Fréttablaðið - 17.03.2016, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 17.03.2016, Blaðsíða 50
Í fyrstu fréttatil- kynningunni sem ég sá um óperuna gengu þeir lengra, þar var ég skrif- aður dansk/Íslenskur en ég náði að leiðrétta það þvÍ ég er rammÍslenskur. ÚTGÁFUVEISLA Í dag kl. 17 í Eymundsson Skólavörðustíg. Allir velkomnir. Bókin AUKAVERKANIR eftir Ólaf Hauk Símonarson er spennandi og hugljúf skáldsaga um íslenskan heimilislækni sem neyðist til að endurskoða líf sitt einmitt þegar hann er að læra á snjallsíma. „Þetta er ópera fyrir stórt svið, stóra hljómsveit, marga einsöngvara og kór – þannig að hún er grand,“ segir Daníel. Fréttablaðið/anton brink Það var spennandi en líka pínu ógnvænlegt að byrja á svona stóru verki, því þetta er ópera fyrir stórt svið, stóra hljómsveit, marga einsöngvara og kór – þann- ig að hún er grand,“ segir Daníel Bjarnason tónskáld um frumraun sína í óperusmíð. Um er að ræða óperu eftir dönsku myndinni Brødre eftir danska kvikmyndaleik- stjórann Susanne Bier. „Það er allavega ár síðan byrjað var að tala um þetta – kannski rúmlega ár,“ upplýsir Daníel. „Síðan höfum við verið að vinna í handritinu, eða librettoen eins og það kallast á dönsku. Það er sænsk kona sem skrifar textann, Kerstin Perski, hún er reynd í óperuhand- ritaskrifum.“ Hann segir óperuna verða sungna á ensku en ekki dönsku. Af hverju? „Sú hugmynd er frá mér komin. Þó ég tali góða dönsku, eftir að hafa búið í Dan- mörku um tíma, fannst mér liggja beinna við að hafa enskan texta til að gera verkið alþjóðlegra og til að auðvelda erlendum söngvurum að syngja hann. Kerstin Perski hefur reynslu af því að skrifa handrit á ensku svo það var ekkert mál.“ Danska þjóðaróperan í Árósum pantaði óperuna hjá Daníel. „Til- efnið er það að Árósar eru menn- ingarborg Evrópu 2017 og þar er verið að ráðast í nokkur stór verkefni, meðal annars það sem er kallað Bier-þrílógían, þar sem þrjár bíómyndir eftir Susanne Bier verða teknar og unnið úr þeim nýtt efni; ein myndin verður óperan mín, önnur dansverk og sú þriðja leikhúsverk. Músíkhúsið þeirra í Árósum heldur utan um verkefnin sem öll eru sjálfstæð en undir þess- ari regnhlífarhugmynd,“ útskýrir hann. Danir fá fyrstu óperu Daníels Bjarnasonar daníel Bjarnason tónskáld hefur samið sína fyrstu óperu og hún er engin smásmíði. óperan er gerð eftir dönsku bíómyndinni Brødre frá 2004 og verður frumflutt af dönsku þjóðaróperunni í árósum á næsta ári. Daníel segir Dani verða í aðal- hlutverkum í óperunni, nokkrir komi annars staðar frá en ekki sé búið að loka þeim hlutum endan- lega. Hins vegar sé nýbúið að til- kynna að Daninn Kasper Holten, fyrrverandi stjórnandi Danska kon- unglega leikhússins, stjórni upp- færslunni. „Holten er að hætta sem listrænn stjórnandi Covent Garden í London og hann stökk á þetta sem fyrsta verkefni eftir að hann hættir þar. Mér finnst það frábært,“ segir Daníel. Í grein í Politiken er tekið fram að Daníel sé „danskfæddur“, þann- ig gera Danir smá tilkall til hans og það finnst honum svolítið fyndið. „Þeir hafa greinilega þörf fyrir að taka þetta fram. Í fyrstu frétta- tilkynningunni sem ég sá um óperuna gengu þeir lengra, þar var ég skrifaður dansk/íslenskur en ég náði að leiðrétta það því ég er rammíslenskur,“ segir hann. „En það er rétt að ég er fæddur á Rigshospitalet því foreldrar mínir, Bjarni Daníelsson og Valgerður Gunnarsdóttir Schram, voru í námi í Danmörku á þeim tíma, ég var sex mánaða þegar við fluttum heim. Svo var ég reyndar í mennta- skóla líka í Kaupmannahöfn því við bjuggum þar aftur um tíma. En Danir mega orða þetta svona ef þeir vilja.“ Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is Söngkonurnar Björk Jónsdóttir, Jóhanna V. Þórhallsdóttir og Signý Sæmundsdóttir, sem kalla sig 3Klassískar, koma fram á hádegis- tónleikum í Fríkirkjunni í dag, ásamt 2Prúðbúnum, þeim Bjarna Þór Jónatanssyni píanóleikara og Gunnari Hrafnssyni bassaleikara. „Yfirskrift tónleikanna er Lífið er lambagras, það er vísun í eitt ljóðanna sem við flytjum. Það er eftir Þorvald Þorsteinsson og við syngjum það við lag Megasar,“ segir Jóhanna Þórhalls. Hún segir það eina ljóð Þorvaldar á dagskránni en fleiri séu eftir Megas og Davíð Stefánsson. „Við erum m.a. með nýja útsetningu á Dalakofanum og lagið um hana Unu sem heyrist ekki oft. Þá erum við líka með skemmti- lega útsetningu af Táraborginni eftir Megas og svo auðvitað Sögu úr sveitinni.“ Söngkonurnar hafa sungið saman um árabil og komið fram víða um land. Jóhönnu eru minnisstæðir tónleikar í Bragganum á Hólmavík þar sem allt ætlaði um koll að keyra þegar þær mættu með Megasi í júlí- mánuði fyrir nokkrum árum. Tónleikarnir í Fríkirkjunni til- heyra tónleikaröðinni Á ljúfum nótum. Þeir hefjast klukkan 12 og taka um hálfa klukkustund. Aðgangseyrir er 1.500 krónur og ekki er tekið við greiðslukortum. – gun Dalakofinn og lagið um hana Unu Söngkonurnar Signý, björk og Jóhanna með þá Gunnar og bjarna Þór á bak við sig. MynD/raGnheiður kJartanSDóttir 1 7 . m a r s 2 0 1 6 F I m m T U D a G U r50 m e n n I n G ∙ F r É T T a B L a ð I ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.