Fréttablaðið - 17.12.2016, Blaðsíða 12
Efnahagsástandið í Venesúela virð-
ist fara versnandi en nú ríkir seðla-
skortur í landinu þar sem ákveðið
hefur verið að taka verðmætasta
seðilinn, 100 bólívara, úr umferð.
The Economist greinir frá því að
11. desember hafi verið tilkynnt um
þetta og að íbúar hefðu 72 tíma til
að skipta seðlinum í banka. Þetta
hefur skapað gríðarlega ringulreið
en áætlað er að yfir helmingur af
seðlum í umferð séu 100 bólívara
seðlar.
Óðaverðbólga hefur nú ríkt um
skeið í Venesúela og mælist nú 500
prósent samkvæmt frétt BBC um
málið. Nú eru 100 bólívarar ein-
ungis jafnvirði tveggja bandarískra
senta á svarta markaðnum. Nýir
seðlar eiga að vera komnir í umferð
í janúar en í vikunni mynduðust
gríðarlegar raðir í bönkum landsins
þar sem fólk var að reyna að skipta
seðlunum sínum. Sérfræðingar
telja að það að taka seðilinn úr
umferð muni hafa lítil jákvæð áhrif
á efnahagslegan og stjórnmálalegan
vanda landsins.
Gríðarleg fátækt ríkir nú hjá
íbúum sem áður fyrr höfðu það
gott, meðallaun eru nú jafnvirði 50
dollara á svarta markaðnum sam-
tímis því að verð á mat og öðrum
nauðsynjum hefur rokið upp. Ein
móðir segir í samtali við Reuters
að hún hafi þurft að láta nágranna
um að ala upp dóttur sína þar sem
það væri betra en að barnið færi út
í vændi, fíkniefni eða myndi ein-
faldlega láta lífið vegna næringar-
skorts. Engar tölur liggja fyrir um
hve margir foreldrar hafa þurft að
gefa börnin sín vegna ástandsins en
ljóst er að þetta er veruleiki hjá ein-
hverjum fjölskyldum.
Gengi bólívars hefur lækkað um
60 prósent á síðustu tveimur mán-
uðum. Í stað 100 bólívara seðla eiga
íbúar að fá seðla með hærri upp-
hæð eða sem nemur 10 þúsund
og 20 þúsund bólívörum, en frá og
með gærdeginum voru þeir ekki
komnir í umferð. Ljóst er að mikil
ringulreið mun ríkja þar til tekist
hefur að útdeila nýjum seðlum til
íbúa landsins. saeunn@frettabladid.is
Venesúelabúar gefa
börn vegna ástandsins
Gríðarleg ringulreið ríkir nú í Venesúela vegna seðlaskorts en ákveðið hefur
verið að taka algengasta seðil landsins úr umferð. Verðbólga hefur aukist um
500 prósent á undanförnum misserum og eru fjölskyldur farnar að gefa börn.
Íbúar Venesúla hafa beðið í marga klukkutíma í röðum til að skipta seðlum sínum síðustu daga. Fréttablaðið/EPa
500%
verðbólga ríkir nú í
Venesúela í Suður-Ameríku.
100
bólívara seðillinn hefur verið
tekinn úr umferð.
mArkAðurinn
LA PALMA
Netverð á mann frá kr. 120.785 m.v. 2 fullorða og
2 börn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 159.995
m.v. 2 í herbergi.
Hotel La Palma
Princess
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra
.
Kanaríeyjan
Frá kr.
120.785
m/allt innifalið
22. des. í 10 nætur
Um jólin
20.000 kr.
afsláttur á mann
v/forfalla
„Þessi saga snerti mig djúpt.“
Ágúst Borgþór Sverrisson / DV
s o n n e t t a n
Advania er með
allan pakkann
advania.is/jol
Far- og spjaldtölva
Dell Inspiron 13 " - 17 "
verð frá: 114.990 kr.Net tur og kramikill
hátalari
Creative Muvo Bluetooth
verð: 10.990 kr.
NÝJA
SENDIBÍLASTÖÐIN
...á þínum vegum!
568 5000
1 7 . d e s e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r d A G U r12 f r é t t i r ∙ f r é t t A b L A ð i ð