Fréttablaðið - 18.03.2011, Blaðsíða 22
2
Efnt er til árlegs mottudags í dag
og karlmenn því hvattir til að
leyfa karlmennskunni að njóta
sín.
Mottudagur er settur fram í gríni
og glensi en er þó hugsaður til að
auka árvekni karla og fræðslu á
krabbameini. Krabbameinsfélagið
hvetur landsmenn til að skarta
öllum mögulegum karlmennsku-
táknum í dag og á vefsíðunni
mottumars.is er hægt að heita á
flottustu skeggmotturnar sem
karlmenn hafa safnað sér í í tilefni
mottumars. Þá fer sala á mottu-
nælum víða fram um helgina.
„Þrátt fyrir að við bregðum á
leik í átakinu vitum við öll að um
alvarlegan sjúkdóm getur verið
að ræða. Við vitum mun meira um
brjóstakrabbamein en til dæmis
blöðruhálskirtilskrabbamein,
sem er algengasta tegund krabba-
meins hjá körlum og þegar frek-
ari upplýsingar liggja fyrir verð-
ur vonandi hægt að skipuleggja
varnir gegn fleiri tegundum
krabbameins,“ segir Ragnheiður
Haraldsdóttir forstjóri Krabba-
meinsfélags Íslands. „Nú hafa
safnast um 12 milljónir króna í
áheitum en ef við eigum að ná jafn
góðum árangri og í fyrra þurfum
við enn frekari aðstoð.“ - jma
Kjör á
mottum
Mottudagur setur lit sinn á mannlífið í
dag.
Nú er víða skíðafæri
en á slóðinni www.
skidasvaedi.is er að
finna yfirlit yfir öll
helstu skíðasvæði
landsins.
Þá er að
finna þar
upplýsingar
um hver
þeirra
eru
opin.
Heimild: www.
skidasvaedi.is
Varanlegt augnablik og Birgir Andrésson og vinir heita tvær
sýningar sem opna í Hafnarborg á morgun. Á fyrrnefndu sýningunni
gefur að líta málverk eftir Sigtrygg Bjarna Baldvinsson en á þeirri
seinni eru verk sem Birgir vann með öðrum listamönnum.
„Það eru 12-13 söngleikir sem koma við sögu og ég
hef bæði valið uppáhaldslögin mín og önnur sem
mig langar að spreyta mig á. Úr nógu er að moða,“
segir Margrét Eir þegar hún er spurð út í tónleikana
og veisluna í Tjarnarbíói í kvöld. „Þetta getur varla
orðið annað en skemmtilegt þar sem gestir njóta bæði
frumlegra veitinga og góðrar tónlistar,“ bætir hún
við.
Margrét Eir hefur verið höll undir söngleikjatónlist
allt frá því hún birtist í Hárinu í Íslensku óperunni
1994. Um tíma dvaldi hún við nám í Bandaríkjunum
þar sem hún lagði meðal annars áherslu á slíka tónlist.
Sérstakur gestur í kvöld verður söngvarinn og leik-
arinn Þór Breiðfjörð, sem er nýfluttur heim eftir far-
sælan söngleikjaferil á West End og í Evrópu. „Við
Þór sungum einmitt saman í Hárinu forðum en það
er mikið vatn til sjávar runnið síðan – þið ættuð að
heyra í honum núna,“ segir Margrét Eir glaðlega og
bætir við að alveg megi búast við fleiri gestum á svið
í kvöld.
Fyrir sýninguna ætla þær Áslaug Snorradóttir og
Anna Bogga matargúru að galdra fram suðrænt og
flúrað hlaðborð. Gestir sitja við borð og andrúmsloft-
ið ætti að verða notalegt. Húsið verður opnað klukk-
an 18.30. Miðaverð fyrir mat og tónleika er 3.900 en
gestir geta líka keypt miða eingöngu á tónleikana á
2.900, þeir hefjast klukkan 20.
Gunnar Gunnsteinsson, framkvæmdastjóri Tjarn-
arbíós, segir miðað við eina til tvær Stundir í mán-
uði. „Við erum að skipuleggja dagskrána fram undan,“
segir hann og upplýsir að kántrístund og Janis Joplin-
dagskrá séu í sigti. gun@frettabladid.is
Valin lög úr söngleikjum
Tjarnarbíó og Majones – leikhúsbar munu bjóða upp á tónlistarskemmtanir og suðrænt hlaðborð í
Tjarnarbíói á næstunni undir nafninu Stundin. Í kvöld er þar söngleikjastund með Margréti Eir.
„Þetta getur varla orðið annað en skemmtilegt,“ segir Margrét
Eir sem syngur í Tjarnarbíói í kvöld við undirleik Vignis Stefáns-
sonar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Full búð af nýjum
vörum
Opið
mánudag- föstudag frá 11-18,
laugardaga frá 11-16.
Suðulandsbraut 50
Bláu húsin við Faxafen
108 Reykjavík
Tel: 5884499
mostc@mostc.is
Við erum á
FULLKOMIN TÆKNI
Sölustaðir:
10 -11, Inspired í Flugstöðinni, Samkaup, Nettó,
Kaskó, Fjarðarkaup, Skeljungsbúðirnar, Olís, N1,
Kaupfélag V- Húnvetninga, Kaupfélag Skagfirðinga,
Verslunin Vísir, Bláa lónið, Hreyfing, Krambúðin,
Fiskbúðin Freyja, Melabúðin.
ÍSLENSK FÆÐUBÓT
BITAFISKUR
-næring fyrir líkama og sál