Fréttablaðið - 23.02.2016, Qupperneq 30
Er fjölskyldan í Ásatrúarfélaginu?
Mamma er í Ásatrúarfélaginu og
pabbi minn líka. Þau eltu mig eigin-
lega í félagið þannig að það má segja
að ég hafi eiginlega ráðið trúmál-
um þeirra. Oftast er þetta kannski
þannig að krakkar elta foreldrana
eða annað ættfólk þegar þeir velja
trú en þetta var eiginlega öfugt hjá
mér.
Takið þið virkan þátt? Já. Ég fór nátt-
úrulega í fræðslu allan síðasta vetur
og hef farið á opið hús en ég er ekki
enn búinn að fara á blót. Ég ætlaði á
eitt blót um daginn en það var meira
fullorðinsblót. Næst langar mig á
Sigurblót sem verður á sumardag-
inn fyrsta. Svo er líka haldið blót á
Þingvöllum á sumrin.
Hvað heillar við þessa trú? Sögurnar
á bak við ásatrúna eru mjög spenn-
andi. Goðafræðin og allt það. Mér
finnst sögurnar af goðunum miklu
skemmtilegri en til dæmis sögurn-
ar í kristnu trúnni.
Af hverju ákvaðstu að taka siðmál-
um að ásatrúarsið? Fyrst vissi ég
bara að ég myndi ekki vilja fermast
og vera kristinn. Þannig að ég fór
að hugsa um alls konar trúarbrögð
og fannst Ásatrúarfélagið svo osom.
Ég vissi ekki að það væri til trú um
þessar sögur sem ég var oft búinn
að heyra um síðan ég var lítill. Ég
vissi strax að þetta væri fyrir mig.
Ég vissi það bara um leið og ég vissi
að Ásatrúarfélagið væri til.
Hvað lærðir þú í fræðslunni? Mjög
mikið. Mest lærðum við í Háva-
málum, þar lærir maður hvernig
maður á að haga sér og tala, hvern-
ig vinur maður á að vera, hvernig
vini maður á að velja sér. Hvernig
maður á að vera til staðar. Hvern-
ig kurteisi er. Hvernig maður getur
verið glaður í lífinu og bara hvernig
góður einstaklingur á að vera. Það
var líka farið yfir hvernig maður
notar heiðinn sið í nútímanum þótt
til dæmis Hávamál séu mjög gömul
frá tíma þar sem margt var öðruvísi
þá er alveg hægt að nota reglurnar í
Hávamálum í nútímanum.
Hvar fór athöfnin fram og hver fram-
kvæmdi hana? Það er nóg pláss í
kringum húsið heima þannig að
við vorum bara bak við hús. Jó-
hanna Harðardóttir Kjalnesinga-
goði stjórnaði athöfninni.
Voru margir gestir? Það voru held
ég eitthvað fleiri en fjörutíu.
Margir í fjölskyldunni eiga heima
fyrir norðan en það var samt mjög
passlegt fyrir húsið okkar.
Getur þú lýst aðeins stemningunni
í athöfninni? Ég veit ekki alveg
hvernig á að útskýra það. Hún var
bæði skrýtin og góð og mér leið
alveg hárrétt í athöfninni. Eins og
þetta væri rétt skref hjá mér.
Það var eldur í athöfninni og goð-
inn hélt mjög flotta ræðu fyrir mig
og hrósaði mér mjög mikið. Afi
hélt líka ræðu og svo las ég uppá-
haldserindin mín í Hávamálum.
Þau snúast um vináttu. Hér fyrir
neðan eru uppáhaldserindin mín.
Allir drukku svo mjöð úr horni og
skáluðu fyrir mér og goðunum.
43.
Vin sínum
skal maður vinur vera,
þeim og þess vin.
En óvinar síns
skyli engi maður
vinar vinur vera.
44.
Veistu, ef þú vin átt,
þann er þú vel trúir,
og vilt þú af honum gott geta,
geði skaltu við þann blanda
og gjöfum skipta,
fara að finna oft.
Hvað var boðið upp á í veislunni?
Við vorum með fiskisúpu og
brauð og alls konar kökur.
Hvað stendur upp úr þegar þú
hugsar til baka? Ég var búinn
að kvíða fyrir athöfninni og var
hræddur um að klúðra því að
flytja erindin úr Hávamálum.
En það gekk alveg hrikalega vel
þannig að ég var mjög ánægður
með það. Svona ásatrúarathöfn er
allt öðruvísi en að fara í kirkju.
Ég get aldrei munað hvað gerist í
kirkjum en ég mun aldrei gleyma
þessari athöfn og ég held að gest-
irnir mínir gleymi henni ekki
heldur. Svo stendur líka upp úr
á þessum degi að fjölskyldurnar
mínar komu saman og voru allan
daginn með mér og fyrir mig.
solveig@365.is
Vissi að þetta væri rétt skref
Davíð Jónsson, nemandi í 9. bekk í Hagaskóla, tók siðmálum að heiðnum sið ásatrúar síðastliðið haust. Hann heillaðist af goðafræðinni
og vissi um leið og hann kynnti sér ásatrúna að þetta væri eitthvað fyrir sig. Athöfnin fór fram við heimili Davíðs á Seltjarnarnesinu.
Davíð las uppáhaldserindin sín úr Hávamálum. MynD/PHotograPHer.is/geirix
Jóhanna Harðardóttir Kjalnesingagoði stjórnaði athöfninni. MynD/PHotograPHer.is/geirix
Maður lærir hvernig
maður á að haga sér og
tala, hvernig vinur
maður á að vera, hvernig
vini maður á að velja sér.
Davíð Jónsson
Heitir brauðréttir ganga undir
gælunafninu „fermingarréttir“ því
þeir hafa einfaldlega þótt ómiss-
andi á fermingarborðið í áraraðir.
Þessi uppskrift er fengin af vefn-
um Eldhússögur og fær bragðlauk-
ana til að taka á sprett.
BrAuðréTTur í EldfösTu
móTi
250 g sveppir
1 búnt ferskt brokkolí
1 stk. stór, rauð paprika
1 blaðlaukur
ca. 200 g skinka, skorin í
strimla
1 piparostur, skorinn í litla
bita
1 brieostur eða camembert,
rifinn niður
1-2 pelar rjómi
Smjör
Grænmetiskraftur
1-2 teningar kryddblanda, t.d.
Best á allt eða Töfrakryddið
frá Pottagöldrum
BrAuð:
ca. 2/3 af heimilisbrauði
Hunangs dijon-sinnep
Rifinn ostur
l Búið til samlokur úr brauð-
inu, smurðar með dijon-sinnepi,
gætið þess að nota ekki of mikið
af sinnepinu. Skerið skorpuna af
(má halda henni) og rífið samlok-
urnar eða skerið í litla ferninga.
Setjið brauðið í botninn á eld-
föstu smurðu móti. Skerið sveppi,
papriku, brokkólí og púrrulauk í
litla bita og steikið ásamt skink-
unni í smjöri á pönnu. Bætið
pipar ostinum, brie-ostinum og
grænmetiskraftinum út í, kryddið
og látið ostinn bráðna.
l Rjóminn er settur út í að síðustu
og athugið að sósan á að vera
þunn. Hellið sósunni yfir brauð-
ið og stráið rifnum osti yfir. Bakið
í ofni við 200 gráður í 15-20 mín-
útur eða þar til osturinn er orðinn
gullinbrúnn. Þessi uppskrift pass-
ar í mjög stórt eldfast form eða
tvö minni.
eldhussogur.is
sígildur brauðréttur
fyrir ferminguna
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Rekstrarvörur
– fyrir þig og þinn vinnustað
Fyrir ferminguna og önnur
hátíðleg tækifæri
– servíettur, dúkar, yfirdúkar og
kerti í miklu úrvali
24/7
RV.is
Sjáðu allt
úrvalið á
RV.is
ferMing Kynningarblað
23. febrúar 201614