Fréttablaðið - 23.02.2016, Blaðsíða 22
Ásta Bína er alin upp í Hafnar
firði og stundar nám í Víðistaða
skóla. Það var því nærtækast að
fermast með skólafélögunum.
„Ég var alltaf ákveðin í að ferm
ast,“ segir hún. „Veislan var hald
in í golfskálanum Keili og gestir
voru um eitt hundrað. Mig lang
aði að hafa kökur og létta rétti.
Fjölskyldur mínar tóku þátt í að
búa til veitingar svo allir hjálp
uðust að. Vinkona mömmu, Bent
ína Tryggvadóttir, söng tvö lög,
Ást og Ég er komin heim, og kær
asti hennar lék undir á gítar. Sjálf
söng ég eitt lag. Foreldrar mínir,
Jóna Ellen Valdimarsdóttir og
Lárus Long, héldu fallegar ræður
og mamma flutti ljóð til mín sem
bróðir hennar samdi af þessu til
efni,“ segir Ásta Bína sem var
mjög ánægð með daginn. „Ég var
ekkert stressuð þennan dag og
held að ég hafi verið sú eina í fjöl
skyldunni sem var róleg,“ segir
hún og brosir.
Ásta bætir við að hún hafi líka
haft ákveðna skoðun á fermingar
kjólnum. „Við mamma fórum í
búðir til að skoða kjóla og það
komu tveir til greina. Ég valdi
ljósan ermalausan kjól úr Flash
og jakka yfir frá Zöru. Ég var
líka með ákveðna hugmynd um
greiðslu og mamma sá um að
greiða mér,“ segir Ásta Bína en
móðir hennar, Jóna Ellen, er dóttir
hárgreiðslumeistara og kann því
ýmislegt fyrir sér í hárgreiðslu
þótt hún starfi sem hjúkrunar
fræðingur á skurðdeild.
Það var síðan afi Ástu Bínu,
Jóhannes Lárusson, sem tók ferm
ingarmyndirnar í Hellisgerði í
Hafnarfirði. „Hann er áhugaljós
myndari og tekur mikið af frá
bærum myndum af fjölskyldunni.“
Ásta Bína bætir við að það hafi
snjóað smá á meðan á myndatök
unni stóð og verið kalt þennan dag.
Ásta Bína segist hafa fengið
mikið af góðum gjöfum. „Besta
gjöfin var frá mömmu, pabba og
Lenu en ég fékk iPad Air frá þeim.
Það var einnig gaman að fá pening
til þess að geyma fyrir eitthvað
sérstakt en ég hef ekki ákveðið
enn hvað það verður.“ elin@365.is
Söng lag fyrir gestina í veislunni
Ásta Bína Long fermdist í Víðistaðakirkju 2. apríl í fyrra. Hún segist hafa tekið fullan þátt í undirbúningnum og segir að dagurinn hafi verið
mjög eftirminnilegur. Ásta Bína söng lagið Hjá þér fyrir gesti sína í fermingarveislunni. Einnig söng vinkona móður hennar tvö lög.
Afi Ástu Bínu, Jóhannes Lárusson, tók fermingarmyndirnar í Hellisgerði. Þær eru einstaklega skemmtilegar. MYND/JÓHANNES
Mæðgurnar Ásta Bína og Jóna Ellen. Þær eru afar sáttar við hvernig til tókst með
ferminguna í fyrra. MYND/ANTON BRINK
commaIceland
Smáralind
FERMINGAR
FALLEGT, FÁGAÐ, TÖFF
OG ALLT FULLT AF KJÓLUM
fERMINg Kynningarblað
23. febrúar 20166