Fréttablaðið - 18.03.2011, Blaðsíða 46
18. mars 2011 FÖSTUDAGUR30
folk@frettabladid.is
Fyrir nokkrum dögum
vissu fáir hver Rebecca
Black var, en í dag á hún
eitt vinsælasta myndbandið
á Youtube við lagið Friday.
Lagið er hræðilega slæmt,
hræðilega sungið og virð-
ist ætla að þéna hræðilega
mikið af peningum fyrir
Black.
Rebecca Black er 13 ára söng-
kona frá Anaheim í Kaliforníu.
Hún birti myndband sitt við lagið
Friday á Youtube 10. febrúar síð-
astliðinn. Lagið er hrikalega
slæmt, sem virðist vera ástæð-
an fyrir því að það fór að ganga
á milli manna, meðal annars á
Facebook. Síðasta föstudag var
búið að horfa á það 40.000 sinnum,
en fimm dögum síðar hafði verið
horft á það um 10 milljónum sinn-
um. Þegar þetta er skrifað nálgast
myndbandið 13 milljónir áhorfa.
Vinsældirnar eru með ólíkindum.
Rebecca Black ætlar að hagnast
á þessum nýtilkomnu vinsældum
og á miðvikudag gaf hún lagið út á
netinu. Fjölmargir eru tilbúnir að
borga fyrir að hlusta á Black, en í
gær sat lagið í 67. sæti á iTunes-
vinsældalistanum, fyrir ofan
listamenn á borð við Katy Perry,
Rihönnu og Justin Bieber.
Enn er óvíst hversu mörg ein-
tök af laginu hafa selst. Til upp-
lýsingar þá var lagið California
Gurls með Katy Perry mest selda
lagið á iTunes í fyrra og seldist í
um 4,4 milljónum eintaka. Black
rukkar 99 sent fyrir niðurhalið og
ekki nema lítill hluti af þeim sem
hafa horft á myndbandið við lagið
á Youtube þurfa að borga fyrir
lagið til að gera hana að milljóna-
mæringi. atlifannar@frettabladid.is
Lagið sat í 67.
sæti á iTunes
vinsældarlistan-
um í gær. Fyrir ofan lista-
menn á borð við Katy Perry,
Rihönnu og Justin Bieber.
67
HJÓNABÖND á hjólabrettakappinn Tony Hawk nú að baki. Hann
skildi nýverið við þriðju eiginkonu sína og tók saman við fyrrverandi
eiginkonu æskuvinar síns í staðinn.
3
Þrettán ára stelpa slær
í gegn með hræðilegu lagi
HRÆÐILEGA VINSÆL Myndband Rebeccu Black, við lagið Friday, hefur farið eins og
eldur í sinu um netheima undanfarna daga.
Reese Witherspoon stígur var-
lega til jarðar þegar kemur að
ástarsamböndum. Leikkonan
er trúlofuð umboðsmanninum
Jim Toth og undirbúningur fyrir
brúðkaupið er í fullum gangi.
Hún lenti í mörgum misheppnuð-
um ástarsamböndum áður en hún
kynntist Toth og viðurkennir að
það taki tíma fyrir sig að líða vel
með karlmanni. Oftast leitar hún
ráða hjá vinum sínum ef hún er
óviss í ástarmálum. „Ég er mjög
varkár og þess vegna hlusta ég á
vini mína. Þeir vita betur en ég
hvort ég er hamingjusöm. Þeir
segja mér strax hvort karlmaður
hentar mér vel og hvort ég sé að
gera rétt,“ sagði hún.
Alltaf varkár
í ástarmálum
VARKÁR Reese Witherspoon er varkár
þegar kemur að ástarsamböndum.
Tímaritið Star heldur því fram
að leikarinn Bradley Cooper hafi
haldið framhjá kærustu sinni,
leikkonunni Renée Zellweger
með engri annarri en Jessicu
Biel, fyrrum kærustu Justins
Timberlake.
Tímaritið segir að Cooper og
Biel hafi orðið nokkuð náin við
tökur á kvikmyndinni New Years
Eve og að oft hafi sést til þeirra
í innilegum faðmlögum. „Hann
hélt fast um mitti
hennar og starði
djúpt í augun á
henni og brosti,“
var haft eftir
heimildarmanni.
Tímaritið vill
einnig meina að
Cooper hafi átt í
stuttu ástar-
sambandi
með Söndru
Bullock
þrátt fyrir
samband
hans og
Zellweger.
Kvensamur
Cooper
KVEN-
SAMUR
Leikarinn
Bradly
Cooper
hefur
verið
sakaður
um að
halda
framhjá
Renée Zellweger.
NORDICPHOTOS/GETTY
Taktu þátt í Heineken heppni
á Facebook og þú getur unnið
baksviðspassa á Meistaradeildina
AÐEINS ÞEIR BESTU
KOMAST BAKSVIÐS