Fréttablaðið - 18.03.2011, Side 6
18. mars 2011 FÖSTUDAGUR6
MENNTAMÁL Foreldrar nemenda
við Hólabrekkuskóla í Breiðholti
eru afar ósáttir við fyrirhugaðar
breytingar á starfi skólans en til
stendur að sameina skólann við
Fellaskóla.
Ályktun var samþykkt á fundi
sem haldinn var um málið þar
sem tillögur um sameiningu voru
fordæmdar.
„Þetta eru róttækar breytingar
sem skapa óróa og óstöðugleika
í viðkvæmu samfélagi okkar,“
segir meðal annars í yfirlýsingu
frá foreldrum. - sv
Ósætti í Hólabrekkuskóla:
Fordæma sam-
einingu skóla
PALESTÍNA, AP Mahmoud Abbas,
forseti Palestínustjórnar, hefur
tilkynnt að hann ætli ekki að
bjóða sig fram til forseta aftur.
Hann býðst jafnframt til að gefa
Hamas-samtökunum tækifæri til
að vera með í nýrri stjórn.
Á miðvikudag sagðist hann
reiðubúinn að fara til Gasa að
hitta Ismaíl Haniyeh, leiðtoga
Hamas þar. Haniyeh tók vel í
tilboðið og ætlar að skipuleggja
heimsóknina, sem stefnt er að á
næstu dögum.
Abbas hefur ekki komið til
Gasa síðan blóðugum átökum
milli Fatah og Hamas lauk árið
2007 með því að Hamas-liðar
tóku völdin á Gasa-strönd en
Fatah á Vesturbakkanum.
Abbas hefur boðað til kosn-
inga í haust, en þó aðeins ef
sættir takast fyrst milli þessara
tveggja helstu fylkinga Palest-
ínumanna.
Á þriðjudag héldu þúsundir
Palestínumanna út á götur bæði
á Vesturbakkanum og á Gasa-
svæðinu og kröfðust þess að leið-
togar fylkinganna bindi enda á
djúpstæðan ágreining sinn.
- gb
Mahmoud Abbas býður Hamas aðild að nýrri Palestínustjórn:
Ætlar til Gasa á sáttafund
MAHMOUD ABBAS Hefur tilkynnt að
hann ætli ekki að bjóða sig aftur fram til
forseta Palestínustjórnar. NORDICPHOTOS/AFP
Smiðsbúð 6 210 Garðabæ Sími 564 5040
STOFUHÚSGÖGN
og sjónvarpsskápar !
T
il
bo
ð
w
w
w
.h
ir
zl
an
.is
Tilboð 47.280,-
Fullt verð 78.800,-
aðeins í hlyn og hvítu:
32.900,-
26.700,-
39.900,-
53.500,-
39.800,-
150.900,-
FÓLK Langþráður draumur
Tryggva Jóns Jónatanssonar,
fimmtán ára stráks frá Akureyri,
rættist um síðustu helgi. Hann
heimsótti Old Trafford, heima-
völl uppáhaldsfótboltaliðsins síns,
Manchester United. Og ekki nóg
með það því United lagði Arsenal
að velli og að leik loknum heilsaði
markvörður United, Edwin van
der Sar, upp á Tryggva.
„Tryggvi Jón hefur þráð það
heitast í lífi sínu að komast á Old
Trafford og nú hefur draumur
hans ræst,“ segir Ásta Reynisdótt-
ir, móðir hans.
Tryggvi Jón er með sjaldgæf-
an hrörnunarsjúkdóm og er háður
hjólastól. Hann hefur misst allan
mátt í höndum, hefur örlítinn mátt
í fótum, heyrir ekki og sér vart.
Að sögn Ástu bar utanförina
brátt að og þurfti að fara króka-
leiðir til að fá miða á völlinn. Er
Ásta þakklát Kristni Halldóri Ein-
arssyni, formanni Blindrafélags-
ins, og nokkrum styrktaraðil-
um sem gerðu ferðina mögulega.
Fimm voru í föruneyti Tryggva
Jóns; foreldrar hans, tveir aðstoð-
armenn og Kristinn Halldór.
Ásta segir Tryggva Jón hafa
setið á besta stað ásamt aðstoð-
armanni sem hjálpaði honum að
fylgjast með öllu sem fram fór
með aðstoð tölvubúnaðar. Sjálf sat
hún skammt frá og fylgdist með
honum. „Hann sat sem aðdáandi
númer eitt í sæti fyrir fatlaða og
ég fylgdist með svipbrigðunum á
honum og bara grét. Slíkar voru
tilfinningarnar.“
Ásta segir þennan viðburð í lífi
sonar síns afskaplega mikils virði.
Hann sé mjög hamingjusamur og
þakklátur þeim sem gerðu honum
kleift að láta drauminn rætast.
Hann sé reyndar enn að átta sig
á ferðin hafi verið raunveruleg en
ekki draumur. „Hann spurði mig
síðast í gær hvort þetta hefði verið
draumur eða hvort við hefðum í
raun farið á Old Trafford.“
Það var svo til að kóróna allt að
eftir leikinn heilsaði markvörð-
ur Manchester-liðsins Edwin van
der Sar upp á Tryggva, gaf honum
eiginhandaráritun og sat fyrir á
mynd með honum. „Ég hef aldrei
séð hann jafn hamingjusaman á
nokkurri mynd og þessari. Það
lýsir af honum,“ segir Ásta.
bjorn@frettabladid.is
Draumurinn rættist
Fimmtán ára strákur með sjaldgæfan hrörnunarsjúkdóm er enn að átta sig á að
heimsókn á heimavöll Manchester United um síðustu helgi var ekki draumur.
Liðið hans sigraði og markvörður United heilsaði upp á hann að leik loknum.
GÓÐUR DAGUR Edwin van der Sar, markvörður Manchester United, og Tryggvi Jón eftir sigurleik liðsins gegn Arsenal á laugardag-
inn var. MYND ÚR EINKASAFNI
Hrörnunarsjúkdómurinn sem Tryggvi Jón er með heitir Brown - vialetto -
Wan Laere Syndrom. Hann er afar sjaldgæfur og er Tryggvi eini Íslendingur-
inn sem hefur greinst með hann, svo vitað sé. Að sögn Ástu er heyrnar-
skerðing fyrsta einkenni sjúkdómsins en blinda og lömun fylgja í kjölfarið.
Fyrstu einkenni Tryggva Jóns komu í ljós þegar hann var á fimmta ári. Ásta
segir að hrörnunin hafi fyrst komið í stökkum en frá ágústmánuði síðast-
liðnum hafi hrörnunin verið stöðug.
Brown - vialetto - Wan Laere Syndrom
Nánari upplýsingar
á expressferdir.is
eða í síma 5 900 100
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Sólarferð
89.900 kr.
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum
greiðslum og átta nætur á hóteli.
26. mars –3. apríl
Verð á mann í fjórbýli
með morgunverði:
EINSTAKTTILBOÐ!
Sólarhopp til Orlando
KJÖRKASSINN
Ert þú búin(n) að skila skatta-
framtalinu?
JÁ 25,9%
NEI 74,1%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Er eðlilegt að handhafar
forsetavalds þiggi laun þegar
forseti Íslands er erlendis?
Segðu þína skoðun á visir.is
ALÞINGI Þingmenn úr öllum flokk-
um lýstu miklum áhyggjum af
ástandi mála í Líbíu í utandag-
skrárumræðu í gær.
Össur Skarphéðinsson utanrík-
isráðherra sagði að alþjóðasamfé-
lagið hefði brugðist almenningi í
landinu. Fyrir fáum dögum hefði
virst sem almenningur væri að
ná völdum en nú virtist Gaddafí
einræðisherra vera kominn með
yfirhöndina. Bengasí, síðasta
vígi uppreisnarmanna, virðist við
það að falla.
Össur tók undir með Gunn-
ari Braga Sveinssyni, þing-
flokksformanni Framsóknar,
sem hóf umræðuna, og harmaði
að alþjóðasamfélagið hefði ekki
skorist í leikinn.
Þegar umræðan stóð yfir þóttu,
að sögn Össurar, litlar líkur á að
öryggisráð SÞ kæmist að þeirri
einróma niðurstöðu sem þurfi til
að ljá hernaðaraðgerðum gegn
Gaddafí nauðsynlegt lögmæti.
Gunnar Bragi sakaði alþjóða-
samfélagið um hræsni. Þjóðar-
leiðtogar hefðu fyrir skömmu
keppst við að hvetja líbísku þjóð-
ina til dáða og hallmæla harð-
stjóranum.
„Nokkrum dögum seinna hefur
dæmið snúist við,“ sagði Gunnar
Bragi. Gaddafí noti hergögn á
almenning sem Vesturlönd hafa
séð honum fyrir í skiptum fyrir
olíu og gas. „Getur verið að við-
skipti með olíu og vopn komi í veg
fyrir að íbúum Líbíu sé hjálpað?“
spurði Gunnar Bragi. - pg
Þingmenn í öllum flokkum lýsa yfir miklum áhyggjum af ástandinu í Líbíu:
Alþjóðasamfélagið hefur brugðist