Fréttablaðið - 23.02.2016, Page 36
Eftir veisluna
munum við fjölskyldan
ganga frá eftir okkur og
fara svo heim og eiga
kósístund við að opna
pakkana. Ég veit eigin-
lega ekki hvort ég hlakka
meira til þess eða veisl-
unnar.
Margrét Nína Geirsdóttir
fErming Kynningarblað
23. febrúar 201620
Leó már Jónsson er ekki
stressaður fyrir
fermingardeginum og
fjölskyldan hefur ekki verið að
stressa sig mikið í
undirbúningnum fyrir athöfnina
og veisluna. Leó Már fermist
borgaralegri fermingu hjá
Siðmennt þann 24. apríl
næstkomandi.
Hvar verður veislan haldin? Hún
verður haldin í sal í fyrirtæki sem
foreldrar mínir eiga í Hlíðasmára
í Kópavogi.
Hvernig verður veislan? Hún verð-
ur frekar hefðbundin kaffitíma-
veisla og bjóðum við upp á kökur
og gúmmelaði. Einnig verða
kannski skemmtiatriði og leikir.
Mamma og pabbi eru frekar hress.
Koma margir í veisluna? Ég veit
það ekki, sirka fimmtíu til sjötíu
manns ef börnin eru talin með.
Frænkur mínar eiga frekar mörg
börn.
Verða skemmtiatriði? Já, ég held
það. Litla systir mín hefur allavega
ýjað að því að hún verði með atriði,
svo er aldrei að vita hvað foreldr-
ar mínir gera.
Í hverju langar þig að fermast? Ég
fermist kannski í jakkafötum,
þetta er enn á umræðustigi en mig
langar helst að fötin sem ég verð í
séu þægileg.
Hvað langar þig í í fermingargjöf?
Mig langar í Playstation 4 eða svif-
bretti (hover board).
Hvernig hefur fermingarfræðsl-
an verið? Áhugaverð og öðruvísi
og mun skemmtilegri en skólinn.
Við erum að læra um rökhugsun,
heimspeki, fordóma, ýmislegt um
samfélagið og ákvarðanir. Virki-
lega áhugavert.
Tekurðu þátt í undirbúningnum fyrir
ferminguna? Eiginlega ekki, móðir
mín sér mest um það allt saman.
Hún er samt nýbúin að eignast
barn og var bara að byrja. Vin-
konur hennar ætla að baka ferm-
ingarköku en þær fóru á köku-
gerðarnámskeið og ætla að hjálpa
mömmu.
Hvernig var undirbúningurinn?
Bara frekar lítill, við erum frek-
ar róleg fjölskylda.
Ertu stressaður fyrir stóra degin-
um? Nei, það er ég ekki, mér finnst
þetta bara svona eins og afmæli
eða hátíð.
Af hverju ætlarðu að fermast? Því
mér finnst þetta mjög áhugavert
það sem er verið að gera í borg-
aralegri fermingu, ég kynnti mér
starfið vel áður en ég tók ákvörð-
unina og vildi slá til.
Vill helst fermast í
þægilegum fötum
Leó már er ekki enn búinn að finna
fermingarfötin en hann langar að vera í
einhverju þægilegu. mYnD/AnTOn BrinK
„Hið danska og skandinavíska
smurbrauð hefur notið sívaxandi
vinsælda á síðustu árum og skyldi
engan undra, enda er þar um létta
og gómsæta máltíð að ræða sem
hentar við flest tækifæri,“ segir
Þuríður Davíðsdóttir, smurbrauðs-
dama hjá Brauðbæ.
Brauðbær er í dag starfræktur
sem veisluþjónusta og býður upp
á smurbrauð og snittur af ýmsum
toga, ásamt því að bjóða upp á al-
menna veisluþjónustu sem að
getur skaffað allt milli himins
og jarðar fyrir hvaða veislu sem
er. „Kokteilsnitturnar henta til
dæmis vel í kokteilboðin, en stærð-
in á þeim miðast við einn munn-
bita. Kaffisnittur eru eilítið matar-
meiri, en þær er gert ráð fyrir að
fólk borði með gaffli og henta því
betur í boð þar sem gestum standa
sæti til boða,“ lýsir Þuríður.
Loks býður Brauðbær upp á
klassískt smurbrauð, í hálfum og
heilum sneiðum, sem hentar vel
fyrir hádegisverð eða kvöldverð
þar sem setið er til borðs. „Í smur-
brauðinu er að sjálfsögðu hægt að
fá klassískt smurbrauðsálegg, sem
allir Íslendingar þekkja, eins og
rauðsprettufillet með remúlaði, en
ýmislegt annað gómsætt er í boði.
þar má nefna kjúklingabringu með
beikoni og sveppum, reyktan lax
með eggjasalati og grænum aspas
og roastbeef með steiktum lauk
og asíum,“ segir Þuríður sem ráð-
leggur gjarnan viðskiptavinum um
hvaða magn og hvers slags snitt-
ur henta hverju tækifæri og hvers
kyns veislum.
nánari upplýsingar er að finna á
www.braudbaer.is
Skandinavísk veisla
Smurbrauðsstofan Brauðbær er Íslendingum að góðu kunn, en hún hefur verið
starfrækt á Hótel Óðinsvéum frá árinu 1964. Tilvalið er að panta gómsætar
snittur í fermingarveisluna enda úrvalið fjölbreytt og skemmtilegt.
girnilegir réttir frá Brauðbæ í skandinavískum stíl. mYnD/AnTOn BrinK
Smurbrauðsdaman Þuríður Davíðs-
dóttir.
Margrét Nína var strax ákveðin í
að fermast í kirkju. „Mig langaði
að hafa kirkjulega athöfn. Þá hafa
eiginlega flestir í fjölskyldunni
minni fermst í kirkju.“
Aðspurð segist hún mátulega
trúuð. „Mér hefur allavega þótt
gaman í fermingarfræðslunni.
Við höfum gert alls kyns verkefni,
fræðst um kirkjuna og orgelið og
fengið fræðslu um hvernig Biblí-
an kemur fyrir í kvikmyndum og
tónlistarmyndböndum svo dæmi
séu nefnd.“
Fermingarbörn í Hallgríms-
kirkju mæta að jafnaði í messu
einu sinni í mánuði og hefur Mar-
grét Nína mætt samviskusamlega
í nær allar messur. Aðspurð segir
hún það fínt. „Ég verð þó stundum
svolítið þreytt en við fáum alltaf
hressingu í fræðslunni á eftir.“ Í
síðustu fræðslu valdi Margét Nína
vers til að fara með í fermingar-
athöfninni. „Við fengum lista með
versum og máttum velja það sem
höfðaði til okkar. Ég valdi: Þér
eruð vinir mínir ef þið gjörið það
sem ég býð yður.“
Margrét Nína verður með veislu
á Grand Hóteli og er undirbún-
ingurinn fyrir hana kominn vel á
veg. „Við erum búin að bjóða um
60-70 manns og ætlum að vera með
kökur og smárétti. Eftir veisluna
munum við fjölskyldan ganga frá
eftir okkur og fara svo heim og
eiga kósístund við að opna pakk-
ana. Ég veit eiginlega ekki hvort
ég hlakka meira til þess eða veisl-
unnar,“ segir Margrét Nína og
hlær. En hvað er helst á óskalist-
anum? „Ég held að það sé nú bara
þetta vanalega; peningar og tölva
en annars er ég ánægð með allt.“
Margrét Nína lét sauma á sig
kjól í Kjólum & konfekti og er
virkilega ánægð með útkomuna.
„Hann er svartur í grunninn með
kremaðri blúndu yfir. Svo verð ég í
svörtum hælaskóm úr Maníu við.“
Hárgreiðslan er ekki alveg ákveð-
in en prufugreiðslan er á næsta
leiti. „Mig langar að vera með ein-
hverjar fléttur en líka liði. Við
sjáum bara til hvað verður.“
Fermingarfræðslan í Hall-
grímskirkju hefur verið með nýju
sniði í ár. Að sögn sr. Irmu Sjafn-
ar Óskarsdóttur hefur verið lögð
áhersla á að skapa rými fyrir sam-
fund unglinganna, Guðs og kirkj-
unnar. „Að draga fram það já-
kvæða og styrkja sjálfstraust
þeirra og samstöðu með sjálfum
sér – líka á hinu trúarlega sviði.
Ég held að það hafi bara tekist vel
til.“ vera@365.is
Spennt fyrir stóra deginum
Margrét Nína Geirsdóttir fermist í Hallgrímskirkju 3. apríl næstkomandi og hefur mætt í nær allar fermingarmessur hingað til. Veislan
verður á Grand Hóteli og er undirbúningur kominn vel af stað. Fermingarkjóllinn er úr Kjólum & konfekti og er þegar kominn í hús.
margrét nína lét sauma kjólinn í Kjólum & konfekti. mYnD/AnTOn BrinK