Fréttablaðið - 17.12.2016, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 17.12.2016, Blaðsíða 58
Frá sjötta desember 1950 til sjöunda janúar 1951 hélt Knattspyrnufélagið Fram níu dansleiki með vínveit-ingum í hinum og þessum öldurhúsum Reykjavíkur. Skemmtanagleðin var ekki bundin við þá bláklæddu. Í skýrslu Áfengis- varnarnefndar bæjarins kom fram að á tímabilinu ágúst til desember 1950 héldu íþróttafélög höfuðstað- arins tugi skemmtana með leyfum til áfengissölu. Frjálsíþróttadeild KR var einna iðnust við kolann með tuttugu dans- leiki. Ármenningar, ÍR-ingar og Fram- arar voru á svipuðu róli og svo virtist sem Skíðadeild Æskulýðsfylkingar Sósíalistaflokksins hugsaði meira um skemmtanahald en að renna sér á skíðum eða vinna að framgangi öreigabyltingarinnar. Ekki var þó allt sem sýndist. Dansleikjafarganið hafði í raun minnst með íþróttastarf að gera, heldur var það birtingarmynd stefnu hins opinbera í áfengismálum. Árið 1935 var afnumið á Íslandi áfengisbann sem verið hafði í gildi í um tvo áratugi. Áfengisverslun rík- isins tók til starfa og hóf þegar fram- leiðslu á brennivíni, sem ætlað var að leysa af hólmi stórfellda landafram- leiðslu um allar sveitir. Rúmum ára- tug áður höfðu landsmenn þó fengið að gæða sér á nokkrum tegundum suður-evrópskra vína að kröfu spænskra stjórnvalda sem hótuðu að öðrum kosti að setja innflutnings- bann á íslenskan saltfisk. Við afnám bannlaganna varð Hótel Borg eini veitingastaður landsins með fast áfengisleyfi. Borgin naut sérstakrar velvildar í stjórnkerfinu, enda veitingamaðurinn Jóhannes Jósefsson ágætlega tengdur bæði ungmennafélagshreyfingunni og Framsóknarflokknum. Raunar hafði Jóhannes reist hótelið að áeggjan ríkisvaldsins og notið til þess ríkis- ábyrgðar. Það gerðist í aðdraganda Alþingishátíðarinnar 1930, þar sem von var á fjölda erlendra gesta og því talið brýnt að koma upp hóteli sem stæðist alþjóðlegan samanburð. Til að styrkja rekstrargrundvöll hins nýja hótels enn frekar fékk það eitt að selja Spánarvínin eftirsóttu, en öðrum gistiheimilum bæjarins var synjað um vínsöluleyfi. Saga til næsta bæjar Stefán Pálsson skrifar um fjáröflun á villi- götum vík tók talsverðum breytingum á heimsstyrjaldarárunum og næstu misserin þar á eftir. Landsmenn höfðu meira á milli handanna og sífellt fleiri vildu lyfta sér upp á dans- leikjum og þá helst með Bakkus í för. Árið 1946 voru gefin út um 400 sérstök vínveitingaleyfi í Reykjavík, en fjórum árum síðar voru þau nálega þrefalt fleiri. Sú fjölgun sagði minnst um grósku í félagsstarfi, því í langflestum tilvikum var um að ræða að félög gerðust, gegn lítilsháttar þóknun, leppar fyrir dansleiki sem tengdust þeim að öðru leyti ekkert. Þau félög sem létu freistast til að lána veitingamönnum nafn sitt voru af ýmsu tagi, en fyrir bindindisforkólfa lágu íþróttafélögin eðlilega best við höggi. Yfirlýst mark- mið þeirra var að stuðla að líkamlegu heilbrigði félagsmanna sinna og því hlálegt að sjá þau tengjast alræmdum sukksamkomum með þessum hætti. Gerðu templarar sér að leik að tala um áfengisböllin í Reykjavík sem „drykkju- skóla íþróttafélaganna“. Í kynningu á fyrr- nefndri skýrslu í febrúar 1951 skutu fulltrúar Áfengisvarnarnefndar föstum skotum á for- ystu íþróttahreyfingar- innar. Einkum var Gísli Sigurbjörnsson, einn nefndar manna, harð- orður. Sagðist hann vonast til að félögin létu af þessu háttalagi með góðu, en að öðrum kosti yrði að grípa til róttækari aðgerða. Óeðlilegt væri áfengis umræðan óþægileg, en þeir voru þó til sem sáu enga ástæðu til að skammast sín heldur svöruðu fullum hálsi. Reiður bréfritari í Morgunblað- inu sem kallaði sig „Íþróttamann“ sakaði Gísla um að hafa sjálfur veitt áfengi á samkomum í tengslum við komu þýskra knattspyrnumanna til Íslands, en Gísli (sem einatt var kenndur við elliheimilið Grund) var kunnur áhugamaður um íslensk/þýsk menningarsamskipti. Sportblaðið, sem var skammlíft tímarit um íþróttamál, gekk skrefinu lengra. Það mótmælti í tvígang þeirri ósvinnu að Gísli Sigurbjörnsson væri fenginn til að vera fararstjóri í ferð Framara og Víkinga til Vestur-Þýska- lands þetta sama sumar í ljósi lúalegra skrifa hans um íþróttahreyfinguna sama ár. Þeir sem reiddust skrifum Gísla og félaga töldu gagnrýnina ósann- gjarna þar sem látið væri að því liggja að íþróttamenn væru öðrum drykk- felldari. Hér væri hins vegar aðeins um skiljanlega sjálfsbjargarviðleitni Reykjavíkurfélaganna að ræða. Starfsemi þeirra væri mikilvæg en kostnaðarsöm, einkum þar sem flest félögin ynnu að því að koma sér upp félagssvæðum og -heimilum, en nytu til þess mjög takmarkaðra styrkja. Í stað þess að hnýta í íþróttamenn fyrir að reyna að bjarga sér, ættu templarar að leggja til aðrar og betri fjáröflunar- leiðir fyrir blönk íþróttafélögin. Raunar urðu deilurnar um vín- veitingaleyfi íþróttafélaganna til þess að ýta við slíkum umræðum. Íþróttabandalag Reykjavíkur sam- þykkti á ársþingi sínu árið 1951 að reyna að stofnsetja svokallað bingó- happdrætti sem sagt var að banda- rískri fyrirmynd. Í raun var um hefð- bundið bingó að ræða, en hugmynd íþróttamannanna var sú að fá að selja spjöldin og draga út tölur á öllum opinberum skemmtunum. Einkum höfðu menn kvikmyndahúsin í huga þar sem draga mætti í hléi eða á undan sýningum, þar sem saman væru komnir stórir hópar fólks í öðrum erindagjörðum. Bjarni Benediktsson dómsmálaráð- herra, sem hafði mikið látið sig varða málefni íþróttafélaganna í borgar- stjóratíð sinni, féllst á að flytja laga- frumvarp þessa efnis. Þingmenn voru hins vegar varfærnari og gerðu þá veigamiklu breytingu á frumvarpinu að leyfið einskorðaðist við auglýstar samkomur íþróttafélaganna sjálfra. Draumurinn um að bingóspjald til styrktar íþróttamálum yrði jafnsjálf- sagður hlutur af bíóferðinni og popp og kók fór því fyrir lítið og bingó- happdrættið varð ekki veigamikil fjáröflunarleið. Sama ár og bingó-tilraunin hófst og fór út um þúfur, ýttu íþróttamenn öðru fyrirtæki úr vör sem virtist líf- vænlegra. Í aprílmánuði 1952 gátu Íslendingar í fyrsta skipti veðjað á tólf leiki á getraunaseðlum Íslenskra getrauna. Varð Ísland þar með eitt síðasta landið í Vestur-Evrópu til að hefja rekstur íþróttagetrauna, en slík heimild hafði raunar verið bundin í lög þegar í tengslum við setningu íþróttalaganna árið 1940. Knattspyrnuleikir voru fyrirferðar- mestir á getraunaseðlinum. Stundum var boðið upp á íslenska leiki eða skandinavíska, en enski boltinn var þó í aðalhlutverki frá byrjun. Hinn nýi leikur fór vel af stað fyrstu vik- urnar, en salan féll um sumarið og náði sér í raun aldrei aftur á flug. Sölu- kerfið var veikburða og byggðist mjög á dugnaði einstakra íþróttafélaga. Þá þótti mörgum leikurinn strembinn – enda gerðist það aðeins einu sinni á árinu 1952, í 28 leikvikum, að 12 réttir næðust. Getraunarekstur sjötta áratugarins var fjarri því að skila þeim tekjum sem vonir höfðu staðið til, en íþrótta- menn reyndu þó að halda skútunni á floti enda getraunir taldar gullnáma í flestum nágrannalöndunum. Árið 1956 lognaðist tilraunin þó endan- lega út af . Þrettán ár áttu eftir að líða uns fótboltagetraunir voru endur- vaktar hér á landi. Í það skiptið gekk dæmið öllu betur upp, enda sjón- varpið komið til sögunnar með geysi- vinsælum þáttum um ensku knatt- spyrnuna. DanS- leikja- farganið hafði í raun minnSt með íþrótta- Starf að gera … Undanþágur fyrir félög Sem vænta mátti kunnu eigendur annarra samkomustaða þessari mis- munun illa og til að bæta úr því var heimilað að gefa út áfengisleyfi til eins kvölds í einu fyrir samkomur hvers kyns félagasamtaka. Fyrir vikið varð talsverður hvati fyrir veitinga- menn að leita samstarfs við átthaga- félög, stjórnmálasamtök eða aðra hópa varðandi dansleikjahald og varð það til að efla félagsstarfsemi af ýmsum toga. Fyrstu árin virðast raunverulegar skemmtanir á vegum félaga og hópa hafa staðið á bak við flest eða öll áfengisleyfin, en með tímanum fór að slakna á því. Skemmtanalífið í Reykja- Drykkjuskólar íþróttafélaganna að hið opinbera veitti styrki þeim íþróttafélögum sem ekki höfnuðu algjörlega hvers kyns vínveitingum. Sjálfur sagðist Gísli hafa ákveðið að segja sig úr sínu íþróttafélagi, Víkingi, ef hann frétti oftar af slíkum veigum á samkomum þess. Athugasemdir nefndar- innar og Gísla sérstaklega, ollu miklum taugatitringi innan íþróttahreyfingarinnar. Þar innandyra voru margir á sama máli og samþykkti Íþróttasam- band Íslands strangar reglur þar sem aðildarfélögum var bannað að bjóða upp á áfengi á skemmtunum sínum að við- lögðum refsingum á borð við keppnis bann. Íþróttabanda- lag Reykjavíkur taldi hins vegar óframkvæmanlegt að skikka einstök aðildar- félög til að taka upp algjört bindindi og raunar utan verksviðs íþróttahreyf- ingarinnar. Leitað nýrra leiða Nokkuð dró úr áfengis- dansleikjum íþrótta- félaganna fyrst í stað, en fljótlega fór allt í sama farið. Þessi matarhola Reykjavíkurliðanna lokaðist hins vegar af sjálfu sér á árinu 1952 þegar dómsmálaráðu- neytið tók sjálft yfir alla veitingu skamm- tímaleyfa. Í kjölfarið endurskoðaði Alþingi áfengislöggjöfina og þurftu veitingastaða- eigendur eftir það ekki að leita á náðir frjálsra félagasamtaka til að leppa vínsöluleyfi sín. A l m e n n t þ ó t t i í þ r ó t t a f r ö m u ð u m 1 7 . d e s e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r d A G U r58 h e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.