Fréttablaðið - 17.12.2016, Page 38

Fréttablaðið - 17.12.2016, Page 38
Það ætti aldrei að dæma bók eftir kápunni en hún skiptir samt máli. Bókarkápa er nefnilega hluti af heildarupplifun lesandans og svo skiptir líka máli að hún sé bæði sölu- vænleg og eiguleg. Hér hefur því galvösk sveit álitsgjafa tekið að sér að velja fallegustu og ljótustu bókarkápur jólabókaflóðsins í ár. Allt er þetta þó auðvitað aðeins til gamans og gert og engin ástæða til þess að taka þetta of hátíðlega. Codex 1962 er fallegasta bókarkápan 1. sæti Codex 1962 Höfundur: Sjón Kápuhönnun: Alexandra Buhl Útgefandi: Forlagið Grípur strax augað og ber af öðrum bókakápum eins og fullt tungl á svörtum vetrarhimni. Dáleiðandi og ofurtöff. Segi kannski ekki að kápan sé falleg en maður kemst ekki hjá því að taka eftir henni. Svolítið eins og kassi utan um rakspíra en samt eitthvað svo skemmtilegt við þessa kápu. Fallegasta bókarkápan 2016 Hvernig var hægt að gera svona dauflega kápu á bók um konu sem slær mann eins og hreint náttúruafl? Hvað er í gangi hér? Var virkilega ekki hægt að láta þessa sögu virka meira heillandi en að stilla fallegu bóndakonunni upp eins og á forsíðu gamals lækna- rómans – „Doktor Lambert er á leiðinni …“ Ljótasta bókarkápan 2016 Codex 1962 fékk líka atkvæði sem ljótasta kápan: Þetta gefur einhvern veginn tilfinningu fyrir alveg sterílum texta – er alltof líkt Vísindabók Villa. Þetta beinlínis fælir mann frá lestri. Þetta er býsna djarft en gengur fullkomlega upp. Eftiröpun á hinu helga riti er fullkomin umgjörð um þennan titil. Það fór bókstaflega um mig hrollur þegar ég tók hana uppúr umslaginu. Fallegt er kannski ekki fyrsta lýsingarorðið sem ætti að nota við þessa kápu en mögnuð og sterk er hún sannar- lega. Manni snöggkólnar – það kvikna margar tilfinningar! 2. sæti Svarti galdur Höfundur: Stefán Máni Kápuhönnun: Kontor Reykjavík Útgefandi: Sögur 1. Sæti Verjandinn Höfundur: Óskar Magnússon Kápuhönnun: Jón Ásgeir Hreinsson Útgefandi: JPV Nútímaleg, einföld og aðlaðandi. Mjög falleg og náttúruleg kápa. Virkilega falleg. Einföld og aðlaðandi. Bók sem er notalegt að fá í hendurnar. 3. sæti Hestvík Höfundur: Gerður Kristný Kápuhönnun: Alexandra Buhl Útgefandi: Forlagið Eins og fimm bókakápur hafi verið settar í hakka- vélina áður en þeim var hellt á eina blaðsíðu. Hvað er að gerast hér? Margar leturtýpur, margir litir, margar myndir, mörg form – hér hefði sannarlega mátt einfalda til að fanga augað og vekja meiri áhuga á efninu. Höfðar engan veginn til mín, mjög gamaldags tónn og frekar óþægileg samsetning á öllu saman – formum, litum og letri. Hvar er spennan? Leturmeðferðin er afleit og þessi flatarleikur skrítinn. Vond hugmynd hjá höfundi að hanna kápuna sjálfur. 2. sæti Einfari Höfundur: Hildur Sif Thorarensen Kápuhönnun: Hildur Sif Thorarensen Útgefandi: Óðinsauga Álitsgjafar Fréttablaðsins Arndís Lilja Guðmundsdóttir grafískur hönnuður Hödd Vilhjálmsdóttir almannatengill Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður Jón Kaldal ritstjóri Ólöf Birna Garðarsdóttir grafískur hönnuður Þorsteinn Joð Vilhjálmsson kvikmyndagerðarmaður Elsku Drauma mín, minningabók Sigríðar Halldórsdóttur, Vigdís Grímsdóttir skráði. Kápuhönnun Jón Ásgeir Hreinsson og útgefandi JPV. Þessi kápa kom talsvert til umræðu og á lokametrun- um barst athyglis- verð ábending. Við hlið bókarkápunnar má hér sjá vegg- spjald frá banda- rísku hljómsveitinni Lady Danville, seinna Hunter Hunted, í tengslum við plötuna Operating. Líkindin eru óneitan- lega sláandi eða eins og álitsgjafi lét hafa eftir sér: Alveg galið! 3. sæti Heiða – fjalldalabóndinn Höfundar: Steinunn Sigurðardóttir og Heiða Ásgeirsdóttir Kápuhönnun: Aðalsteinn Svanur Sigfússon Útgefandi: Bjartur Mest í umræðunni 1 7 . d e S e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r d A G U r38 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð bækur

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.