Fréttablaðið - 18.03.2011, Blaðsíða 2
18. mars 2011 FÖSTUDAGUR2
UMHVERFISMÁL Akraneskaupstað-
ur hyggst taka tilboði hjónanna
Haralds Sturlaugssonar útgerðar-
manns og Ingibjargar Pálmadóttur,
fyrrverandi heilbrigðisráðherra, og
kaupa 1.200 fermetra lóðarhluta
þeirra á útvistarsvæðinu á Breið.
Hjónin ætla að nota andvirðið til
þess að reisa sólpall fyrir almenn-
ing.
Ingibjörg segir að pallurinn
verði byggður í minningu Agn-
ars Sigurðssonar, góðs vinar sem
hefði orðið 100 ára 10. mars síðast-
liðinn. Agnar vann hjá fjölskyldu-
fyrirtækinu Haraldi Böðvarssyni
undir stjórn fjögurra ættliða. Sól-
pallurinn mun heita Aggapallur
eftir Agnari.
Á eitt hundrað ára afmæli Agn-
ars kölluðu þau Haraldur og Ingi-
björg til vini Agnars að bakhlið
stúkunnar við íþróttavöllinn á Jað-
arsbökkum. „Þegar Agnar varð
sjötugur fékk hann mikinn viskí-
kút frá starfsfélögum sínum. Þótt
honum þætti sopinn ekki vondur þá
vildi hann geyma þennan kút þar
til hundrað ára fæðingardagurinn
rynni upp,“ segir Ingibjörg. „Við
ákváðum að gera eitthvað táknrænt
og því var hellt viskíi á Langasand
þar sem sólpallurinn á að rísa.“
Að sögn Ingibjargar stendur
einnig til að koma fyrir setlaug
neðan við sólpallinn ef leyfi bæj-
arins fæst. Heita pottinn eigi að
kosta úr styrktarsjóði sem Ólafur
Guðmundsson úr Sandgerði hafi,
ásamt systkinum sínum, stofnað
um foreldra þeirra. „Laugin á að
heita Guðlaug eftir formóðurinni
sem sjóðurinn er kenndur við,“
segir Ingibjörg sem á von á því að
framkvæmdir hefjist um leið og
veður leyfir.
Pallurinn og laugin verða tengd
íþróttamannvirkjunum sem fyrir
eru og útvistarsvæðinu Langasandi
sem Ingibjörg segir vera mikla
paradís. „Við höldum að með þessu
eigi fólk eftir að njóta lífsins enn þá
betur á Langasandi. Á sumrin leika
börnin sér oft í sjónum og þá er gott
að ylja sér í pottinum. Foreldrarnir
geta svo legið á pallinum og fylgst
með,“ segir hún.
Bæjarráð Akranes segir til-
boð Ingibjargar og Haraldar vera
rausnarlegt og sýna velvilja í garð
bæjarfélagsins. Búist er við að
endanlega verði gengið frá mál-
inu á bæjarstjórnarfundi á þriðju-
dag. Ingibjörg segir pallinn og set-
laugina munu kosta í kringum tíu
milljónir króna. „Síðan erum við
að láta okkur dreyma um að bæta
við þetta seinna en ætlum ekki að
fara lengra í bili,“ segir ráðherrann
fyrrverandi. gar@frettabladid.is
Fá sólpall og heitan
pott í lóðarkaupum
Akraneskaupstaður eignast sólpall á Langasandi fyrir að kaupa lóðarskika af
Ingibjörgu Pálmadóttur og Haraldi Sturlaugssyni. Minningarsjóður vill gefa
heitan pott við pallinn. Fólk á eftir að njóta lífsins hér enn betur segir Ingibjörg.
SÓLPALLI MARKAÐUR STAÐUR Vinir Agnars Sigurðssonar minntust þess í síðustu viku
að hundrað ár eru frá fæðingu hans og mörkuðu væntanlegum sólpalli stað með
vískidreitli. Sólpallurinn ber nafn Agnars og heitir Aggapallur. Neðan við hann verður
heiti potturinn Guðlaug. MYND/ÚR EINKASAFNI
Við höldum að með
þessu eigi fólk eftir
að njóta lífsins enn þá betur
á Langasandi.
INGIBJÖRG PÁLMADÓTTIR
FYRRVERANDI HEILBRIGÐISRÁÐHERRA
ALÞINGI Það tók Alþingi aðeins
fjórar mínútur að fjalla um og
samþykkja þingsályktunartillögu
þingflokksformanna allra flokka
um að innanríkisráðherra fæli
Lagastofnun Háskóla Íslands að
útbúa kynningarefni vegna Ice-
save-atkvæðagreiðslunnar hinn
9. apríl.
Skiptar skoðanir voru meðal
fólks í ráðuneytum og á þingi
hvort og þá hvernig kynna bæri
Icesave. Varð að niðurstöðu að
innanríkisráðuneytið stæði að
slíkri kynningu og fengi Laga-
stofnun til verksins.
Var talið nauðsynlegt að þingið
ályktaði sérstaklega um málið
svo því mætti ýta úr vör. - bþs
Kynningarefni á Icesave:
Afgreiðslan tók
fjórar mínútur
KÖNNUN Um 52,2 prósent lands-
manna myndu samþykkja lög um
Icesave yrði gengið til þjóðarat-
kvæðagreiðslu nú en 47,8 prósent
myndu hafna lögunum. Þetta er
niðurstaða skoðanakönnunar sem
MMR gerði fyrir Viðskiptablaðið.
Þeir sem vilja að Ísland gangi
í Evrópusambandið eru sam-
kvæmt könnuninni mun líklegri
til að vilja samþykkja Icesave en
þeir sem andvígir eru aðild.
Um 55,7 prósent eru frekar eða
mjög andvíg inngöngu í ESB, 14,2
prósent eru hlutlaus og 30,0 pró-
sent eru frekar eða mjög hlynnt.
- bj
Skoðanakönnun um Icesave:
Um 52 prósent
vilja samþykkja
BAREIN, AP Hermenn og lögreglu-
þjónar konungsstjórnarinnar í
Barein hafa með aðstoð hermanna
frá Sádi-Arabíu reynt að berja
niður mótmæli sjía-múslima, sem
eru í minnihluta í landinu en segja
sér mismunað.
Að minnsta kosti sjö leiðtogar
stjórnarandstöðunnar voru hand-
teknir í gær. Á miðvikudag var
bæði táragasi og vopnum beitt til
að ryðja Perlutorgið í höfuðborg-
inni Manama þar sem mótmælend-
ur hafa hafst við.
Að minnsta kosti fimm manns
létu lífið í átökum víða í borginni
og nágrenni hennar. - gb
Hörku beitt í Barein:
Reynt að berja
niður mótmæli
TORGIÐ RÝMT Her og lögregla beittu
mótmælendur hörku. NORDICPHOTOS/AFP
SVEITARSTJÓRNIR Meirihluti bæjar-
ráðs Hafnarfjarðar hefur ákveðið
að senda þrjá fulltrúa á vinabæj-
armót í Tartu í Finnlandi.
Fulltrúar minnihluta Sjálf-
stæðisflokks segja að í núverandi
árferði séu ýmis önnur verk-
efni í sveitarfélaginu brýnni en
ferð bæjarfulltrúa eða embættis-
manna á vinabæjarmót með til-
heyrandi kostnaði.
Meirihlutinn segir hins vegar
rétt að „halda þessu áratuga vina-
bæjarsamstarfi áfram með lág-
markstilkostnaði“. - gar
Deilt um för á vinabæjarmót:
Þrír frá bænum
til Finnlands
Þórir, var þetta dómara-
skandall?
„Þetta er að minnsta kosti ekki að
finna í knattspyrnulögunum.“
Knattspyrnusamband Íslands hefur
áminnt nokkra dómara fyrir að hafa
farið yfir strikið við busavígslu á árshátíð
félagsins. Þórir Hákonarson er fram-
kvæmdastjóri KSÍ.
Foreldrafundir á morgun
Reykjavíkurborg stendur á morgun
fyrir opnum fundum með foreldrum
skóla og leikskólabarna vegna fyrir-
hugaðra sameininga. Fyrir Laugardal,
Háaleiti og Bústaðahverfi verður
fundur klukkan 11 í Réttarholtsskóla
og klukkan 14 verður fundað með
foreldrum í Vesturbæ og Miðborg/
Hlíðum, í Hlíðaskóla.
SKÓLAMÁL
ÞJÓFNAÐUR Bífræfnir þjófar létu
greipar sópa í nýju hesthúsi við
Fluguskeið í Sörlahverfinu við
Kaldárselsveg aðfaranótt miðviku-
dags. Meðal þess sem þjófarnir
höfðu á brott með sér eru glæný
og ónotuð heimilistæki.
Halldóra Einarsdóttir, eigandi
hesthússins, segir í samtali við
Fréttablaðið að tjónið sé talsvert.
„Það voru menn að vinna í hús-
inu fram til klukkan tíu á þriðju-
dagskvöld, en þegar við komum
aftur upp eftir á miðvikudags-
morgun var búið að stela þaðan
þvottavél, þurrkara, kæliskáp,
helluborði, veggofni og örbylgju-
ofni.“ Öll tækin eru af gerðinni
AEG, nema örbylgjuofninn sem er
af gerðinni Samsung.
Halldóra segir að lögreglu hafi
verið gert viðvart, en þau hafi
heyrt af því að reynt hefði verið,
án árangurs, að brjótast inn í
nágrenninu.
„Þetta er mikill skaði fyrir
okkur og gífurlegt áfall. Við erum
mjög leið yfir þessu en ef einhver
hefur orðið var við dularfullar
mannaferðir þessa nótt viljum við
biðja viðkomandi um að hafa sam-
band við lögregluna.“ - þj
Þjófar brutust inn í nýbyggingu í hesthúsahverfi Sörla í Hafnarfirði:
Stálu glænýjum heimilistækjum
LÍBÍA, AP Uppreisnarmenn í Líbíu
skutu niður að minnsta kosti
tvær sprengjuflugvélar stjórnar
Múammars Gaddafí í gær. Vélarn-
ar gerðu árásir á borgina Tubruk,
sem uppreisnarmenn hafa haft á
valdi sínu.
Hörð átök hafa haldið áfram í
landinu. Stjórnarherinn stefnir í
áttina að borginni Bengasí, sem
hefur verið höfuðvígi uppreisnar-
manna.
Liðsmenn Gaddafís höfðu
umkringt borgina Ajdabiya, sem
er síðasta stóra borgin á veginum
við strönd Miðjarðarhafs áður en
komið er að Bengasí. Allt benti
til þess að Ajdabiya myndi falla í
hendur stjórnarliða, sem ættu þá
greiða leið að Bengasi.
Uppreisnarmenn hafa nú sett
allt sitt traust á öryggisráð Sam-
einuðu þjóðanna. Ráðið sat á fundi
þegar Fréttablaðið fór í prentun í
gærkvöldi. Sérfræðingar töldu lík-
legt að ráðið myndi samþykkja að
setja á flugbann yfir Líbíu þó að
einhverjar þjóðir kynnu að sitja
hjá við afgreiðslu málsins. - gb
Liðsmenn Gaddafís virðast vera að ná yfirhöndinni í Líbíu á ný:
Herjað á höfuðvígi uppreisnar
STÁLU TÆKJUM Halldóra Einarsdóttir
utan við hesthúsið þaðan sem heimilis-
tækjum var stolið í innbroti.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SKÓLABÖRN MEÐ GADDAFÍMYNDIR Í höfuðborginni Trípólí voru skólabörn send út á
götur til stuðnings Gaddafí. NORDICPHOTOS/AFP
Minningarbók í sendiráði
Minningarbók þar sem fólk getur ritað
samúðarkveðju vegna þeirra sem
eiga um sárt að binda vegna nátt-
úruhamfaranna í Japan liggur frammi
í sendiráði landsins í Reykjavík. Bókin
mun liggja frammi til 23. mars.
HAMFARIR
Rúta fór út af veginum
Engin slys urðu á fólki þegar rúta, full
að ferðamönnum, fór út af þjóðvegi
eitt við Vík í Mýrdal um fimm leytið
í gær. Mildi þykir að rútan hafi ekki
oltið því vegkanturinn sem hún fór út
af er töluvert brattur. Björgunarsveitin
Víkverji í Vík dró rútuna aftur upp á
þjóðveg.
LÖGREGLUMÁL
SPURNING DAGSINS