Fréttablaðið - 17.12.2016, Blaðsíða 48
Enginn stjórnmálamaður meiddist við gerð þessarar bókar, stendur á titilsíðu nýrrar bókar Halldórs Baldurssonar teiknara, Konungur flónanna. Í bókinni er að finna teikningar Halldórs frá tímabilinu
2013-2016. Tímabil sem Halldór segir hafa ein-
kennst af óþoli vinstrimanna fyrir persónu Sig-
mundar Davíðs Gunnlaugssonar, fyrrverandi
forsætisráðherra.
„Ríkisstjórn Sigmundar Davíðs setti sitt mark
á tímabilið og er viðfangsefni bókarinnar. Per-
sóna hans var eins og olía á kraumandi reiði
eftirhrunsáranna. Afsakið dramatíkina, en
vinstrimenn náðu að magna með sér merki-
legt óþol gagnvart honum. Auðvitað efni-
viður sem er ómótstæðilegur í pólitískt skop.
Kannski samfélagsmiðlar hafi þarna haft sitt
að segja. Bombumál magnast upp en eru líka
fljót að gleymast. Hönnu Birnu málið er dæmi
um það. Það virðist fjarlægt í dag miðað við allt
púðrið sem fór í það,“ segir Halldór.
Halldór segist ekki mikið verða var við sár-
indi eða reiði stjórnmálamanna. Flestir vilji
þeir komast á mynd og láta taka eftir sér.
„Ég hef aldrei orðið var við nein leiðindi
nema þá helst frá einstaka aðstoðarmanni
sem hefur þá í mesta lagi haft á orði að ég hafi
verið ósanngjarn. Sem er auðvitað alveg rétt hjá
þeim. Ég er oft mjög ósanngjarn en á afskaplega
Forsætisráðherra er alltaf aðalfórnarlamb pólitíska skopsins. Fréttablaðið anton brink
Ósanngjarn en viðkunnanlegur
Halldór Baldursson teiknari kryfur samtímann í teikningum sínum og hefur gefið út skopmyndabók sem fjallar að
mestu um ríkisstjórn Sigmundar Davíðs. Hún hafi reynst óþrjótandi efniviður. Hann segist komast upp með flest.
endabréf dagblaðana voru ekki eins skilvirk,“
segir Halldór.
Forsætisráðherra aðalfórnarlambið
Halldór segir helsta skotspón sinn ávallt hinn
sama í gegnum árin. „Forsætisráðherrann er
alltaf aðalfórnarlamb pólitíska skopsins. Sá sem
tekur það að sér verður alltaf mest teiknaður og
gengur inn í hlutverkið. Hann verður minn Don
Kíkóti. Fjármálaráðherra verður Sanchó Panza.“
Þér er lagið að teikna, en hvað með orð? Lýstu
íslensku stjórnmálalífi í einni setningu
„Ein stjórn segir meira en þúsund smáflokk-
ar.“
Frá þessu þriggja ára tímabili koma tvær
myndir upp í hugann þegar hann er spurður
um eftirlæti. Sigmundur Davíð kemur við sögu
á þeim báðum og kindur á annarri sem hann
hefur sagst hafa dálæti á að teikna.
„Myndin sem kom fyrst upp í hugann er kosn-
ingabaráttumynd frá 2013. Sigmundur Davíð og
Árni Páll á listasafni. Það er fallegt listasnobb í
henni finnst mér, með forspárgildi. Ég held líka
upp á myndina þar sem ég nota undirskrift Sig-
mundar sem gaddavír. Undirskriftin kveikti þar
á hugmyndinni. Svo eru kindur á myndinni.“
Hvaða stjórnmálamenn er erfiðast að teikna?
Af hverju?
„Yfirleitt þá sem ég teikna sjaldnast. Það tekur
smá tíma að gera stjórnmálamenn að mínum
karakterum. Fólk þarf fyrst að venjast því hvern-
ig ég teikna hvern og einn. Eftir það get ég dregið
þá sundur og saman í háði og pennastrikum og
þeir samt verið þekkjanlegir.“
sinnum og verið með alls kyns spælingar sem
enginn kippir sér upp við. Það er helst ef ég
tekst á við kynjamál, kynþáttamál, kynlíf, kyn-
skiptingar … allt sem byrjar á kyn, að ég finn
anda köldu ofan í hálsmálið á mér. Það hefur
eitthvað með að gera hverslags manneskja ég er.
Miðaldra, hvítur og hetrósexúal. Ég elska samt
að teikna kindur.
Fólk var samt alveg jafn hneykslunargjarnt
áður fyrr. Það er til ótrúlega mikið af pirruðu
gömlu fólki. Það hafði bara ekki Facebook. Les-
viðkunnanlegan hátt, held ég. Flestir stjórn-
málamenn vilja komast á mynd, að það sé tekið
eftir þeim.“
En finnst honum tímarnir hafa breyst? Er
íslensk þjóð hneykslunargjarnari en áður? Eru
einhver tabú?
„Það er eins og fólk geti skapað sér umburðar-
lyndisrými. Sumir teiknarar fá að gera næstum
hvað sem er og enginn hneykslast, aðrir fá reiði-
öldur auðveldlega yfir sig. Ég virðist komast upp
með flest. Hef teiknað Múhameð nokkrum
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
1 7 . d e s e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r d A G U r48 h e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð