Fréttablaðið - 17.03.2016, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 17.03.2016, Blaðsíða 10
Það er alltaf erfitt að fara gegn sitjandi formanni en ég bara get ekki beðið eftir honum,“ segir Oddný Harðardóttir þingmaður um framboð sitt til formanns Sam- fylkingarinnar. Oddný er þriðji fram- bjóðandinn til að stíga fram og gefa kost á sér í embættið en Árni Páll Árnason, formaður flokksins, gefur enn ekki upp afstöðu sína. Oddný Harðardóttir kom ný inn á þing árið 2009 og sat sem fjármála- og efnahagsráðherra árin 2011 til 2012. Hún hafði verið bæjarstjóri sveitarfélagsins Garðs frá 2006 en þar er hún uppalin og býr enn. „Ég og maðurinn minn, Eiríkur Hermannsson, byggðum ofan á húsið þegar við keyptum það. Þetta var hús móður minnar en þegar hún deyr fyrir aldur fram árið 1982 þá göngum við frá kaupunum. Hún var rétt orðin 49 ára gömul.“ Alin upp við elju „Foreldrar mínir skildu þegar ég var tólf ára. Við bjuggum hér fjórar í 80 fermetrum, mamma, ég og systur mínar tvær. Hún var einstæð móðir, vann í frystihúsinu og náði sér í auka- pening með því að sauma föt á fólkið í þorpinu. Við áttum ekki mikið af peningum en hún var hörkukerling og vann sig upp í að verða verkstjóri í frystihúsinu. Mamma var dugleg og klár kona sem setti það í fyrsta sæti að við systurnar myndum mennta okkur,“ segir Oddný um æsku sína. Oddný lærði í Kennaraháskól- anum en á tímabili sinnti hún bæði námi í kennslufræðum og lögfræði. „Ég var með þannig stundaskrá að ég var alltaf í pásu í Kennarahá- skólanum þegar fyrirlestrarnir í lög- fræðinni voru. En svo valdi ég hvaða leið ég vildi fara. Einn vinur minn úr Kennaraháskólanum bauð mér í bíltúr, keypti handa mér ís í sjoppu í Garðabæ og stoppaði svo bílinn úti á Álftanesi og spurði hvort ég ætlaði virkilega að verða rukkari – það væri nú ekki mjög gefandi starf. Svo ég hætti því bara enda átti kennslan hug minn.“ Lenti óvart í stjórnmálum Oddný starfaði í menntamálum í kjölfarið, meðal annars sem aðstoð- arskólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja og sem skólameistari í afleysingum. Það var árið 2006 sem kona úr bæjarfélaginu hafði sam- band við hana. „Hún spurði hvort ég væri til í að koma og hitta hana með þremur öðrum og ræða sveitar- stjórnarmál. Við settumst niður og fannst að eitthvað þyrfti að gera fyrir þetta samfélag svo hver og ein okkar kallaði í aðrar fjórar eða fimm. Svo hittumst við tuttugu konur í stofu einnar í hverri viku með skjávarpa og tölvu og skrifuðum niður það sem við vildum leggja áherslu á.“ Þá var samt ekki búið að taka ákvörðun um að bjóða fram til bæj- arstjórnar. „Spurningin var hvort við ættum að vera með kvennalista eða bjóða körlunum að vera með. Það voru margir kostir við kvennalista en einn stór galli og það var að á hann vantaði karla.“ Konurnar sameinuðust framboði sem bauð fram undir nafni Óháðra borgara á vinstrivængnum. „Ég hló bara þegar ég var beðin um að vera í fyrsta sæti og þar með bæjarstjóra- efni því metnaður minn lá ekki þar. En ég fann að það lá eitthvað í loftinu og sló til. Það var eitthvað gott að gerast. Við unnum og það kom okkur öllum að óvörum.“ Flokkurinn þarf að finna neistann Oddný gekk til liðs við Samfylking- una árið 2009 og fann þá aftur þessa tilfinningu, að eitthvað lægi í loftinu í kosningabaráttunni og meðbyrinn væri mikill. Samfylkingin hlaut enda tæp þrjátíu prósent í kosningunum og var stærsti flokkurinn með tutt- ugu þingmenn. Nýjasta könnun Fréttablaðsins sýnir flokkinn aftur á móti nú með 8,2 prósenta fylgi. „Það er engin einföld skýring á þessu. Ég get þó sagt að við höfum ekki verið í góðu stuði eftir kosn- ingar og við höfum ekki náð okkur almennilega. Að vísu fór fylgið upp árið 2014 og við fengum ágætar niðurstöður víða í sveitarstjórnar- kosningum en síðan fór fylgið að falla. Það kraumar óánægja meðal fólks yfir að við séum ekki að berjast af nógu miklum krafti fyrir jafnaðar- stefnunni.“ Hún segir að formannskjör nú sé að einhverju leyti svar við slæmu fylgi. „Stóri jafnaðarmannaflokkurinn á Íslandi er kominn undir tíu prósent. Þá er ekki skrítið að fólk vilji prófa þetta. Kannski mun það breyta ein- hverju að endurnýja forystuna en það er samt ekki víst að það breyti neinu. Það getur líka verið að það ferli að kjósa um forystu hreyfi við einhverju og leysi úr læðingi eitthvað gott sem getur svo fleytt okkur áfram.“ Fórnað í landsdómsnefnd Um síðustu helgi bauð Magnús Orri Schram, fyrrverandi þingmaður Samfylkingar, sig fram til formanns flokksins. Í kjölfarið sendi Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi for- maður, honum pillu á Facebook og sagði: „Forystumaður Samfylking- arinnar í Landsdómsmálinu hefur stigið fram og telur sig vel til flokks- forystu fallinn.“ Þingmannanefndin svokallaða sem Magnús Orri og Oddný sátu bæði í lagði fram þingsályktunartil- lögu þess efnis að höfða skyldi mál á hendur Ingibjörgu, Geir H. Haarde, Árna M. Mathiesen og Björgvin G. Sigurðssyni. Á endanum var það Geir einn sem fór fyrir dóm. Enginn vildi sitja í landsdómsnefndinni Oddný Harðardóttir þingmaður býður sig fram til formanns Samfylkingar. Hún segir markaðslögmál ekki eiga að gilda um velferðarkerfið. Oddný er alin upp af einstæðri móður sem vann daga og nætur svo dætur hennar gætu menntað sig. Oddný ætlaði aldrei að taka þátt í stjórnmálum en var í einni svipan orðin bæjarstjóri í Garði og fimm árum síðar valin sem fjármálaráðherra. FréttAbLAðið/ViLheLm Snærós Sindradóttir snaeros@frettabladid.is Kíktu á úrvalið í vefversluninni á michelsen.is/fermingar Laugavegi 15 og Kringlunni Sími 511 1900 - www.michelsen.is Fossil Riley 30.800 kr. Casio Retro 12.000 kr. Daniel Wellington Sheffield Frá 23.500 kr. Skagen Ditte 36.100 kr. Fallegar fermingar- gjafir ASA HRINGUR 9.700 kr. ASA LOKKAR 9.800 kr. ASA HÁLSMEN 9.700 kr. – fyrir stelpur 1 7 . m a r s 2 0 1 6 F I m m T U D a G U r10 F r é T T I r ∙ F r é T T a B L a ð I ð „Við Magnús Orri vorum nýir þingmenn og okkur var bara fórnað í þessa nefnd. Það er ekkert leyndar- mál að það vildi enginn sitja í nefnd- inni. Þessi nefnd hafði það hlutverk að fara í gegnum Rannsóknarskýrslu Alþingis og setja fram umbætur um hverju þyrfti að breyta á Alþingi, í stjórnsýslunni og hvaða lögum þyrfti að breyta. En við höfðum líka það hlutverk að taka ákvörðun um hvort ástæða væri til að ákæra ein- hvern fyrir brot á ráðherraábyrgð.“ Í Rannsóknarskýrslu Alþingis er komist að þeirri niðurstöðu að Ingibjörg Sólrún hafi ekki vanrækt skyldur sínar sem utanríkisráðherra. „En Ingibjörg Sólrún var annar odd- vitinn í ríkisstjórninni. Ég las öll níu bindi skýrslunnar sem ég held að ekki margir hafi gert og get sagt að þetta var mjög erfitt ferli fyrir alla þá sem komu að því. Ég las öll bindin, komst að þessari niðurstöðu og gat ekki annað. Ég skil vel að hún sé óánægð með það.“ heilbrigðismál ekki markaðsmál Oddný býður sig fram til formanns meðal annars svo hennar hjartans mál komist á dagskrá. „Við jafn- aðarmenn viljum öflugt atvinnulíf og sanngjarna viðskiptahætti. Við viljum blandað hagkerfi. Markaðs- lögmálin eiga við í sumum tilfellum en þau eiga ekki við í heilbrigðis- þjónustu.“ Hún segir einkarekstur innan heil- brigðiskerfisins halda áfram undir núverandi ríkisstjórn og vill berjast fyrir ókeypis heilbrigðisþjónustu. „Við þurfum að segja hingað og ekki lengra. Ekki þessa græðgi og ekki þessa spillingu. Við vitum að það er til nóg af peningum og hagtölur eru góðar en það þarf að skipta kökunni með allt öðrum og réttlátari hætti. Núna eru allir að fara á kreik sem vilja græða á stöðunni eins og hún er og það má ekki hleypa þeim af stað.“ Eftir formannskjör í júní er stutt í að prófkjörin byrji hjá Samfylking- unni en alþingiskosningar eru næsta vor. „Ég vonast til þess að við náum upp slíkri stemningu að það séu margir sem vilji bjóða sig fram. Mér finnst svolítið erfið þessi umræða, að þeir sem eru fyrir á fleti eigi að fara því það er fólk sem er búið að standa sig vel og býr yfir mikilli reynslu. Fyrst og fremst þurfum við að fjölga þingmönnum og fá inn endurnýjun þannig. Það er enginn einn sem rífur upp Samfylkinguna en forystan getur sett réttlætismál á dagskrá og hrifið fólk með sér.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.