Fréttablaðið - 17.12.2016, Side 4

Fréttablaðið - 17.12.2016, Side 4
Ásta Sigrún Helgadóttir umboðsmaður skuldara segir hlutfall ungs fólks sem biðji um aðstoð hafa vaxið veru- lega frá banka- hruni og tekið kipp í ár. Ástæðan sé vandræði vegna neysluskulda. Ásta kveðst hafa áhyggjur af því úrvali tilboða á markaðnum í dag þar sem fólk sé hreinlega hvatt til skuldsetningar, til dæmis með Netgíró. Hlutfall ungra sem sóttu um greiðsluað- lögun óx úr 7% árið 2011 í 24% í ár. Elva Simondsen íbúi í Gimli í Kanada segir haldið í íslenskar jóla- hefðir á Íslend- ingaslóðum. Jóla- sveinarnir hafi þó aðeins komið á aðfangadag því að alltof langt sé fyrir þá að ferðast daglega frá Íslandi. Hún kveðst hafa átt erfitt með að átta sig á jólasveinum sem bjuggu í fjöllum enda engin fjöll að finna hjá henni. Elva bjó á kalkúnabúgarði og jólamaturinn var því kalkúnn. Eygló Harðardóttir félags- og hús- næðismálaráð- herra minnti sveitar- félög á ábyrgð þeirra við að sporna gegn hækkandi fasteignaverði í landinu. Í bréfi til stærstu sveitar- félaganna á höfuðborgarsvæðinu lýsti ráðherrann yfir áhyggjum af lóðaskorti. Nægjanlegt framboð af lóðum yrði að vera til að tryggja að húsnæðisverð hækkaði ekki eins mikið og sést hefði undanfarin ár. Þrjú í fréttum Neysla, jólastúss og íbúðaverð Tölur vikunnar 11.12.2016 Til 17. 12. 2016 „… einkar þægileg og skemmtileg ... ein hans frumlegasta og óvæntasta skáldsaga.“ MAGNÚS GUÐMUNDSSON / FRÉTTABLAÐIÐ „Passíusálmarnir eru, líkt og Stormur, stórskemmtileg bók, sannur skemmtilestur.“ KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR / DV www.forlagid.i s | Bókabúð Forlagsins | F i sk i slóð 39 40% íþróttamanna hafa fengið höfuð­ högg sem leiddi til einkenna heila- hristings, samkvæmt rannsókn. 55% fjölgun er á sendingum frá erlendum verslunum til einstaklinga milli nóvember 2015 og 2016. 100 kennarar sögðu starfi sínu lausu vegna kjara­ mála. Hluti dró uppsögnina til baka; aðrir liggja undir feldi. 4.500 metra djúp er bor- hola í djúpborunarverkefninu á Reykjanesi orðin. 100 eldri útgerðir eru að baki 12 stærstu fyrirtækjun­ um í sjávarútvegi í dag. 5 menn voru handteknir í tengslum við rann­ sókn á stóru fíkniefnamáli nýlega – fjórir þeirra voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald.80 til 90 metra háar er talið að vindmyllur sem hér rísa í framtíðinni verði. 40% af viðskiptum almenn­ ings eru greidd með kreditkorti – sem er miklu hærra hlutfall en í öðrum ríkjum Evrópu. Dómsmál „Hvað varðar mansalsmál þá er það ljóst að brotaþolar eru ekki alltaf stöðugir í framburði eða segja rétt frá atvikum máls, sem getur skýrst af þeim aðstæðum sem brota- þolar eru í,“ segir Arnþrúður Þórar- insdóttir, saksóknari hjá héraðssak- sóknara, almennt um mansalsmál. Kristrún Elsa Harðardóttir, rétt- argæslumaður tveggja kvenna frá Srí Lanka sem höfðu stöðu þolenda mansals á árinu, gagnrýnir harðlega að ekki hafi verið gefin út ákæra í meintu vinnumansali í Vík í Mýr- dal. Konurnar fengu 5.200 krónur greiddar á viku fyrir vinnu sína og frítt fæði og húsnæði. „Ef ekki á að líta til framburðar brotaþola, meðal annars um þætti eins og vinnuframlag og aðbúnað, þá þurfa aftur á móti að vera til staðar í viðkomandi máli einhver gögn sem hnekkja framburðinum. Líkt og kveðið er á um í lögum um meðferð sakamála þá er ekki ákært í málum nema þau séu talin nægileg eða líkleg til sakfellingar fyrir dómi. Gildir það jafnt um mansalsmál sem önnur sakamál,“ segir Arnþrúður. Þótt Arnþrúður tjái sig ekki um atvik einstakra mála útskýrir hún hvaða þættir koma til við mat henn- ar á málum er varða ætlað mansal. „Í þeim tilvikum sem mál varða ætlað vinnumansal þá þarf í fyrsta lagi að vera uppfyllt skilyrði um nauð- ungarvinnu. Hugtakið „nauðungar- vinna“ er ekki sérstaklega skilgreint í almennum hegningarlögum eða greinargerð með lögunum. Við mat á því hvort um nauð- ungarvinnu er að ræða verður því að líta til skilgreiningar á hugtakinu samkvæmt orðanna hljóðan og skil- greiningar í alþjóðasáttmálum og dómaframkvæmd ef henni er fyrir að fara. Út frá því er ljóst að við mat á nauðungarvinnu kemur meðal ann- ars til skoðunar hvert vinnuframlag er, hvort og þá hvert endurgjald er fyrir vinnuframlagið og aðbúnaður á vinnustað,“ segir Arnþrúður, Kristrún Elsa segir saksóknara ekki hafa skilning á aðstæðum þol- enda mansals hvað varðar þetta mat og gagnrýnir að frítt húsnæði og fæði sé talið til greiðslu. Andrés Ingi Jónsson, nýkjör- inn þingmaður Vinstri grænna, tók málið upp á Alþingi í gær í umræðum um störf þingsins. „Það er almennt þekkingar- og skilnings- leysi á eðli mansalsmála í réttarkerf- inu,“ sagði Andrés Ingi. „Samkvæmt aðgerðaáætlun gegn mansali hefur átt að fræða lögreglu, saksóknara og dómara. Eftir því sem fréttir segja virðist lögregla hafa staðið sig vel í þessu máli en svo strandar á sak- sóknarstiginu.“ Mansalsþáttur málsins hefur verið felldur niður en málið er rannsakað áfram sem brot gegn atvinnurétt- indum útlendinga. kristjana@stod2.is og thorgeir@frettabladid.is Réttargæslumaður gagnrýnir vinnubrögð í mansalsmáli í Vík Réttargæslumaður segir saksóknara ekki hafa skilning á aðstæðum þolenda mansals. Alþingismaður telur að mansalsmálið í Vík í Mýrdal hafi strandað hjá saksóknara. Telur réttarkerfið skorta þekkingu í mansalsmálum. Lögreglan rannsakar hvort brotið hafi verið gegn lögum um atvinnuréttindi útlendinga. grunur vaknaði um að mansal væri stundað í Vík í mýrdal. Saksóknari ákvað að ákæra ekki í málinu. Fréttablaðið/Heiða Það er almennt þekkingar- og skilningsleysi á eðli mansals- mála í réttarkerfinu. Andrés Ingi Jónsson, alþingismaður 1 7 . D e s e m b e r 2 0 1 6 l a u G a r D a G u r4 f r é T T i r ∙ f r é T T a b l a ð i ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.