Fréttablaðið - 18.03.2011, Blaðsíða 54
18. mars 2011 FÖSTUDAGUR38
„Þetta er hlutur sem ég þurfti að
gera áður en ég varð þrítugur,“
segir Oddur Snær Magnússon,
sonur tónlistarmannsins Magnús-
ar Kjartanssonar.
Oddur Snær heldur útgáfuhóf
í kvöld, daginn fyrir þrítugsaf-
mælið sitt, í tilefni af sinni fyrstu
sólóplötu, Tækifæri. Hún hefur að
geyma tökulög sem hafa lengi verið
í uppáhaldi hjá honum og verða þau
afhjúpuð í útgáfuhófinu í kvöld.
„Þetta var seinasti séns til að
gera eitthvað svona og þá var
náttúrulega slegið til. Ég byrjaði
að vinna í þessu í janúar,“ segir
Oddur Snær, sem er ekki þekkt-
ur fyrir sönghæfileika sína. Hann
ákvað að ganga alla leið með „grín-
ið“ því hann pantaði hljóðverstíma
hjá föður sínum, lét útbúa plötu-
umslag með mynd af sér og sendi
út fréttatilkynningu til vina og
vandamanna, sem komu algjörlega
af fjöllum.
Aðspurður segir hann að kostu-
legt hafi verið að vinna með föður
sínum í fyrsta sinn. „Þarna var ég
með einn reyndasta upptökustjóra
Íslands sem hefur unnið með Geir-
mundi Valtýssyni, Megasi og Hall-
birni Hjartarsyni. Ég var þarna í
góðra manna hópi undir hans leið-
sögn,“ segir hann léttur og telur sig
hafa hitt í mark hjá föður sínum.
„Ég held ég hafi komið honum
einstaklega á óvart með leyndum
sönghæfileikum sem ég er búinn
að liggja á eins og ormur á gulli í
þrjátíu ár.“
Oddur Snær hefur lengi staðið
í skugganum af systur sinni Mar-
gréti Gauju hvað sönghæfileika
varðar því hann var fjögurra ára
þegar hún söng Sólarsömbu með
föður þeirra í Eurovision-keppn-
inni. „Það mætti segja að ég sé að
hefna mín núna. Hún er augljóslega
að farast úr öfundsýki út af þess-
ari plötu.“
Oddur á reyndar stuttan feril að
baki sem tónlistarmaður því hann
vann Músíktilraunir með hljóm-
sveitinni Stæner árið 1998 þar sem
hann spilaði á hljómborð. Einnig
syngur hann með karlakór Kaffi-
barsins. „Þetta blundar þarna undir
niðri. Það er bara spurning um að
virkja það.“
Maggi Kjartans hafði gaman af
því að vinna með syni sínum og er
sérlega ánægður með bassarödd
hans. „Þegar hann tilkynnti mér
að hann væri kominn í kór hélt ég
að ég væri að heyra vitlaust því ég
hafði aldrei heyrt hann syngja,“
segir hann. „Ég ætla ekki að fella
neinn dóm um sönghæfileika hans
nema bara að hann heldur lagi og er
með þessa bassarödd. En diskurinn
og öll þessi uppákoma er ein stór
kómedía sem hann er að búa til.“
freyr@frettabladid.is
FÖSTUDAGSLAGIÐ
Einleikurinn Afinn er á leiðinni á fjalirnar á Norð-
urlöndunum og í Þýskalandi. Skrifað verður undir
samninga um réttinn á einleiknum á næstunni.
Fyrsta sýningin verður í Svíþjóð á næsta ári.
„Það eru afar í öllum löndum og þeir eru margir
hverjir að glíma við sama hlutinn,“ segir leikstjór-
inn og höfundurinn Bjarni Haukur Þórsson, ánægð-
ur með framvindu mála.
Tæplega tíu þúsund manns hafa séð Afann síðan
hann var frumsýndur í Borgarleikhúsinu 14. janúar
með Sigurjón Sigurðsson í aðahlutverki. Ákveðið
hefur verið að færa einleikinn af litla sviðinu yfir
á það stóra í mars og apríl vegna mikillar aðsókn-
ar. „Þetta hefur gengið svo vel að við þurftum að
flytja í stærri sal,“ segir Bjarni Haukur.
Rúmlega þrjátíu þúsund manns sáu ein-
leikinn Pabbann, þar sem Sigurjón leik-
stýrði Bjarna Hauki. Hann gekk fyrir
fullu húsi í tæp tvö ár. Spurður hvort
Afinn eigi eftir að ná Pabbanum í
vinsældum segir Bjarni: „Hann fer
hægar yfir en með þessu áframhaldi
gæti hann gert það.“ - fb
Einleikurinn Afinn til útlanda
SÁTTUR Leikstjórinn Bjarni Haukur er
ánægður með framvindu mála.
Tíu hvítar rósir eru á meðal þess
sem meðlimir hljómsveitarinnar
Hurts fara fram á að bíði þeirra
í búningsherberginu á tónleikum
þeirra á Íslandi.
Hurts kemur fram í Vodafone-
höllinni á sunnudaginn. Dikta
og Retro Stefson hita upp fyrir
bresku drengina, en í gær var til-
kynnt að um 400 miðar væru eftir.
Samkvæmt upplýsingum
Fréttablaðsins láta meðlimir
Hurts sér ekki nægja að biðja
um rósabúntið. Þeir fara einnig
fram á að þrjár myndir af fræg-
um súpermódelum hangi á vegg í
búningsherberginu. Þeir taka sér-
staklega fram að myndirnar megi
ekki vera klámfengnar. Hurts-
drengirnir eru annáluð snyrti-
menni og því ætti ekki að koma á
óvart að þeir biðja um straujárn,
straubretti og stóran spegil. Þá
verður sérstakt rakatæki fyrir
andlit að vera í búningsher-
berginu ásamt fimm
íslenskum póstkort-
um með frímerkj-
um, tilbúin til póst-
lagningar.
Áfengiskröfur
hljómsveita kom-
ast oft í fréttirn-
ar. Hurts-dreng-
ir eru tiltölulega
hógværir, en biðja
þó um lítilræði af gini, vodka og
viskíi.
Hurts nýtur vaxandi vinsælda í
Evr- ópu, en hljómsveitin kom
fyrst fram á Íslandi á
Iceland Airwaves-hátíð-
inni í fyrra. Hurts var
nýlega valin nýliði
ársins á tónlistarhá-
tíð breska tímarits-
ins NME og hefur
átt góðu gengi
að fagna á öldum
ljósvakans með
lögunum Sunday
og Wonderful Life.
Miðasala fer fram
á Midi.is. - afb
Hurts-drengir vilja tíu hvítar rósir
SÉRSTAKAR KRÖFUR Tíu hvítar rósir,
straujárn, póstkort og rakatæki fyrir
andlit er á meðal þess sem strákarnir í
Hurts fara fram á að bíði þeirra í bún-
ingsherberginu.
AFINN Sigurjón
Sigurjónsson í hlutverki
afans, sem tíu þúsund
Íslendingar hafa séð.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ODDUR SNÆR MAGNÚSSON: ÞURFTI AÐ GERA ÞETTA FYRIR ÞRÍTUGT
Lét drauminn rætast og
gerði plötu með pabba
„Það er Mother North með
Satyricon. Flottur texti, flottur
gítar, melódía og þungi. Allt við
þetta lag er geðveikt.“
Gyða Hrund Þorvaldsdóttir, gítarleikari
Angistar.
TÓK ÓVÆNT UPP
SÓLÓPLÖTU
Oddur Snær Magnússon lét
drauminn rætast og tók upp
sólóplötu fyrir þrítugsafmæli
sitt. Plötuna tók hann upp
með pabba sínum, goðsögn-
inni Magnúsi Kjartanssyni.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Mið 23.3. Kl. 19:00 Aukas.
Lau 26.3. Kl. 19:00
Fim 31.3. Kl. 19:00 Síð.sýn
Íslandsklukkan (Stóra sviðið)
Sun 20.3. Kl. 13:30
Sun 20.3. Kl. 15:00
Sun 27.3. Kl. 13:30
Sun 27.3. Kl. 15:00
Sun 3.4. Kl. 13:30
un 3.4. Kl. 15:00
Sun 10.4. Kl. 13:30
Sun 10.4. Kl. 15:00
Sun 17.4. Kl. 13:30
Sun 17.4. Kl. 15:00
Sindri silfurfiskur (Kúlan)
Allir synir mínir (Stóra sviðið)
Sun 20.3. Kl. 14:00
Sun 20.3. Kl. 17:00
Sun 27.3. Kl. 14:00
Sun 27.3. Kl. 17:00
Sun 3.4. Kl. 14:00
Sun 3.4. Kl. 17:00
Sun 10.4. Kl. 14:00
Sun 10.4. Kl. 17:00
Sun 17.4. Kl. 14:00
Sun 17.4. Kl. 17:00
Ballið á Bessastöðum (Stóra sviðið)
Fös 18.3. Kl. 20:00 4. sýn
Lau 19.3. Kl. 20:00 5. sýn
Fim 24.3. Kl. 20:00 6. sýn
Fös 25.3. Kl. 20:00 7. sýn
Fös 1.4. Kl. 20:00 8. sýn
Lau 2.4. Kl. 20:00
Mið 13.4. Kl. 20:00
Fim 14.4. Kl. 20:00
Mið 27.4. Kl. 20:00
Lau 30.4. Kl. 20:00
Brák (Kúlan)
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Lau 19.3. Kl. 20:00
Sun 20.3. Kl. 20:00
Fim 24.3. Kl. 20:00 Aukas.
Fös 25.3. Kl. 20:00
Sun 27.3. Kl. 20:00
Mið 30.3. Kl. 20:00
Lau 2.4. Kl. 20:00
Lau 9.4. Kl. 20:00
Sun 10.4. Kl. 20:00
Lau 16.4. Kl. 20:00
Sun 17.4. Kl. 20:00
Hedda Gabler (Kassinn)
Ö
Ö
Ö
U
U
Ö
Ö
Ö
U
U Ö
Ö
Ö
U
Ö
U
Ö
U
Fös 18.3. Kl. 20:00
Lau 26.3. Kl. 20:00 Aukas.
Fös 8.4. Kl. 20:00
Fös 15.4. Kl. 20:00
Ö
U
Ö
Ö
Ö
Sjáumst.
Hljómsveitin
Sixties
Stórdansleikur á Kringlukránni
föstudaginn 18. mars og
laugardaginn 19. mars.
Aðeins
1500 kr
aðgangseyrir
Pottar og pönnur í miklu úrvali
Fjölbreytt úrval af pottum og pönnum
fyrir allar gerðir eldavéla.
Allt að 50 lítra pottar.
Góð gæði og frábært verð.
Fastus ehf. | Síðumúla 16 | 108 Reykjavík | Sími 580 3900 | www.fastus.is