Fréttablaðið - 17.12.2016, Blaðsíða 2
Veður
Rólegt og þurrt veður framan af degi.
Gengur í suðaustan 10-18 síðdegis með
rigningu, en mun hægari norðaustan til
og úrkomulítið fram eftir degi. Hiti 0 til 7
stig. sjá síðu 72
Jólalegt í miðborginni
Það er orðið jólalegt um að litast í miðborg Reykjavíkur núna þegar einungis vika er í aðfangadag. Það upplifa ökumenn sem aka Lækjargötuna
glögglega. Líklega mun umferðin um götuna aukast jafnt og þétt næstu vikuna enda margir sem eiga enn margt ógert fyrir jólin. Fréttablaðið/GVa
Jólagjöf VITA
SUMAR 2017
Veglegur bókunarafsláttur
af völdum dagsetningum.
Gildir til 30. desember.
Vinsælustu gististaðirnir bókast fyrst.
VITA | Skógarhlíð 12 | Sími 570 4444 | VITA.IS
Kjaramál „Við erum að klára fiskinn
á mánudaginn. Við reynum að fá
einhvern afla frá smábátum en það
verður óverulegt magn, sérstaklega
núna yfir háveturinn. Á meðan verk
fallið varir sjáum við fram á að það
verði lítil sem engin vinna í boði,“
segir Sigurður Viggósson, fram
kvæmdastjóri fiskvinnslunnar Odda.
Verkfall sjómanna hófst á mið
vikudagskvöld þegar helstu stéttar
félög sjómanna höfnuðu kjara
samningum í kosningu. Niðurstaðan
var mjög afgerandi en rúmlega 86
prósent meðlima Sjómannafélags
Íslands höfnuðu samningnum.
Verkfallið hefur mikil áhrif á fisk
vinnslu í landinu og áætlar Heiðrún
Lind Marteinsdóttir, framkvæmda
stjóri Samtaka fyrirtækja í sjávar
útvegi, að það verði til þess að sjö
þúsund manns leggi niður störf.
Sigurður hefur áhyggjur af því að
erlendir markaðir tapist á meðan
verkfallið varir. „Norðmenn munu
geta útvegað fiskinn sem við getum
ekki á meðan verkfallið varir. Þeir
eru harðir sölumenn og munu ekki
sleppa tökunum af mörkuðunum
svo létt nái þeir að taka þá yfir,“
segir Sigurður. Hann segist sjá fram á
mikið tap í rekstri og verið sé að leita
leiða til að lágmarka skaðann. „Það
er djöfullegt að þetta skuli gerast,“
bætir hann við.
Sigurður vonast til þess að deilan
verði leyst fljótlega því annars sé
mikið atvinnuleysi fram undan hjá
fiskvinnslustarfsfólki.
Gunnþór Ingvarsson, fram
kvæmdastjóri Síldarvinnslunnar,
segir að engin vinnsla sé í gangi hjá
Síldarvinnslunni. „Það er augljóst að
á meðan flotinn er í landi, þá erum
við ekki að vinna,“ segir Gunnþór.
„Fiskvinnslan í Hnífsdal kláraði
að vinna þann fisk sem var til í gær,“
segir Sveinn Guðjónsson, verk
smiðjustjóri vinnslunnar. Fram
kvæmdastjóri Ísfélags Vestmanna
eyja, Stefán Friðriksson, reiknar
með að vinnslan geti starfað fram á
þriðjudag, en þá muni um hundrað
manns þurfa að hætta störfum.
Verkfall sjómanna kom engum
í opna skjöldu og hefur verð fisk
afurða hækkað mikið síðustu vikuna.
„Ég er nokkuð viss um að á meðan
verkfallið varir muni verð á fiski
hækka áfram. Það hækkaði strax í
þessari viku og það hækkaði tölu
vert í nóvember þegar sjómenn fóru
í verkfall þá,“ segir Eyjólfur Þór Guð
laugsson, framkvæmdastjóri Reikni
stofnunar fiskmarkaða.
Í tilkynningu frá Reiknistofnun
fiskmarkaða segir að ekkert uppboð
verði á fiskafurðum í dag af augljós
um ástæðum. „Það er auðvitað út af
verkfallinu, það er svo lítið magn til
sölu og okkur fannst ekki forsvaran
legt að kalla út alla tugi eða hundruð
manna fyrir nokkra tugi tonna af
fiski,“ segir Eyjólfur en í gær seldust
um tuttugu tonn af fiski á uppboði
fiskmarkaða en að meðaltali eru seld
um 350 tonn á dag.
thorgeirh@frettabladid.is
Fiskurinn að klárast
hjá fiskvinnslum
Áætlað er að um sjö þúsund manns leggi niður störf vegna verkfalls sjómanna.
Óttast er að Norðmenn taki yfir erlenda markaði á meðan verkfallið varir. Verð
fiskafurða hefur hækkað mikið í vikunni og búist er við að það hækki frekar.
Vélstjórar í verkfall
Félag vélstjóra og málmtækni-
manna hafnaði í gær í atkvæða-
greiðslu kjarasamningi við Samtök
fyrirtækja í sjávarútvegi. Rúm 66
prósent félagsmanna höfnuðu
samningnum og þátttakan var
um 70 prósent. Verkfall vélstjóra
og málmtæknimanna er því yfir-
vofandi.
Kjaramál „Krafa tónlistarskóla
kennara er hógvær, að njóta
sömu launakjara og kennarar við
aðrar skólagerðir,“ segir í ályktun
kennara við Tónlistarskóla Árnes
inga. Þeir „harmi það frost“ sem
einkennt hafi viðræður við samn
inganefndir sveitarfélaga.
„Ef fer sem horfir, að tónlistar
skólakennarar haldi áfram að drag
ast aftur úr í launakjörum miðað
við önnur aðildarfélög KÍ, er hætt
við að þeir hverfi til annarra starfa
og að það hafi áhrif og bitni á tón
listarfræðslu komandi ára. Það sem
tekið hefur áratugi að byggja upp,
má eyðileggja á örskotsstundu,“
segja kennararnir.
Bæjarráð Hveragerðis segist
hvetja „deiluaðila að leita allra
leiða til að ná samkomulagi hið allra
fyrsta“. – gar
Leysi deiluna við
tónlistarkennara
löggæsla Bæjarstjórn Ölfuss gagn
rýnir að í fjárlagafrumvarpi næsta
árs sé ekki gert ráð fyrir framhaldi á
sérstöku 76 milljóna króna framlagi
sem Lögreglustjórinn á Suðurlandi
fékk í gegn um Stjórnstöð ferðamanna.
Framlagið var til að efla eftirlit yfir
sumarið og síðari hluta árs í upp
sveitum Árnessýslu, hálendiseftirlit
og eftirlit í Öræfum. „Ef litið er til
Árnessýslu sérstaklega má benda á að
það er á engan hátt forsvaranlegt að
þar séu einungis tveir útkallsbílar eða
fjórir lögreglumenn á hverri vakt sem
sinna almennu eftirliti en þar búa um
fimmtán þúsund manns. Langflest
sumarhús landsins eru á því svæði og
auk þess eru þar langmest sóttu ferða
mannastaðir landsins,“ segir bæjar
stjórn Ölfuss. – gar
Óforsvaranlegt
lögregluástand
Í nógu að snúast.
Mynd/löGreGlan HVolsVelli
✿ Verðþróun á kílói af óslægðum þorski
9. des
216 kr.
10. des
232 kr.
12.des
253 kr.
13. des
276 kr.
14. des*
298 kr.
15. des
333 kr.
16. des
299 kr.
*Verkfall sjómanna hefst
lögreglumál Íslandsbanki hefur
lokið rannsókn á því hvort gögn
um verðbréfaviðskipti hæsta-
réttardómara sem fjallað hefur
verið um í fjölmiðlum hafi komið
frá bankanum. Í tilkynningu frá
bankanum segir að ekkert bendi til
að svo sé og að gögnin hafi verið
gömul og frá starfsemi Glitnis
banka fyrir hrun. Íslandsbanki
ætlar að óska eftir lögreglurann-
sókn vegna málsins.
Í tilkynningu frá bankanum
segir að rannsóknin hafi verið
gerð af innri endurskoðun bank-
ans, en gögnin sem um ræðir eru
háð þagnarskylduákvæði laga um
fjármálafyrirtæki. Íslandsbanki
lítur málið alvarlegum augum. – jhh
Bankinn lætur
rannsaka leka
Íslandsbanki telur ekkert
benda til þess að upplýsing-
arnar um viðskipti dómara
komi frá bankanum.
1 7 . d e s e m b e r 2 0 1 6 l a u g a r d a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð