Fréttablaðið - 23.02.2016, Page 28
ferming Kynningarblað
23. febrúar 201612
„Fallegt veisluborð og falleg
kaka á borðinu setur algerlega
punktinn yfir i-ið að mínu mati,
sama hvort um er að ræða sykur-
massa eða annað. Við borðum
nefnilega flest fyrst með augun-
um,“ segir Guðrún Bergsdóttir.
Hún er heimilisfræðikennari að
mennt og hefur frá barnsaldri
verið mikil áhugamanneskja um
bakstur og kökuskreytingar. Hún
útbjó graskersköku með kanil-
kremi fyrir lesendur og gefur
uppskrift. „Þetta er ein af mínum
uppáhalds,“ segir hún. Guðrún
heldur úti kökublogginu Gúmmel-
aði Guðrúnar á Facebook.
„Ég gef alltaf litlu frændsystk-
inum mínum afmæliskökurnar í
afmælisgjöf. Það er hefð, eitt-
hvað sem tengist þeim og þeirra
áhugamáli eða lífi,“ segir Sólrún
Edda Pétursdóttir en hún heldur
út kökublogginu Kökur og fleira
góðgæti á Facebook. „Falleg og
skemmtilega útfærð terta getur
gert mjög mikið fyrir veisluborð
og gefið persónulegra yfir bragð,“
segir hún. „Það má vel nýta sér
YouTube til þess að læra nán-
ast allt, til dæmis fígúrugerð
og skóna sem eru á kökunni.“
heida@365.is
Graskerskaka með
kanilkremi
„Ég skreytti kökuna með sykur-
massa fyrir tilefnið, hún er sett
saman úr þrefaldri uppskrift og
er um 20 cm á hæð. Baksturinn
sjálfur er alls ekkert flókinn og
ætti að vera á færi flestra. Út-
litið er aftur á móti mun flókn-
ara og krefst þess að viðkomandi
kunni eitthvað fyrir sér í vinnu
með sykurmassa.“
l Stillið ofninn á 150 gráður, undir/
yfir hita.
l Smyrjið tvö 20 cm form.
kaka
250 g hveiti
1 tsk. matarsódi
½ tsk. salt
l Blandað saman í skál
og sett til hliðar.
120 g smjör (við
stofuhita)
270 g sykur
2 tsk. vanillusykur
2 stór egg
l Smjör, sykur og vanillu-
sykur þeytt létt og ljóst,
eggjunum bætt út í einu í einu
og þeytt vel á milli
280 g graskersmauk/
púrra (fæst í flestum
matvöruverslunum)
40 g bragðlítil olía
160 g súrmjólk
l Blandað saman í skál.
l Hveitiblöndu og graskersblöndu
er hellt saman við eggjablönd-
una til skiptis þar til allt er bland-
að saman (hræra, ekki þeyta).
l Skiptið deiginu í formin og bakið
í ca. 35 mínútur, eða þar til kök-
urnar eru fallega
ljósgylltar og
tannstöngull
kemur hreinn
út. Kælið.
krem
l 200 g
rjómaostur
(við stofu-
hita)
Hrærið
rjómaostinn
mjúkan í sér skál.
200 g smjör (við stofuhita)
500 g flórsykur
2 tsk. vanillusykur
1-2 tsk. kanill
l Þeytið smjörið létt og ljóst (nán-
ast hvítt).
l Bætið flórsykri smáM saman út í
og svo vanillusykrinum.
l Setjið nú hrærðan rjómaostinn út
í og þeytið vel.
l Að lokum er kremið smakkað til
með 1-2 tsk. af kanil.
l Setjið kremið á milli botnanna og
yfir.
Borðum oftast fyrst með augunum
Vinkonurnar Guðrún Bergsdóttir og Sólrún Edda Pétursdóttir eru báðar eldheitar áhugamanneskjur um bakstur og kökuskreytingar. Þær
segja fallega tertu gera mikið fyrir veisluborðið og gefa því persónulegt yfirbragð. Guðrún gefur hér uppskrift að fermingartertu.
graskerskaka með kanilkremi. „Ég skreytti kökuna með sykurmassa fyrir tilefnið,
hún er sett saman úr þrefaldri uppskrift og er um 20 cm á hæð.“
Sólrún edda Pétursdóttir og guðrún Bergsdóttir eru eldheitar áhugamanneskjur um
bakstur og halda báðar úti kökubloggi á facebook. Þær segja fallega köku gera mikið
fyrir veisluborðið. guðrún gefur lesendum uppskrift að graskersköku. mynd/anton BrinK
Hér er rosaleg súkkulaðiterta
sem hentar einstaklega vel á
fermingarborðið. Það er mikið
súkkulaði í kökunni en ekkert
hveiti. Kakan er bökuð í vatns-
baði og er best með þeyttum
rjóma eða vanilluís. Uppskriftin
miðast við að kakan passi fyrir
tólf manns.
súkkulaðikaka
5 egg
200 g sykur
1 ¼ dl vatn
350 g dökkt súkkulaði, 70%
225 g ósaltað smjör
l Hitið ofninn í 160°C. Stillið á yfir-
og undirhita.
l Hrærið saman eggjum og helm-
ingnum af sykrinum þar til
blandan verður létt og ljós.
l Setjið restina af
sykrinum í pott
ásamt vatn-
inu og
sjóðið
þar
til
sykurinn er orðinn fljótandi.
Bræðið smjör og súkkulaði í
sykur leginum. Hrærið blöndunni
síðan varlega saman við eggja-
blönduna.
l Klæðið 20 cm hringform með
bökunarpappír. Það má smyrja
hann með smjöri og strá smá-
vegis sykri ofan á. Klæðið formið
með álpappír að utanverðu svo
það verði alveg þétt.
l Hellið deiginu í formið. Setjið
það síðan ofan í ofnskúffu. Setjið
sjóðandi vatn í skúffuna og látið
það ná upp að hálfu kökuformi.
l Bakið kökuna í um það bil klukku-
stund. Kakan á að vera þétt að
utan en svolítið blaut að innan.
l Þegar kakan er tekin úr ofninum
á að láta hana kólna alveg í köku-
forminu. Það getur tekið tvær
klukkustundir. Skreytið
kökuna með berj-
um og berið
fram með
þeyttum
rjóma
eða
ís.
rosaleG súkkulaðiterta
Uppþvottavélar
Helluborð
Ofnar
Háfar
Kæliskápar
Mán. - föst. kl. 10-18 · Laugardaga kl. 11-15
friform.is
Viftur
SANNKALLAÐ
PÁSKAVERÐ
Nú í AÐdRAgANdA PÁSKANNA höfum ViÐ ÁKVEÐiÐ
AÐ bjóÐA oKKAR ALbEStA VERÐ
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500
AFSLÁTTUR
15%
AF ÖLLUM INNRÉTTINGUMTIL PÁSKA
20% AFSLÁTTUR AF
RAFTæKjUM
VÖNDUÐ RAFTæKI Á VæGU VERÐI