Fréttablaðið - 17.03.2016, Qupperneq 10
Það er alltaf erfitt að fara gegn sitjandi formanni en ég bara get ekki beðið eftir honum,“ segir Oddný Harðardóttir þingmaður
um framboð sitt til formanns Sam-
fylkingarinnar. Oddný er þriðji fram-
bjóðandinn til að stíga fram og gefa
kost á sér í embættið en Árni Páll
Árnason, formaður flokksins, gefur
enn ekki upp afstöðu sína.
Oddný Harðardóttir kom ný inn á
þing árið 2009 og sat sem fjármála-
og efnahagsráðherra árin 2011 til
2012. Hún hafði verið bæjarstjóri
sveitarfélagsins Garðs frá 2006 en þar
er hún uppalin og býr enn.
„Ég og maðurinn minn, Eiríkur
Hermannsson, byggðum ofan á
húsið þegar við keyptum það. Þetta
var hús móður minnar en þegar hún
deyr fyrir aldur fram árið 1982 þá
göngum við frá kaupunum. Hún var
rétt orðin 49 ára gömul.“
Alin upp við elju
„Foreldrar mínir skildu þegar ég var
tólf ára. Við bjuggum hér fjórar í 80
fermetrum, mamma, ég og systur
mínar tvær. Hún var einstæð móðir,
vann í frystihúsinu og náði sér í auka-
pening með því að sauma föt á fólkið
í þorpinu. Við áttum ekki mikið af
peningum en hún var hörkukerling
og vann sig upp í að verða verkstjóri
í frystihúsinu. Mamma var dugleg og
klár kona sem setti það í fyrsta sæti
að við systurnar myndum mennta
okkur,“ segir Oddný um æsku sína.
Oddný lærði í Kennaraháskól-
anum en á tímabili sinnti hún bæði
námi í kennslufræðum og lögfræði.
„Ég var með þannig stundaskrá
að ég var alltaf í pásu í Kennarahá-
skólanum þegar fyrirlestrarnir í lög-
fræðinni voru. En svo valdi ég hvaða
leið ég vildi fara. Einn vinur minn
úr Kennaraháskólanum bauð mér í
bíltúr, keypti handa mér ís í sjoppu
í Garðabæ og stoppaði svo bílinn úti
á Álftanesi og spurði hvort ég ætlaði
virkilega að verða rukkari – það
væri nú ekki mjög gefandi starf. Svo
ég hætti því bara enda átti kennslan
hug minn.“
Lenti óvart í stjórnmálum
Oddný starfaði í menntamálum í
kjölfarið, meðal annars sem aðstoð-
arskólameistari Fjölbrautaskóla
Suðurnesja og sem skólameistari í
afleysingum. Það var árið 2006 sem
kona úr bæjarfélaginu hafði sam-
band við hana. „Hún spurði hvort
ég væri til í að koma og hitta hana
með þremur öðrum og ræða sveitar-
stjórnarmál. Við settumst niður og
fannst að eitthvað þyrfti að gera fyrir
þetta samfélag svo hver og ein okkar
kallaði í aðrar fjórar eða fimm. Svo
hittumst við tuttugu konur í stofu
einnar í hverri viku með skjávarpa
og tölvu og skrifuðum niður það sem
við vildum leggja áherslu á.“
Þá var samt ekki búið að taka
ákvörðun um að bjóða fram til bæj-
arstjórnar. „Spurningin var hvort við
ættum að vera með kvennalista eða
bjóða körlunum að vera með. Það
voru margir kostir við kvennalista en
einn stór galli og það var að á hann
vantaði karla.“
Konurnar sameinuðust framboði
sem bauð fram undir nafni Óháðra
borgara á vinstrivængnum. „Ég hló
bara þegar ég var beðin um að vera
í fyrsta sæti og þar með bæjarstjóra-
efni því metnaður minn lá ekki þar.
En ég fann að það lá eitthvað í loftinu
og sló til. Það var eitthvað gott að
gerast. Við unnum og það kom okkur
öllum að óvörum.“
Flokkurinn þarf að finna neistann
Oddný gekk til liðs við Samfylking-
una árið 2009 og fann þá aftur þessa
tilfinningu, að eitthvað lægi í loftinu
í kosningabaráttunni og meðbyrinn
væri mikill. Samfylkingin hlaut enda
tæp þrjátíu prósent í kosningunum
og var stærsti flokkurinn með tutt-
ugu þingmenn. Nýjasta könnun
Fréttablaðsins sýnir flokkinn aftur á
móti nú með 8,2 prósenta fylgi.
„Það er engin einföld skýring á
þessu. Ég get þó sagt að við höfum
ekki verið í góðu stuði eftir kosn-
ingar og við höfum ekki náð okkur
almennilega. Að vísu fór fylgið upp
árið 2014 og við fengum ágætar
niðurstöður víða í sveitarstjórnar-
kosningum en síðan fór fylgið að
falla. Það kraumar óánægja meðal
fólks yfir að við séum ekki að berjast
af nógu miklum krafti fyrir jafnaðar-
stefnunni.“
Hún segir að formannskjör nú sé
að einhverju leyti svar við slæmu
fylgi. „Stóri jafnaðarmannaflokkurinn
á Íslandi er kominn undir tíu prósent.
Þá er ekki skrítið að fólk vilji prófa
þetta. Kannski mun það breyta ein-
hverju að endurnýja forystuna en það
er samt ekki víst að það breyti neinu.
Það getur líka verið að það ferli að
kjósa um forystu hreyfi við einhverju
og leysi úr læðingi eitthvað gott sem
getur svo fleytt okkur áfram.“
Fórnað í landsdómsnefnd
Um síðustu helgi bauð Magnús Orri
Schram, fyrrverandi þingmaður
Samfylkingar, sig fram til formanns
flokksins. Í kjölfarið sendi Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi for-
maður, honum pillu á Facebook og
sagði: „Forystumaður Samfylking-
arinnar í Landsdómsmálinu hefur
stigið fram og telur sig vel til flokks-
forystu fallinn.“
Þingmannanefndin svokallaða
sem Magnús Orri og Oddný sátu
bæði í lagði fram þingsályktunartil-
lögu þess efnis að höfða skyldi mál á
hendur Ingibjörgu, Geir H. Haarde,
Árna M. Mathiesen og Björgvin G.
Sigurðssyni. Á endanum var það Geir
einn sem fór fyrir dóm.
Enginn vildi sitja í
landsdómsnefndinni
Oddný Harðardóttir þingmaður býður sig fram til formanns Samfylkingar. Hún
segir markaðslögmál ekki eiga að gilda um velferðarkerfið. Oddný er alin upp af
einstæðri móður sem vann daga og nætur svo dætur hennar gætu menntað sig.
Oddný ætlaði aldrei að taka þátt í stjórnmálum en var í einni svipan orðin bæjarstjóri í Garði og fimm árum síðar valin sem fjármálaráðherra. FréttAbLAðið/ViLheLm
Snærós
Sindradóttir
snaeros@frettabladid.is
Kíktu á úrvalið
í vefversluninni á
michelsen.is/fermingar
Laugavegi 15 og Kringlunni
Sími 511 1900 - www.michelsen.is
Fossil Riley
30.800 kr.
Casio Retro
12.000 kr.
Daniel Wellington
Sheffield
Frá 23.500 kr.
Skagen Ditte
36.100 kr.
Fallegar
fermingar-
gjafir
ASA HRINGUR
9.700 kr.
ASA LOKKAR
9.800 kr.
ASA HÁLSMEN
9.700 kr.
– fyrir stelpur
1 7 . m a r s 2 0 1 6 F I m m T U D a G U r10 F r é T T I r ∙ F r é T T a B L a ð I ð
„Við Magnús Orri vorum nýir
þingmenn og okkur var bara fórnað
í þessa nefnd. Það er ekkert leyndar-
mál að það vildi enginn sitja í nefnd-
inni. Þessi nefnd hafði það hlutverk
að fara í gegnum Rannsóknarskýrslu
Alþingis og setja fram umbætur um
hverju þyrfti að breyta á Alþingi,
í stjórnsýslunni og hvaða lögum
þyrfti að breyta. En við höfðum líka
það hlutverk að taka ákvörðun um
hvort ástæða væri til að ákæra ein-
hvern fyrir brot á ráðherraábyrgð.“
Í Rannsóknarskýrslu Alþingis
er komist að þeirri niðurstöðu að
Ingibjörg Sólrún hafi ekki vanrækt
skyldur sínar sem utanríkisráðherra.
„En Ingibjörg Sólrún var annar odd-
vitinn í ríkisstjórninni. Ég las öll níu
bindi skýrslunnar sem ég held að
ekki margir hafi gert og get sagt að
þetta var mjög erfitt ferli fyrir alla þá
sem komu að því. Ég las öll bindin,
komst að þessari niðurstöðu og gat
ekki annað. Ég skil vel að hún sé
óánægð með það.“
heilbrigðismál ekki markaðsmál
Oddný býður sig fram til formanns
meðal annars svo hennar hjartans
mál komist á dagskrá. „Við jafn-
aðarmenn viljum öflugt atvinnulíf
og sanngjarna viðskiptahætti. Við
viljum blandað hagkerfi. Markaðs-
lögmálin eiga við í sumum tilfellum
en þau eiga ekki við í heilbrigðis-
þjónustu.“
Hún segir einkarekstur innan heil-
brigðiskerfisins halda áfram undir
núverandi ríkisstjórn og vill berjast
fyrir ókeypis heilbrigðisþjónustu.
„Við þurfum að segja hingað og ekki
lengra. Ekki þessa græðgi og ekki
þessa spillingu. Við vitum að það er
til nóg af peningum og hagtölur eru
góðar en það þarf að skipta kökunni
með allt öðrum og réttlátari hætti.
Núna eru allir að fara á kreik sem
vilja græða á stöðunni eins og hún er
og það má ekki hleypa þeim af stað.“
Eftir formannskjör í júní er stutt í
að prófkjörin byrji hjá Samfylking-
unni en alþingiskosningar eru næsta
vor. „Ég vonast til þess að við náum
upp slíkri stemningu að það séu
margir sem vilji bjóða sig fram. Mér
finnst svolítið erfið þessi umræða, að
þeir sem eru fyrir á fleti eigi að fara
því það er fólk sem er búið að standa
sig vel og býr yfir mikilli reynslu.
Fyrst og fremst þurfum við að fjölga
þingmönnum og fá inn endurnýjun
þannig. Það er enginn einn sem rífur
upp Samfylkinguna en forystan
getur sett réttlætismál á dagskrá og
hrifið fólk með sér.“