Fréttablaðið - 17.03.2016, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 17.03.2016, Blaðsíða 66
Við erum reyndar ákVeðnir í að spila lag sem Við höfum aðeins einu sinni spilað, þá á sónarhátíðinni í ár. Kristján Kristjánsson heldur upp á 60 ára afmælið sitt í Hörpu. Hann lítur yfir farinn veg, leikur lögin sín, segir sögur og tekur á móti gestum. Hljómsveit skipa Eyþór Gunnarsson, Jón Ólafsson, Guðmundur Pétursson, Benedikt Brynleifsson, Bryndís Halla Gylfadóttir, Lilja Valdimarsdóttir, Andri Ólafsson og Sölvi Kristjánsson. Þorleifur og Kormákur úr gamla góða KK bandinu mæta og Maggi Eiríks og Ellen líta að sjálfsögðu í heimsókn. Verið hjartanlega velkomin á afmælistónleika KK í Hörpu. 09 04 16 Midasala á tix.is, harpa.is, í midasölu Hörpu og í síma 528 5050 60 ÁRA AFMÆLISTÓNLEIKAR Í ELDBORG 9. APRÍL 2016 KK BAND ELLEN KRISTJÁNS MAGGI EIRÍKS EYÞÓR GUNNARS JÓN ÓLAFSSON FJÖLDI ANNARRA LISTAMANNA Það er lítið mál fyrir okkur að að mæta á Kex, fá okkur kannski einn bjór og spila á tónleikum þar sem við getum safnað peningum fyrir UNICEF. Við þurfum þennan klukkutíma ekki, og sér í lagi ekki í stóra samhenginu,“ segir Helgi Sæmundur Guðmundsson, annar tvíeykisins í einhverri vinsælustu rappsveit landsins, Úlfur Úlfur. Stígur bandið ásamt tónlistarfólkinu í Milky­ whale, AmabAdamA, Sóleyju, Kött Grá Pjé, dj. flugvél og geimskipi og DJ Silja Glømmi á svið á Kexi hosteli í kvöld, er blásið verður til styrktartón­ leika í ljósi þess að fimm ár eru liðin frá upphafi átaka í Sýrlandi. „Þetta snertir alla. Eins og staðan er núna eru um tvær og hálf milljón barna á flótta. Það skiptir máli að geta lagt sitt af mörkum í þessari söfnun, en allt sem kemur inn rennur óskipt til UNICEF. Allir listamennirnir og þeir sem að þessu koma gefa vinnu sína. Ég mun sömuleiðis pottþétt borga mig sjálfur inn,“ bendir Helgi á og bætir við að sannarlega séu forréttindi fólgin í að vera í þeirri stöðu að geta hjálpað með þessum hætti. Segist Helgi býsna ánægður með þá tónlistarmenn sem stefni á að pakk­ fylla Kex. „Þetta er góður vinahópur í rauninni. Við unnum með Kött Grá Pjé á síðustu plötu og erum þannig oft saman á tónleikum. Vorum með dj. flugvél og geimskipi um daginn og svo er alltaf ákveðin tenging við AmabA­ dama,“ segir hann og glottir. „Auk þess sem krakkarnir eru góðir vinir okkar, við höldum mikið með þeim. Þetta er allt saman toppfólk. Að einhver geti leitað til manns og maður þannig lagt hönd á plóg er mjög góð tilfinning. Við reynum eftir fremsta megni að hjálpa þegar við erum beðnir.“ Hefjast leikar klukkan 17.30 á morg­ un en Helgi og Arnar Freyr Frostason, mótherji hans í bandinu, loka kvöldinu og stíga á svið klukkan 22.30. Aðspurð­ ur um hvort þeir hagi prógramminu eitthvað öðruvísi á tónleikum er snerta á viðkvæmum málefnum samanborið við til dæmis Airwaves segir hann svo ekkert endilega vera. „Við ákveðum aldrei fyrirfram hvað við gerum heldur mætum bak við og metum stöðuna og stemninguna í salnum. Þannig að það kemur ekki í ljós fyrr en á reynir. Við erum reyndar ákveðnir í að spila lag sem við höfum aðeins einu sinni spilað, þá á Sónarhá­ tíðinni í ár. Það er ekki komið út, og ekki einu sinni komið nafn á það,“ segir hann og brosir. „Þeir sem ekki mæta geta sent sms í 1900 og lagt þannig 1.900 krónur inn á samtökin. En það kostar 1.500 krónur inn, svo maður nánast græðir á að koma og hlusta á fullt af góðri tónlist,“ segir hann og skellir upp úr. – ga munar ekkert um þennan klukkutíma Að einhver geti leitað til manns og maður þannig lagt hönd á plóg er mjög góð tilfinn- ing, segir Helgi Sæmundur Guðmundsson, annar meðlimur Úlfs Úlfs sem auk annarra banda safnar fyrir UNICEF á Kexi í kvöld. Hópurinn er ánægður með að geta lagt hönd á plóg og safnað peningum með þessum hætti. Fjörið hefst klukkan 17.30 og Úlfur Úlfur stígur á svið kl. 22.30 með lokaatriðið. Fréttablaðið/anton brink 1 7 . m a r s 2 0 1 6 F I m m T U D a G U r66 L í F I ð ∙ F r É T T a B L a ð I ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.