Fréttablaðið - 23.02.2016, Side 27

Fréttablaðið - 23.02.2016, Side 27
Fermingarveisla í kjölfar skilnað­ ar getur verið vandasamt verkefni og mikilvægt að huga vel að þörfum og líðan fermingarbarnsins á þessum stóra degi og leggja um leið allar deil­ ur til hliðar. Æskilegt er að fermingarbarnið upplifi að báðir foreldrar komi að undirbúningnum. Ef það á eldri systk­ ini sem hafa fermst, og ákveðnar hefðir eru við lýði í fjölskyldunni varð­ andi fermingar, er mikilvægt að halda í þær ef þess er óskað. Eins og með jólin og aðrar stór­ hátíðir í kjölfar skilnaðar er mikilvægt fyrir foreldra að færast ekki of mikið í fang þótt þeir séu jafnvel að sligast undan samviskubiti. Ef foreldrar gefa ekki fermingargjöfina saman þarf að gæta þess að gjafir beggja séu í sama verð­ eða gæðaflokki. Einnig þurfa foreldrar að undirbúa ættingja fermingarbarnsins svo engir óþarfa árekstrar eigi sér stað. Fermingardagurinn er stór dagur í lífi flestra unglinga sem líður fæstum úr minni og því mikilvægt að foreldrar slíðri sverðin og geri sitt besta til að skapa eftirminnilegan dag og góðar minningar fyrir fermingarbarnið. Dýrmætar minningar Fyllt horn (croissant) eru alltaf vin­ sæl hjá krökkum og þess vegna upplögð á veisluborðið. Hér eru horn sem eru fyllt með osti og beikoni. Uppskriftin miðast við 16 horn 3,5 dl mjólk 50 g pressuger 1 tsk. salt 100 g smjör 1 l hveiti 150 g beikon í bitum 150 g rifinn ostur 1 egg til að pensla Setjið hveiti og salt í hrærivélar­ skál og notið hnoðara. Hrærið smá. Setjið gerið í smábitum saman við. Bræðið smjörið á lágum hita og setjið mjólkina saman við. Blandið saman við hveitið og hnoðið í fimm mínútur á litlum hraða. Bætið í hraðann og haldið áfram að hnoða í tvær mínútur. Setjið plastfilmu yfir skálina og látið deigið hefast í 40 mínútur. Skiptið deiginu í tvennt og útbúið tvo stóra hringi eins og stóra pitsu. Skerið átta þríhyrninga úr hvorum hring með pitsaskerara. Setjið steikt beikon og ost á hvern þríhyrning og rúllið síðan upp svo úr verði horn. Leggið horn­ in á bökunarpappír á plötu. Leggið viskastykki yfir og látið hefast í 35 mínútur. Penslið með hrærðu eggi og bakið í miðjum ofni við 225°C í 10­13 mínútur. Hægt er að nota skinku í staðinn fyrir beikon. Einnig er hægt að gera hornin án fyllingar. Horn með osti og beikoni Í flestum fermingarveislum er smáfólk sem getur orðið óþreyju­ fullt í langri veislu. Þá er ráð að útbúa barnahorn með borði og stólum fyrir krakka. Þar er hægt að hafa liti, litabækur, bækur, legó og playmó svo dæmi séu nefnd. Eins er hægt að bjóða upp á teiknimynd ef aðstæður leyfa. Það er svo upplagt að biðja ein­ hvern ættingja að líta til með barnahópnum og ef einhver hefur gaman af því að stjórna leikjum er það auðvitað enn betra. Þann­ ig má komast hjá því að börnin taki upp á því að fara í eltingaleik um veislusalinn eða feluleik undir borðum og tryggja að aðrir veislu­ gestir og fermingarbarnið njóti sín til fulls. Barnahorn fyrir smáfólkið Kynningarblað ferming 23. febrúar 2016 11

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.