Fréttablaðið - 17.12.2016, Blaðsíða 64
Ástkæra hjartans eiginkona mín,
móðir, fósturmóðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
Jónína Ísleifsdóttir
(Nína)
Bárðarási 11, Hellissandi,
lést á heilbrigðisstofnun Suðurnesja,
laugardaginn 10. desember sl.
Jarðsungið verður frá Dómkirkjunni í Reykjavík,
mánudaginn 19. desember nk. kl. 11.00.
Jón Einar Rafnsson
Magnús Þóroddsson
Skúli Berg Auður Yngvadóttir
María Petrína Berg S. Pétur Guðmundsson
Þorlákur G. Halldórsson Magnea Guðlaugsdóttir
Þóroddur Halldórsson Guðbjörg Sævarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir okkar og fóstri, afi og langafi,
Jón Ólafsson
húsgagna- og innanhússarkitekt
og kennari,
sem lést á Landspítalanum í Fossvogi
þriðjudaginn 6. desember verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju kl. 13.00 mánudaginn
19. desember nk. Þeim sem vilja minnast hans er bent
á Gigtarfélag Íslands.
Birna Sigurjónsdóttir
Guðný Sif Jónsdóttir Halldór Eyþórsson
Tómas Árni Jónsson María Jónsdóttir
Helga Aðalheiður Jónsdóttir Guðmundur Vilhjálmsson
Gunnar Björn Melsted Rannveig Gissurardóttir
Björg Melsted Heimir Örn Herbertsson
Páll Melsted Jóhanna Jakobsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug vegna andláts og
útfarar elskulegrar eiginkonu, móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Erlu Ásgeirsdóttur
Borgarhrauni 10, Hveragerði.
Ólafur Pétursson
Magnús K. Bjarkason Guðlaug Pálmadóttir
Hólmfríður Bjarkadóttir Páll Eggert Ólason
Anna Elín Bjarkadóttir
Pétur Már Ólafsson Aðalheiður Lára Guðmundsd.
Eva María Ólafsdóttir Bragi Konráðsson
ömmubörn og langömmubörn.
Þökkum auðsýnda samúð við
andlát og útför eiginkonu,
móður og ömmu okkar,
Jónínu Melsteð
hjúkrunarfræðings,
Brekkuseli 26.
Guð gefi ykkur gleðileg jól.
Gunnar Hjörtur Gunnarsson
Gunnlaugur M. Gunnarsson Halla Gunnarsdóttir
Ingibjörg Gunnarsdóttir Pétur Daníelsson
Sveinborg H. Gunnarsdóttir Eiríkur G. Ragnars
Gísli Héðinsson
og barnabörn.
„Fuglafár byrjaði sem skólaverk-
efni,“ segir Heiðdís Lilja um nýtt spil
um íslensku fuglana sem hún er höf-
undur að ásamt vinkonu sinni, Birgittu
Steingrímsdóttur. „Við vorum báðar í
háskólum, ég í vöruhönnun og Birgitta
í líffræði á þeim tíma. Okkur langaði að
sameina krafta okkar, bjuggum til eigið
verkefni og fengum styrk fyrir því hjá
Nýsköpunarsjóði námsmanna. Verk-
efnið var að rannsaka fuglaþekkingu
barna og í kjölfarið þróa og búa til spil
til að hjálpa þeim að læra í gegnum leik.“
Af hverju völdu þær fugla? „Birgitta
var að læra um fugla í Háskólanum og
komst þá að því hvað hún þekkti í raun-
inni fáa. Það sama var uppi á teningnum
hjá mér og við fórum að hugsa hvort
þetta væri kannski bara staðan í dag,
þar sem flest ungt fólk býr í þéttbýli og
er kannski ekki í svo miklum tengslum
við náttúruna. Okkur fannst að minnsta
kosti áhugavert að athuga það. Þannig
að kveikjan var okkar eigin fáfræði um
íslensku fuglana.“
Þær Heiðdís Lilja og Birgitta höfðu
samband við níu grunnskóla á höfuð-
borgarsvæðinu, fengu að fara inn í alla
fjórðu bekki og lögðu könnun fyrir tæp-
lega fjögur hundruð nemendur. „Við
sýndum krökkunum myndir af þeim 30
tegundum sem eru mest einkennandi
í íslenskri náttúru en þær eru samtals
75. Niðurstöður könnunarinnar voru
áhugaverðar því að meðaltali þekktu
börnin átta fugla hvert,“ lýsir Heiðdís
Lilja og heldur áfram. „Við höfðum ekk-
ert viðmið því svona könnun hefur aldr-
ei verið gerð áður en við vorum sammála
um að það væri að minnsta kosti gaman
að stuðla að því að auka þekkinguna.“
Sá fugl sem flest börnin báru kennsl
á var ugla, sem fæst höfðu þó séð í raun,
að sögn Heiðdísar Lilju. „Aftur á móti var
það þúfutittlingurinn sem fæst þeirra
þekktu þrátt fyrir að hann sé algengasti
spörfugl á Íslandi. Hann lætur nú líka
svo lítið yfir sér.“
Með spilinu segir Heiðdís Lilja þær
stöllur vilja sýna fram á að hver tegund
sé einstök og að eitthvað merkilegt sé
við alla fugla. En gátu þær gert spilið
spennandi fyrir utan að gera það að
fræðsluefni?
„Já, þetta er eiginlega tvíþætt spil, það
er sem sagt hægt að spila tvo leiki og þeir
eru skemmtilegir og spennandi. Eftir að
við gerðum fyrsta eintakið fórum við
með það í skóla og prófuðum það á
krökkum til að athuga hvort það félli í
kramið hjá þeim og sáum strax áhugann
vakna hjá þeim. Þá er líka markmiðinu
náð. Svo er það þannig að um leið og
maður kynnist fuglunum opnast fleiri
gluggar að náttúrunni svo við teljum
mikilvægt að þekkja þá.“
Heiðdís Lilja segir Fuglafár fyrir allan
aldur, það eina sem fólk þurfi að geta sé
að lesa. Hún telur upplagt fyrir fjölskyld-
una að spila það saman bæði heima og
að sjálfsögðu í sumarbústaðnum.
Þær Heiðdís Lilja og Birgitta hlutu
nýsköpunarverðlaun forseta Íslands
í byrjun þessa árs fyrir rannsóknina
í skólunum og þróun spilsins. Heið-
dís Lilja segir það hafa verið óvænt og
skemmtilegt. „Bæði verðlaunin og áhugi
fólks urðu okkur hvatning til að halda
áfram með verkefnið og koma spilinu í
framleiðslu. Það ferli var ekkert grín og
er búið að taka rúmt ár. En það var líka
þvílíkur skóli.“
Dömurnar eru báðar í námi. Heiðdís
Lilja enn í vöruhönnun við Listahá-
skólann og Birgitta í umhverfis- og auð-
lindafræði við Háskóla Íslands. Auk þess
eru þær á fullu þessa dagana að dreifa
spilinu í búðir. gun@frettabladid.is
Kveikjan var okkar eigin
fáfræði um íslensku fuglana
Heiðdís Inga Hilmarsdóttir og Birgitta Steingrímsdóttir hafa gefið út spilið Fuglafár sem
þær fengu nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir í byrjun þessa árs.
Heiðdís Lilja og Birgitta með fuglaspilið góða. FréttaBLaðið/Eyþór
Ugla var sá fugl sem flest börnin þekktu. FréttaBLaðið/arnþór Birgisson
Bæði verðlaunin og
áhugi fólks urðu okkur
hvatning til að halda áfram með
verkefnið og koma spilinu í
framleiðslu. Það ferli var ekkert
grín og er búið að taka rúmt ár.
En það var líka þvílíkur skóli.
1875 Fyrsta heildarlöggjöfin um ljósmæður gengur í gildi.
1903 Orville Wright flýgur fyrsta raunverulega flugið með flugvél.
1961 Indverjar ráðast inn í Góa.
1970 Hafrannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson kemur til landsins.
1975 Heimsminjaskrá UNESCO tekur gildi.
1989 Fyrstu frjálsu kosningarnar eru haldnar í Brasilíu eftir 25 ára
einræði.
Merkisatburðir
1 7 . d e S e m B e r 2 0 1 6 L A U G A r d A G U r64 t í m A m ó t ∙ F r É t t A B L A ð i ð