Fréttablaðið - 17.12.2016, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 17.12.2016, Blaðsíða 20
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Gunnar Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is Kæri fáviti. Til hamingju. Þú ert kominn í tísku. Árið 2016 var árið þitt. Árið 2016 var ár flónskunnar, árið sem vanþekkingin varð kúl, árið sem and-vits- munahyggjan hafði sérfræðingana undir, árið sem skoð- anir urðu jafnréttháar staðreyndum, árið sem tilfinningin trompaði allt. Árið 2016 var árið þegar appelsínugulur furðufugl, með rasíska munnræpu, króníska klípiþörf, stutta fingur, langa veggi á heilanum og aflitaðan þvotta- björn á höfðinu var kosinn forseti Bandaríkjanna. Árið 2016 var góðærisár þeirra sem vilja trúa því að jörðin sé flöt, konur séu heimskar, fóstureyðingar morð, sam- kynhneigð röng, útlendingar ófreskjur, einangrun góð, samvinna slæm, loftslagsbreytingar bull, fordómar fínir og fortíðin best. Þetta opna bréf er hins vegar ekki til allra fávita, heldur aðeins tiltekins fávita. Frelsi sem á nafnið skilið Einstaklingsfrelsið liggur til grundvallar flestum vest- rænum samfélögum – eða eins og heimspekingurinn og stjórnmálamaðurinn John Stuart Mill orðaði það í bók sinni Frelsið árið 1859: „Hið eina frelsi sem á nafnið skilið er frelsi til að freista gæfunnar að eigin vild.“ Flest erum við hlynnt frelsi einstaklingsins. Í því felst að við erum hlynnt frelsi fávitans til að vera fáviti. Mill hélt því þó einnig fram að frelsið hefði takmörk. Einstaklingurinn mætti gera það sem honum sýndist svo framarlega sem hann reyndi ekki að „svipta aðra gæfunni“. Með öðrum orðum, frelsi einstaklingsins tak- markaðist af því að gjörðir hans sköðuðu ekki aðra. Uppgangur flónskunnar „Heilbrigt barn fer til læknis,“ ritaði annar hugsuður og stjórnmálamaður. „Það er sprautað með risastórri sprautu með alls konar bóluefnum, því líður illa og það breytist – EINHVERFA. Dæmin eru fjölmörg!“ Svo mælti verðandi forseti Bandaríkjanna, Donald Duck … nei ég meina Trump, á Twitter árið 2014. Fréttir bárust af því nýverið að nýfædd dóttir þingkon- unnar Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur lægi veik á spítala með kíghósta, lífshættulega öndunarfærasýkingu. Stúlkan smitaðist aðeins sex vikna gömul. Þar sem börn eru ekki bólusett fyrir kíghósta fyrr en við þriggja mánaða aldur hafði barnið enga vörn gegn sjúkdómnum. Dóttir Þórdísar hefði þó ekki átt að þurfa að smitast af þessum hræðilega sjúkdómi. Bólusetningum er ekki aðeins ætlað að vernda þann sem bólusetninguna fær. Mikilvægt er að sem flestir séu bólusettir svo að til verði „hjarðónæmi“. Í því felst að ef bólusetning í þjóðfélaginu er almenn næst að hefta nánast alveg útbreiðslu bakteríunnar eða veirunnar sem veldur sjúkdómi. Þannig verndum við þá sem ekki er hægt að bólusetja – eins og nýfædd börn. „Foreldrar sem ekki bólusetja börnin sín; skamm- ist ykkar og lesið ykkur til,“ skrifaði Þórdís Kolbrún á Facebook-síðu sína. Á uppgangsárum flónskunnar virðist suma lengja eftir angurværum einfaldleika hinna myrku miðalda. Fjöldi fólks er hættur að láta bólusetja börnin sín. Kæri fáviti, þetta bréf er til þín. Að freista ógæfunnar Kæri fáviti. Árið 2016 var ár þeirra sem trúa á frelsi heimsk unnar og stunda upphafningu fáviskunnar. Árið 2016 var árið sem Bandaríkjamenn kusu sér forseta sem fer með staðlausa stafi um skaðsemi bólusetninga. Árið 2016 var árið þitt. Samkvæmt hugmyndum okkar um frelsi er fávitanum frjálst að vera fáviti; honum er frjálst að freista gæfunnar – eða ógæfunnar – eins og honum sjálfum sýnist, jafnvel þótt ákvarðanir hans kunni að stuðla að darwinískri tortímingu gena-garma hans sjálfs. Honum er hins vegar ekki frjálst að skaða aðra með ákvörðunum sínum. Þeir sem bólusetja ekki börn sín skaða aðra. Vegna almennrar þátttöku Íslendinga í bólusetningum hefur ekki verið talin þörf á að gera bólusetningu að skyldu. Eftir því sem fleiri ákveða að bólusetja ekki börn sín gæti þó þurft að endurskoða þá stefnu. Því réttur fávitans til að vera fáviti trompar ekki rétt sex vikna gamals barns til lífs. Opið bréf til fávita Er ekki kominn tími til að gera þá kröfu? Fyrirmynd- irnar eru allt í kringum okkur. Áhugavert verður að sjá hvort þing-mönnum tekst að samþykkja fjárlaga-frumvarpið áður en hátíðirnar ganga í garð. Við þær aðstæður sem nú ríkja í pólitíkinni er vinnan við frumvarpið ágætur prófsteinn á samtakamátt þing- manna og viljann til að gera málamiðlanir. Starfsstjórn Sigurðar Inga forsætisráðherra situr enn í stjórnarráðinu og fátt í spilunum sem bendir til þess að breyting verði á í bráð. Sigurður Ingi sjálfur hefur stigið fram og bent á hið augljósa, nú séu sjö vikur frá kosningum og ekkert hefur gengið að mynda meiri- hlutastjórn. Þá þurfi stjórnmálamennirnir að fara að íhuga nýja leiki í stöðunni. Sigurður tiltók þann kost að þingmenn sammæltust um minnihlutastjórn sem hefði skýran verkefnalista fram að næsta vori. Þá skyldi kosið á nýjan leik. Útspil Sigurðar Inga er áhugavert af nokkrum ástæðum. Í fyrsta lagi nefnir hann þarna stjórnarform sem lítil hefð er fyrir á Íslandi, þótt vissulega þekki frændfólk okkar á Norðurlöndunum minnihlutastjórnir, oftast að góðu. Slík stjórn þyrfti í auknum mæli að leita málamiðlana, minni hvati yrði til stóryrða og meiri til samstarfs við kollega sem alla jafna teldust pólitískir andstæðingar. Þetta væri alveg örugglega gott fyrir íslenska stjórnmálamenningu ef vel tækist til. Við sjáum líka af síðustu sjö vikum að landið fer nú ekki á hliðina þótt ríkisstjórn styðjist ekki við meirihluta þingsins. Í öðru lagi gætu orð Sigurðar Inga orðið foringjum flokkanna, sem reynt hafa að mynda stjórn, hvatning til að leggja enn harðar að sér í samningum. Einnig skiptir máli að landslagið í pólitíkinni er gerbreytt. Einn spánnýr flokkur sem vann mikinn kosningasigur, og tveir til viðbótar, sem ekki eiga sér langa sögu, nutu mikils fylgis. Óvíst er að nýju fólki í nýjum flokkum hugnist að kjósa strax og eiga á hættu að missa þing- sæti sín. Ljóst er að kominn er tími til að fara ótroðnar slóðir. Þrír raunhæfir kostir eru í stöðunni. Sá fyrsti er meirihlutastjórn þriggja eða fleiri flokka, annar er minnihlutastjórn sem þarf að semja um einstök mál eða starfar í skjóli flokka, sem ekki sitja stjórninni. Þriðji kosturinn er nýjar kosningar innan tíðar. Fyrstu kostirnir tveir krefjast málamiðlana og þroska til að vinna saman. Er ekki kominn tími til að gera þá kröfu? Fyrirmyndirnar eru allt í kringum okkur. Í þriðja kostinum felst uppgjöf. Þar fyrir utan gæti staðan eftir nýjar kosningar verið álíka flókin því að margt bendir til að pólitískt landslag sé breytt til fram- búðar. Flokkarnir, hvorki gamlir né nýir, geta ekki gengið að kjósendum vísum eins og áður var. Sú tíð er sem betur fer liðin að stórir fjársterkir flokkar eigi einir greiðan aðgang að kjósendum, sem taki þegjandi við fagnaðarerindinu. Nú geta allir látið í sér heyra, jafnvel án þess að hafa aðgang að digrum sjóðum. Snúin staða Við IKEA stöðin sjötta situr, saman við Garðabæ pössum. Þar hleður þú bíl og heim svo flytur húsbúnað í flötum kössum. Við IKEA er ein af 13 hraðhleðslu stöðvum ON. 1 7 . d e s e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r d A G U r20 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð i ð SKOÐUN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.