Fréttablaðið - 23.02.2016, Side 32
ferming Kynningarblað
23. febrúar 201616
Sigrún segist muna nokkuð vel eftir þess
um degi. „Við fengum fermingarfræðslu
og maður var stundum stressaður yfir
ritningarorðum sem þurfti að læra utan
bókar. Ég man að ég átti að standa fremst
í röðinni af því að ég var minnst í hópn
um. Ætli ég hafi ekki verið fegin þegar
ég var búin að fara með mín ritningarorð,
maður var með svolítinn hjartslátt,“ rifj
ar hún upp.
„Ég fékk mjög fallegan kjól, svolítið
hippalegan. Hann var síður með suður
amerísku mynstri í brúnum og appel
sínugulum hippalitum. Skórnir voru úr
rúskinni með háum botni sem var mjög
fínt. Ég vildi alls ekki vera með uppsett
hár með slöngulokkum eins og flestar
fermingarstúlkur á þessum tíma. Kaus
að hafa hárið slegið og ekkert hárlakk,
takk. Mamma greiddi mér og skreytti með
hvítri nelliku. Fermingarmyndin mín er
því ekkert dramatísk.
Veislan var haldin í sal hjá Útvegs
bankanum. Boðið var í hádegisverð, heit
an mat með öllu tilheyrandi. Þá fékk ég í
fyrsta skipti að sitja við háborð. Sett var
upp leiksýning, leikrit eftir mömmu, sem
hét: Mér er sama þótt einhver hlæi að mér.
Leikritið fjallaði um tröllastelpu sem var
út undan í lífinu. Mamma lék stelpuna og
stjúpfaðir minn lék með henni,“ segir Sig
rún Edda en eins og flestir vita er Guðrún
Ásmundsdóttir leikkona móðir hennar en
hún var gift Kjartani Ragnarssyni leikara
á þessum tíma.
Faðir minn, Björn Björnsson, var bú
settur í Bandaríkjunum. Hann gaf mér
ákaflega eftirminnilega gjöf sem var Sony
útvarps og snældutæki. Þá gat ég tekið
upp Lög unga fólksins beint úr útvarpinu.
Þetta var mjög nýstárlega græja. Tækið
var úr plasti og einn sólardag bráðn
aði bakið á því í glugganum í herberginu
mínu. Síðan fékk ég úr og skrifborð frá
mömmu. Ég fékk líka þrjú bjútíbox sem
þá voru í tísku. Þau átti ég lengi en notaði
ekki neitt. Auk þessa fékk ég Passíusálm
ana með gylltri nafnáletrun sem ég á enn,
þrjá hringi og rúbínkross. Peningagjöfum
eyddi ég í skvísuföt í Karna bæ,“ segir Sig
rún Edda hlæjandi en hún man vel þennan
dag þótt liðin séu nokkur ár. Sjálf er hún
búin að ferma bæði börnin sín. „Ég smit
aðist örugglega af veislugleði mömmu.
Önnur fermingin var úti í Viðey og hin
var í veislusal við höfnina þar sem Harpa
stendur núna. Báðar mjög vel heppnaðar
með eftirminnilegum skemmtiatriðum.“
elin@365.is
mamma setti upp leiksýningu
Sigrún edda Björnsdóttir leikkona á góðar minningar frá fermingardeginum. Hún fermdist í Neskirkju hjá séra Frank M. Halldórssyni,
22. apríl 1972, og segist eiga góðar minningar frá þeim degi. Hún minnist sérstaklega nútímalegrar græju sem var útvarps- og snældutæki.
Sigrún edda í hippakjólnum ásamt bróður sínum, Leifi. falleg fermingarmynd og ekkert dramatísk, eins og
Sigrún edda segir.
Sigrún edda Björnsdóttir fermdist í neskirkju í
apríl 1972. Hún á góðar minningar frá deginum.
mYnD/ernir
Skinkuhorn og pítsasnúðar eru
tilvaldir á fermingarborðið, sér
í lagi fyrir börnin. Hér eru tvær
góðar uppskriftir.
Skinkuhorn
100 g smjör
900 g hveiti
60 g sykur
½ tsk. salt
½ lítri mjólk
1 bréf þurrger
(ca. 12 g)
1 egg til að
pensla hornin
með (líka
hægt að nota
mjólk)
Fylling
2 pakkar
skinkumyrja
Smjörið brætt og mjólk-
in sett saman við, bland-
an á að vera um 35°C
heit. Blandið geri og
sykri saman við,
pískið létt saman.
Látið standa í 10
mín. Hveiti bætt
við og allt hnoð-
að saman þar
til deigið er slétt
og samfellt. Látið
deigið lyfta sér
undir rökum klút í 45
mínútur. Deiginu er skipt
upp í nokkrar minni eining-
ar. Hver eining er flött út í hring,
smurð með skinkumyrju, skor-
in í geira, til dæmis með pítsa-
hníf, og hverjum geira rúllað upp
frá breiðari endanum. Hornun-
um er raðað á bökunarplötu og
þau pensluð með eggi. Það er gott
að leyfa hornunum að lyfta sér
í 15-20 mínútur áður en þau eru
sett í ofninn.
Bakið við 225 gráður í 8-10 mín-
útur.
Uppskriftin er fengin af vefsíð-
unni eldhussogur.com
PítSaSnúðar
200 g smjör
6 dl mjólk
1 poki þurrger
4 tsk. sykur
2 tsk. salt
1 kg hveiti
Um 200 g skinka
Um 200 g salamí
Um 300 g rifinn
ostur
½–1 flaska
pítsasósa
2 msk.
þurrkað
óreganó
1 pískað
egg til að
penslunar
Bræðið smjör-
ið og bætið mjólkinni
út í. Hitið að ca. 42°C.
Blandið þurrgerinu
saman við þurrefn-
in í hrærivélarskál,
bætið vökvanum
saman við og
hnoðið þar til
deigið verður
slétt og kekkja-
laust. Hefist
undir plastfilmu
í ca. 40 mínútur.
Deigið er tekið úr
skálinni og hnoð-
að aðeins á borðplötu.
Því er síðan skipt í tvennt.
Fletjið út deigið í ca. 20 x 30 cm
ferninga. Raðið pítsasósu og því
áleggi sem þið kjósið á ferning-
ana og rúllið svo þétt upp.
Skerið hverja rúllu í 15 bita (ca.
2 cm þykka). Leggið snúðana á
smjörpappírsklædda ofnplötu og
látið hefast í 20 mínútur.
Penslið hvern snúð með písk-
uðu eggi og stráið óreganó yfir.
Steikið snúðana við 225°C í 12-15
mínútur.
Uppskriftin er fengin af ljufa-
lif.com
horn og Snúðar
Skinkuhorn
Pítsasnúðar
Faxafen 8 • Sími 567 9585 • www.storkaup.is • storkaup@storkaup.is
Almondy Caramel&Peanuts
1kg 12 sneiðar
2.775kr/stk
Allt fyrir veisluna
Stórkaup býður upp á fjölbreytt úrval af tilbúnum
réttum á veisluborðið. Einfalt að bera fram!