Fréttablaðið - 17.03.2016, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 17.03.2016, Blaðsíða 64
Við opnum í dag á sjálfan St. Patrick’s day, sem er tilvalið þar sem þetta er írskur pöbb og stemningin á staðnum í anda Írlands. Á föstudaginn verðum við svo með formlegt opnunarpartí, þar sem við ætlum að gleðjast með vinum og fjölskyldu og fagna opnun Drunk Rabbit en við höfum unnið hér dag og nótt í nær fjóra mánuði,“ seg ir Andr­ és Björns son, ann ar eig andi Drunk Rabbit í Aust ur stræti. Þeir félagar Andrés og Ómar Ingimars son lentu í hörðum deilum vegna nafnsins sem þeir völdu á staðinn í upphafi en létu það ekki á sig fá. Þeir félagar höfðu farið til New York til að kynna sér írska pöbba og sækja sér innblástur varðandi útlit og stemningu fyrir staðinn. Í kjölfar ferðarinnar völdu þeir nafnið Dead Rabbit, en þar sem annar staður ber það nafn fengu þeir ábendingu um að þetta væri ekki við hæfi og ákváðu þeir því að breyta nafni barsins. „Okkur bárust þær fréttir að eig­ endur The Dead Rabbit í New York væru ekki sátt ir og teldu okkur vera að herma eftir þeim. Í framhald­ inu fengum við frekar neikvæða umfjöllun frá öðrum bareigendum í Reykjavík. Eftir talsverðar vanga­ veltur tókum við þá ákvörðun að breyta nafninu í Drunk Rabbit Irish Pub, enda er miklu betra að vera fullur heldur en dauður,“ segir Andr­ és léttur í bragði. Á staðnum verður boðið upp á fjölbreytta kokteila en þeir félagar hafa fengið í lið við sig reynda bar­ þjóna sem hafa hannað kokteilaseðil þar sem er að finna yfir tuttugu mis­ mundi kokteila. Auk þess hyggjast þeir bjóða upp fjölbreytt úrval bjór­ tegunda. Allt á staðnum eru uppruna­ legar antikvörur frá Írlandi og óhætt að segja að ásýnd staðarins beri mann hálfa leið til Írlands. „Ég hannaði staðinn ásamt Ómari og lagði mikið upp úr því að lúkkið á staðnum yrði í anda írskra pöbba, ég er með mikið af flottum antikhús­ gögnum frá Írlandi, heildarlúkkið á staðnum er svokallað „old fashion“. Við lögðum mikla áherslu á það að staðurinn væri fyrir alla, bæði skemmtilega stelpnahópa sem vilja setjast niður og fá sér flotta viskí­ kokteil a að írsk um sið og fyrir þá sem vilja kíkja með félögunum eftir vinnu og horfa jafnvel á skemmti­ lega íþróttaviðburði en við ætlum að sýna alla stóru íþróttaviðburðina sem fram undan eru,“ segir Andrés og bætir við að hann sé mjög ánægður með útkomuna. Þeir Andrés og Ómar Ingimars son eru ekki að opna bar í fyrsta skipti en þeir ráku staðinn Brook lyn Bar sem var í sama húsnæði. „Við opnuðum Brooklyn Bar, það gekk ekki alveg eins og ætlað var, en við lærðum af reynslunni. Brooklyn Bar þróaðist hálfpartinn í hamborg­ arastað en það var alls ekki ætlunin. Við tókum því ákvörðun um að loka staðnum og byrja upp á nýtt; á Drunk Rabbit komum við einungis til með að bjóða upp á snarl með drykkj­ unum,“ segir Andrés fullur bjartsýni. gudrunjona@frettabladid.is Miklu betra að vera fullur en dauður Félagarnir Andrés Björnsson og Ómar Ingimarsson opna Drunk Rabbit Irish Pub í Austurstræti. FRéttABlAðIð/ERnIR Þetta er í fyrsta skipti sem ég kem til Íslands og hef þær hug­myndir að Ísland sé algjörlega töfrandi staður. Ég er viss um að ég mun fá góðan innblástur fyrir listsköpun mína hér,“ segir Hanna Karlzon aðspurð hvort hún telji landið geta veitt henni innblástur, en hún kom til Íslands í gær og verð­ ur viðstödd litapartí í A4 í Skeifunni í kvöld frá klukkan 20.00. Þar mun hún segja fólki frá bakgrunni sínum og hvernig hún rakst inn í þennan litaheim. Allar teikningar Hönnu eru hand­ unnar og kýs hún helst að nota blek við listsköpun sína. Hanna er þekkt fyrir að leyfa smáatriðunum að njóta sín en henni finnst skemmti­ legast að teikna blóm, tré, hús og dýr. Innblásturinn fær hún frá nátt­ úrunni og oft eru teikningar hennar sveipaðar dulúð og draumkenndum tilfinningum. „Ég fæ mestan innblástur frá náttúrunni í kringum mig í Norð­ ur­Svíþjóð þar sem ég bý. Móðir mín býr í gömlu húsi sem hefur tilheyrt fjölskyldunni okkar í margar kynslóðir. Húsið stendur alveg í skógarjaðrinum og það er æðislegur garður í kringum húsið. Þegar ég leita að hugmyndum fyrir teikningarnar mínar hugsa ég alltaf um þennan fallega stað. Þegar ég teikna myndirnar mínar reyni ég að sameina náttúruna og æsku­ minningar, svo finnst mér gaman að bæta við draumkenndu ívafi,“ segir Hanna. Smáatriðin eru áberandi í teikn­ ingum Hönnu og litabækurnar hennar hafa rokið út eins og heitar lummur. Framleiðslan hefur aukist mikið undanfarin ár vegna mikillar eftirspurnar og vinsælda. En hvað ætli taki langan tíma að teikna mynd sem hefur þessi óteljandi smáatriði? „Það fer alveg eftir því hversu flókin myndin er, ef ég er í stuði og teikna heila opnu getur það tekið allt að tvo daga, en ef ég er að gera eina mynd tekur það einn dag. Ég verð nánast aldrei óþolinmóð þegar ég er að skapa og teikna, en það getur þó komið fyrir. Sérstak­ lega þegar ég er alveg að v e r ð a b ú i n með mynd og er farin að sjá fyrir mér næstu mynd. Svo hefur það líka komið fyrir þegar ég er að renna út á tíma,“ segir Hanna og bætir við að það að teikna taki tíma og er hún alveg sátt við það. Hanna hefur teiknað myndir frá því hún man eftir sér, en stíll hennar hefur þróast mikið enda er ferillinn langur hjá þessari stjörnulistakonu sem hefur vakið athygli um allan heim. „Ég hef teiknað alveg síðan ég man eftir mér, í upphafi var ég mest í grafík teikningum og málverkum. Þessar svokölluðu blekteikningar sem ég er að gera núna hef ég verið að þróa síðustu ár. Þegar ég var að byrja að teikna gerði ég blekmyndir því ég var mikið að vinna með silki­ þrykk. Ég teiknaði mína eigin hönn­ un og þrykkti á föt. Eftir talsverðan tíma í þeirri vinnu ákvað ég að einbeita mér hægt og rólega einungis að teikn­ ingum og ákvað að halda mig við hreinar blekteikningar. Stuttu síðar fór ég að gera litabækurnar og þá fór ég að þróa teikningarnar mínar ennþá meira. Ég þróaði mynd­ irnar þannig að það væri auðveldlega hægt að teikna þær en á sama t í m a væ r u þ æ r l í k a flottar einar og sér án lita,“ segir Hanna létt í bragði. Algjör rokkstjarna í litabókabransanum Hanna Karlzon, sænskur hönnuður og menntaður myndlistar- kennari, er konan á bak við litabækurnar sem allir elska. Heimurinn bíður í ofvæni eftir nýju litabókinni hennar, Sommarnatt, sem kemur út í apríl á heimsvísu. Þetta litabókaæði er ekki bara bundið við Ísland heldur hefur það farið eins og eldur í sinu um heiminn. Hér má sjá teikn- ingu sem er í nýjustu litabók Hönnu, Sommarnatt. Ég fæ MestAn innblástur frá náttúrunni í kringuM Mig hÉr í norður-svíþjóð þAr seM Ég bý. Móðir Mín býr í göMlu húsi seM hefur tilheyrt fjölskyldunni okkAr í gegn uM MArgAr kyn- slóðir. Ég hef verðið Að teiknA Alveg síðAn Ég MAn eftir MÉr, í upphAfi vAr Ég Mest í grAfíkteikn- inguM og MálverkuM. þessAr svokölluðu blekteikningAr seM Ég er Að gerA núnA hef Ég verið Að þróA síðustu ár. Guðrún Jóna Stefánsdóttir gudrunjona@frettabladid.is Hanna Karlzon, sænskur hönnuður, er konan á bak við litabækurnar sem allir elska. MynD/SAMuEl PEttERSSon 1 7 . m a r s 2 0 1 6 F I m m T U D a G U r64 L í F I ð ∙ F r É T T a B L a ð I ð Lífið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.