Fréttablaðið - 23.02.2016, Page 24
Guðríður fékk þetta skemmtilega verkefni að
sauma fermingarkjól en hún er á lokaári í
kjólasaum í Tækniskólanum. Guðríður hefur saumað
öll sín föt frá því hún var unglingur.
Guðríður saumaði falleg-
an sparikjól á vinkonu sína og
fékk þá beiðni um að sauma
ferm ingar kjól á systur henn-
ar. „Ég bar það undir kennar-
ann minn sem fannst það frá-
bær hugmynd. Það er ákveðin
kúnst að sauma á ungling, ólíkt
því að sauma á fullvaxta konu.
Það komu margar hugmynd-
ir upp varðandi kjólinn. Ferm-
ingarkjólar eru venjulega léttir,
einfaldir og krúttlegir. Vinsælt
er að hafa blúndu eða skraut.
Fermingarstúlkan, sem heitir
Katrín María, kom með ákveðn-
ar hugmyndir og síðan kastaði
ég fram mínum og úr því varð
góð samvinna,“ útskýrir Guð-
ríður.
Kjóllinn er mintugrænn með
smávegis sægrænu og skreyttur
handgerðum blómum sem Guð-
ríður útbjó. „Pastellitir eru mjög
vinsælir núna og þess vegna
kom þessi litur upp. Kjóllinn er
hnésíður og fer henni einstak-
lega vel. Við notuðum siff on-efni
sem er létt og skemmtilegt.
Katrín María er búin að máta
kjólinn og er ótrúlega ánægð
með hann. Fannst hann rosa-
flottur.“
Guðríður er að læra kjólasaum
og tekur sveinspróf í vor. „Ég hef
mjög gaman af þessu námi og
langar að fara síðan í klæðskera-
nám en það er aukaár. Í þessu
námi lærum við sníðagerð sem
er mjög gott að kunna, sérstak-
lega fyrir þær sem vilja halda
áfram í fatahönnun,“ segir Guð-
ríður sem segist hafa haft áhuga
á saumum frá því hún var barn.
„Mig langaði að læra hvernig
maður býr til kjól frá grunni. Ég
hef saumað flest mín föt sjálf.
Mér finnst til dæmis gaman að
búa til snið og vinna út frá þeim.
Mér finnst bæði skemmtilegt að
sauma árshátíðarkjóla og minna
fína kjóla,“ segir Guðríður, sem
má sannarlega vera ánægð með
fyrsta fermingarkjólinn sinn.
elin@365.is
Fermingarkjóllinn
var skólaverkefni
Guðríður Jóhannsdóttir, nemandi í kjólasaum í Tækniskólanum, fékk það
skemmtilega verkefni að sauma fermingarkjól á systur vinkonu sinnar. Kjóllinn er
tilbúinn og verður metinn til einkunna hjá Guðríði sem væntanlega fær gott fyrir.
Guðríður Jóhannsdóttir, nemi í kjólasaum, með fallegan fermingarkjól sem hún
saumaði. MYND/ERNIR
500 gr jarðarber
Safi úr 1/2 sítrónu
1/2 bolli basilíkulauf
1 bolli sykur
Kolsýrt vatn
Maukið jarðarberin í bland-
ara og hellið safanum í gegnum
sigti eða notið safapressu. Hell-
ið jarðarberjasafanum í mæli-
könnu og bætið við vatni þar til
blandan nær einum bolla. Hell-
ið í lítinn pott og bætið sítrónu-
safanum, basilíku og sykri út í.
Hitið við meðalhita þar til suðan
kemur upp. Látið malla í fimm
mínútur og hrærið stöðugt í
á meðan. Takið þá af hellunni
og látið kólna. Hellið sírópinu
í gegnum hreina grisju í hreint
ílát og í ísskáp geymist það í allt
að viku.
Til að blanda drykkinn þarf tvær
matskeiðar af sírópi í glas eða
litlar glerflöskur. Fyllið svo með
kolsýrðu vatni, stingið fallegu
röri í og berið fram.
thekitchn.com
Bragðgóður og frískandi
drykkur á veisluBorðið
Fermingargjöf sem gefur
Fermingarskeyti eða gjafabréf frá Hjálparstarfi kirkjunnar er
gjöf sem heldur áfram að gefa. Fermingarbarnið
fær skeytið eða bréfið í hendurnar en
andvirðið rennur til jafnaldra fermingar-
barnsins sem býr við fátækt.
Sendu skeyti, það kostar 1.990 kr. Eða gefðu
fermingargjafabréf að upphæð 5.000 kr.
Þú færð skeytin og gjafabréfin á
www.gjofsemgefur.is eða pantar þau á
skrifstofunni okkar, 528 4400. Þú prentar út,
sækir til okkar – eða við sendum fyrir þig. Einfalt og gleðilegt.
Óskalistinn minn:
Rúm
Myndavél
Svefnpoki
iPod
Vefmyndavél
Teppi
Orðabók
Hálsmen
Svo væri gaman
að fá pening og
„Gjöf sem gefur“.
Mig langar til að
einhver sem er
ekki eins heppinn
og ég fái að njóta
með mér.
www.gjofsemgefur.is
Við systkinin erum
munaðarlaus. 1.990 kr.
fermingarskeyti á Íslandi
dugar fyrir 3 hænum.
Þær gefa okkur fullt
af eggjum.
5.000 kr. gjafabréf á
Íslandi myndi gefa
okkur geit.
Eða kannski reiðhjól.
Þá kæmist ég á markað
með uppskeruna okkar
og við fengjum pening.
Óskalistinn minn:
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
30
69
1
FERMING Kynningarblað
23. febrúar 20168