Fréttablaðið - 17.12.2016, Síða 90

Fréttablaðið - 17.12.2016, Síða 90
... fæst í næsta apóteki og helstu stórmörkuðum Mundir þú eftir að bursta og skola í morgun? GUM eru hágæða tannvörur – allar upplýsingar á www.icecare.is tannlæ knar mæla m eð GUM tannvö rum P latan Vagg og Velta m e ð E m m s j é Gauta er plata ársins sam-kvæmt álits-g j ö f u m Fréttablaðsins. Þetta var þó ekki nein rússnesk kosning því að mjög mjótt var á mununum milli plötu Gauta og frum- raunar hins kornunga Arons Can. Plöturnar komust báðar inn á lista tíu álits- gjafa en Vagg og velta var þó oftar sett í fyrsta sætið, eða þrisvar s i n n u m . E k k i s v o langt undan e r ö n n u r frumraun, en platan GKR með GKR komst á lista sjö álitsgjafa en þó aldrei í fyrsta sætið. Þar á eftir kemur svo platan S e a s o n 2 m e ð Sturlu Atlas, en athygli vekur að hún komst jafn oft og Vagg og velta í fyrsta sætið, en hins vegar var hún sjaldnar nefnd. Í fimmta sætinu er það aftur Emmsjé Gauti með plötuna 17.  nóvember. Það má alveg tala um að þetta hafi verið árið hans Gauta enda gefur þessi litli ofvirki rappari úr Breiðholtinu út tvær plötur sem báðar kom- ast á lista, hann virðist auk þess vera alls staðar og hafa gert allt. Þetta má þakka ákaflega vel heppn- uðum og frumlegum her- ferðum frá honum; hann gaf út tölvuleik, bjó til „action fig- ure“, seldi fatnað meðal annars í samstarfi við 66°Norður og spilaði á ótal tónleikum. Að s a m a s k a p i má tala um ár streymisins og ár markaðs- setningarinn- ar, en allar p l ö t u r n a r á listanum voru mark- aðssettar á frumlegan og nýstár- legan hátt. Stefán þór Hjartarson stefanthor@frettabladid.is Rapparinn Emmsjé Gauti á tvær plötur á topp fimm lista ársins yfir bestu íslensku plöturnar. Rappið er mjög áberandi í ár eins og í fyrra en allar plöturnar fimm geta talist rappplötur. Mikil frumlegheit í markaðssetn- ingu og notkun samfélagsmiðla og streymi- veita spila stóra rullu þetta árið og sýnir hvernig tónlistin er í sífelldri þróun. Árið hans Emmsjé Gauta Ofvirki strákurinn úr Breiðholtinu Þriðja platan hans Gauta kom út í sumar en fyrsti singúll hennar, Strákarnir, kom út nokkru fyrr við gríðarlegar vin- sældir. Á plötunni má heyra í mörgum af fremstu tónlistar- mönnum rappsenunnar eins og Gísla Pálma, Aroni Can, Úlfur Úlfur og Bent. Dóri DNA á einnig óvænta innkomu og Unnsteinn Manuel þenur raddböndin. Í kringum útgáfu plötunnar var efnt til söfnunar á Karolina Fund þar sem safnað var fyrir vínylútgáfu af plötunni og fór svo að söfnunin fór fram úr björtustu vonum svo að vínylútgáfan varð að veruleika. Á plötunni má finna allan skalann; þarna er drama og rómantík en þó er aldrei langt í djammið og fjörið. Lögin Strákarnir, Reykjavík, Silfur- skotta og Djammæli fengu öll myndband og voru spiluð töluvert í út- varpi en þó var þeim aðallega streymt gífurlega oft á Spotify – en það er svipuð þróun og hefur verið að undanförnu í tónlistarsenunni um allan heim, hlutur streymis verður sífellt stærri í tónlistarspilun nútímans. Vagg og velta er plata frá reynslubolta í senunni sem veit alveg hvað hann er að gera. Allt er vandað og metnaðarfullt, allt hljómar vel og afar fáir veikir punktar til að tala um. Þið ættuð að þekkja stráginn núna Nýliðinn Aron Can kom með ótrúlegum krafti inn í íslenska tónlistarsenu. Þessi ungi drengur úr Grafarvoginum vissi strax frá byrjun hvað hann ætlaði sér og sagði í viðtali við Frétta- blaðið í vor, áður en nokkuð nema lagið Þekkir stráginn hafði komið út með honum, að sig langaði að „vinna bara með nýjum tón- listarmönnum, allavegana í mínum lögum. Mér finnst geggjað „sweet“ að vera „featured“ í lögum með öðrum af því að ég er nýr að vera í lögum með þessum gæjum, en þegar kemur að mínum lögum vil ég halda mig í mínum hring. Ég og pródús erarnir erum eiginlega hljómsveit, þetta erum bara við strákarnir á þessum teipum.“ Þekkir stráginn setti allt á hliðina og öll lögin af plötunni voru á toppi hlustunarlista Spotify yfir vinsælustu lögin á landinu. Síðan þá hefur Aron farið víða, spilað oft og orðið stórstjarna í íslenskum poppheimi. Þegar hann kemur fram á tónleikum má greina svipuð viðbrögð hjá áhorfendum og þegar Bítlarnir stigu á svið, jafnvel fullorðið fólk fellur í ómegin yfir nærveru þessa 17 ára drengs. Spenn- andi að sjá hvernig næsta ár verður hjá strágnum. Meira en bara morgunmatur Annar nýliði á listanum, Gaukur Grétuson eða GKR, kom sér fyrst á kortið með hinum áhugaverða og grípandi smelli Morgunmatur þar sem hann rappar um að fá sér morgunmat er hann vaknar. Síðan kom í ljós að GKR virtist fæddur „per- former“ eða skemmtikraftur og vakti mikla lukku hvar sem hann kom fram. Óvenjulegar eða frumlegar leiðir voru farnar við að vekja athygli á öllum plötunum hér á listanum við útgáfu og GKR gekk einna lengst en platan kom út á USB-kubb í sérstökum morgunkornskassa. Hann gaf á sama tíma út fatnað merktan GKR sem rokseldist og bandaríska plötu- fyrirtækið Mad Decent, sem er í eigu Diplo, tók myndband hans við lagið Meira af plötunni upp á sína arma. „Þau fundu mig á Spotify-lagalista og fíluðu mig mjög vel. Í framhaldinu settu þau mig á Mad Decent-laga- listann á Spotify. Ég ræddi við þau og sagði þeim að ég væri að fara að gefa út EP og myndband. Þau vilja hjálpa mér að dreifa myndbandinu mínu – settu það á Mad Decent YouTube-reikninginn og sendu út tölvu- póst á risahóp þar sem er smá texti um mig og ég er sagður vera „one to watch“,“ sagði GKR í viðtali við Fréttablaðið í nóvember. 1 3 4 2 Hjartaknúsarar úr miðbænum Sturla Atlas kann á internetið og kann að koma sér þar á fram- færi. Æsingurinn fyrir allt sem 101 boys gera er eiginlega með ólíkindum og Sturlu Atlas verkefnið er þar í sérflokki. Þeir hafa gefið út plaköt, föt, buff og hannað vatnsflöskur. Sturla Atlas spratt í raun upp úr tómi fyrst þegar sveitin kom fram og gaf út fyrstu plötuna sína, Love Hurts. Season 2 er þeirra langþroskaðasta verkefni hingað til. Á plötunni er tekist á við ástir og örlög í miðbæ Reykjavíkur. Sturla er svalur hjarta knúsari sem leitar að ástinni og stundum leitar hann hennar á vitlausum stöðum. Honum til halds og trausts er svo restin af 101 boys – þeir Joey Christ, Logi Pedro og Young Nazareth sem eru óaðskiljanlegur hluti Sturlu Atlas, þó svo að þetta teljist víst ekki hljómsveit. Það verður að minnast á umslag plötunar, hannað Sigga Odds og Kjartani Hreinssyni,sem er afar vel heppnað. Og Gauti enn eina ferðina Að tvær plötur með Emmsjé Gauta eru á þessum lista sýnir kannski aðallega þær miklu vinsældir sem þessi drengur nýtur en einnig að hann kann að búa til grípandi tónlist og auglýsa sig, eins og aðrir hér á lista. Tölvuleikur, myndbönd og „action figure“ eru meðal þess sem var gert til að koma útgáfunni á framfæri og virðist það hafa virkað ansi vel. Gauti hefur sagt í viðtölum að hann hafi verið uppfullur af sköpunar- krafti eftir að hafa klárað Vagg og veltu og úr varð að hann tók upp nóg af lögum til að geta gefið út aðra plötu einungis fjórum mánuðum síðar. Þessi plata er ekki alveg jafn fínpússuð og Vagg og velta en á henni er meiri leikur og það er fjörið sem er hér í aðalhlutverki, þó að viðkvæma hliðin á Gauta fái að njóta sín á nokkrum stöðum. 5 Emmsjé Gauti 1 7 . d e s e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r d A G U r90 L í f i ð ∙ f r É T T A b L A ð i ð Lífið
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.