Fréttablaðið - 23.02.2016, Page 29
„Við erum jafn gömul fermingar
börnunum, þrettán ára, og vildum
af því tilefni fagna þessum tíma
mótum með þeim,“ segir Chandr
ika Gunnarsson hjá Hraðlestinni
en veitingastaðurinn býður upp
á sérstaklega samsettan matseð
il í anda indverskra „fermingar
veislna“.
„Á Indlandi fögnum við sams
konar tímamótum og fermingin er
hér á Íslandi, svokallaðri Thread
Ceremony, þar sem unglingurinn
er tekinn í tölu fullorðinna,“ út
skýrir Chandrika.
„Veitingarnar sem boðið er upp
á í þessum athöfnum eru sérstak
lega útfærðar með tilliti til þess
að nýtt æviskeið er að hefjast.
Hið ævaforna indverska heilsu
kerfi „Ayurveda“ leggur áherslu
á að hvert krydd hafi mismun
andi áhrif á huga, líkama og sál
en matreiðslumeistarar Hraðlest
arinnar hanna rétti sína með þessi
fræði að leiðarljósi. Alltaf þarf að
hafa í huga hvað er gott fyrir kerf
ið á hverjum tíma. Með aldrinum
breytist lífsstíllinn, við tökumst
á við erfiðari áskoranir, vinnum
meira og þurfum því að huga vel
að heilsunni. Í grundvallaratriðum
er gengið út frá þeirri hugmynd að
þú ert það sem þú borðar!“
Chandrika segir undirbún
ing Thread Ceremony á Indlandi
um margt eins og hefðbundinn
fermingarundirbúning á Íslandi.
Undan fari hátíðarinnar er fræðsla
um hvað felst í því að fullorðn
ast og í athöfninni sjálfri sé farið
í gegnum bænir og fleiri helgi
athafnir líkt og hér.
„Á Indlandi tíðkast þó ekki að
mörg börn fari í gegnum athöfn
ina saman í hóp heldur er þetta
einstaklingsathöfn hverrar fjöl
skyldu þegar barnið verður þrett
án ára. Nánustu fjölskyldu er
boðið í veislu og okkur á Hraðlest
inni langaði að bjóða upp á sömu
veitingar og tíðkast þar. Ferm
ingarbörnin geta þá ýmist valið
rétti af hefðbundnum matseðli hjá
okkur fyrir hlaðborð eða fingra
mat fyrir standandi veislur. Svo er
alltaf hægt að blanda þessu saman
eins og hver og einn vill,“ segir
Chandr ika og leggur áherslu á að
Hraðlestin sérsníði hverja veislu
eftir óskum. Maturinn er eldaður
af faglærðum matreiðslumönnum
sem nota úrvals hráefni.
„Við vinnum veitingarnar allt
af í samvinnu við fermingarbarn
ið og fjölskylduna. Við leggjum
mikið upp úr því að setjast niður
með fólki og finna út hvað ferm
ingarbarnið vill og hvers konar
matur á við. Við brögðum saman á
ýmsum réttum og veljum þá sam
setningu sem hentar best. Þetta er
stór dagur í lífi krakkanna og við
viljum hjálpa til við að gera dag
inn eftirminnilegan. Við getum
þjónustað allar stærðir af veislum,
í heimahúsi eða í stórum sal, og þá
má einnig leigja salarkynni okkar
undir veisluna.“
Nánari upplýsingar á
www.hradlestin.is
Mikilvægum tímamótum fagnað
Hraðlestin fagnar þrettán ára afmæli í ár og býður upp á veislumat eftir indverskri hugmyndafræði fyrir þá sem eru að ganga inn í
fullorðinsárin og fermast. Faglærðir indverskir matreiðslumenn töfra fram rétti úr fyrsta flokks hráefni fyrir veislur af öllum stærðum.
Hraðlestin fagnar þrettán ára afmæli í ár og býður upp á veislumat eftir indverskri hugmyndafræði fyrir þá sem eru að ganga inn í fullorðinsárin.
Kryddin sem notuð eru í matargerðina hjá Hraðlestinni eru sérinnflutt frá Indlandi.
MyNd/HraðlestIN
Hjá Hraðlestinni er hver veisla sérsniðin eftir óskum. „Fermingarbörnin geta ýmist
valið rétti af hefðbundnum matseðli hjá okkur fyrir hlaðborð eða fingramat fyrir
standandi veislur.“
Biju George frá Kerala á suður-Indlandi
er kokkur á Hraðlestinni. Hann töfrar
fram rétti úr fyrsta flokks hráefni fyrir
veislur af öllum stærðum. MyNd/aNtoN
Kynningarblað FerMING
23. febrúar 2016 13