéttABlAðið/EPA
1 7 . m a r s 2 0 1 6 F I m m T U D a G U r22 F r é T T I r ∙ F r é T T a B L a ð I ð