Fréttablaðið - 23.02.2016, Side 38

Fréttablaðið - 23.02.2016, Side 38
ferming Kynningarblað 23. febrúar 201622 Faxafen 8 • Sími 567 9585 • www.storkaup.is • storkaup@storkaup.is Butterfly rækjur 60stk í pakka -1kg 2.999kr/pk Mini Springrolls 60stk í pakka -900 gr 699kr/pk Kjúklingaspjót, Satay 50stk í pakka -1,5kg 5.799kr/pk Vatnsdeigsbollur, fylltar 80stk í pakka -1kg 1.099kr/pk Piccolinis smápizzur 3 teg 40stk í pakka 1.999kr/pk Mini Brownies 96stk í pakka 1.999kr/pk Allt fyrir veisluna Stórkaup býður upp á fjölbreytt úrval af tilbúnum réttum á veisluborðið. Einfalt að bera fram! Guðríði Margréti Jóhannsdóttur bakaranema finnst fátt skemmti­ legra en að vakna um helgar þegar hún er í fríi og hefur tíma til þess að baka köku, og ekki kvartar fjöl­ skyldan þegar það er nýbakað á borðum. „Svo er líka mikill kost­ ur að kærastinn minn er lærður bakari svo hann hjálpar mér oft við að baka, það er líka gaman að geta bakað saman,“ segir Gurrý eins og hún er kölluð og brosir. Hún hefur haft áhuga á alls kyns matargerð síðan hún man eftir sér og talar pabbi henn­ ar oft um að þegar hún var yngri vildi hún ekki horfa á barnatímann heldur bara BBC food. „Þegar ég fór svo að geta bakað sjálf fannst mér langskemmti­ legast að baka og varð það að stóru áhugamáli hjá mér.“ Gurrý gefur hér uppskrift að dásamlegri súkkulaðiköku sem hún myndi sjálf bjóða upp á ef hún væri að halda fermingar­ veislu. Þessi uppskrift er sú sem Gurrý hefur notað hvað mest, þróað og gert að sinni eigin. „Ef ég væri að halda fermingarveislu myndi ég bjóða upp á mexíkóska súpu með kjúklingi og tortilla­ kökur með rjómaosti, papriku og púrrulauk inni í og svo væri auð­ vitað salsasósa til að dýfa í. Ég myndi hafa fermingar­ kökuna sykurmassa­ köku með súkk­ ulaðikökunni minni inni í og skreyta hana fallega þar sem mér finnst ferm­ ingarkakan sjálf mikil­ vægust. Auk þess nokkrar tertur með, til dæmis jarðar­ berja frómas­ tertu eða Pipp­rjómatertu. Svo finnst mér allt­ af fallegt að hafa makkarónur því þær eru svo fallegar sem skraut.“ liljabjork@365.is Súkkulaðikaka 200 g sykur 200 g púðursykur 180 g smjör 3 egg 300 g hveiti 1 ½ tsk. matarsódi 1 ½ tsk. lyftiduft 4 g kakó 270 ml mjólk (svolítið eftir tilfinningu líka) l Ef vill má bæta við kúlusúkki, skera það niður í smærri bita og setja í kök- una. krem 500 g flórsykur 50 g kakó 1 egg 90 g brætt smjör 2 tsk. vanilludropar 1 espresso-bolli (ef vill) Ef kremið er of þykkt má þynna smátt og smátt með mjólk (um það bil 4 msk.) l Hrærið saman sykri, púðursykri og smjöri þar til ljóst og létt, eggj- unum svo bætt út í. Öll þurrefni sett út í skálina og hrært saman og mjólkinni bætt rólega við. Ef notað er kúlusúkk er best að hræra það saman við deigið með sleikju. l Allt sett saman í skál nema kaffið. Hrært smá saman og kaffinu svo bætt við. Gott er að smakka á milli og bæta kaffinu við eftir smekk. Dásamleg súkkulaðikaka Bakaraneminn guðríður margrét Jóhannsdóttir gefur hér uppskrift að súkkulaðiköku sem er einföld en afskaplega ljúffeng og því tilvalin í fermingarveisluna. Uppskriftina hefur hún þróað og gert að sinni eigin. gurrý gefur hér uppskrift að dásamlegri súkkulaðiköku sem hún myndi sjálf bjóða upp á ef hún væri að halda fermingarveislu. mYnD/AnTOn BrinK 1 kg litlar soðnar hvítar kartöflur 1 poki Oumph! kebab-bitar Sneið af cantaloupe melónu 2 lítil avókadó, afhýdd og steinhreinsuð 2 hvítlauksrif 1-2 msk. ferskur sítrónusafi ½–1 tsk. eplaedik (má sleppa) ½–1 dl kjúklingabaunasoð, t.d. af niðursoðnum baunum (má nota góða olíu í staðinn en þá minna magn) Flögusalt og nýmalaður svartur pipar Þurrkuð steinselja og þurrkaðar chiliflögur (má sleppa) l Kremjið soðnar kartöflurnar niður í ca. 1/2 cm þykkt og raðið á bökunarpappír. Penslið kjúklinga- baunasoði eða olíu á hverja kart- öflu og stráið salti og pipar yfir allt. Bakið við 180 gráður þar til kartöfl- urnar eru fallega brúnar að ofan. Snúið þeim við og endurtakið. Strá- ið þurrkaðri steinselju yfir í lokin og látið kólna. Steikið Oumph! í 4-5 mínútur, þar til það fær á sig fallega steikingar áferð. Maukið saman avókadó og hvítlauk, smakkið til með sítrónusafa og örlitlu epla- ediki ásamt salti og pipar. Mylj- ið chiliflögur út í eftir smekk. Sker- ið melónuna smátt og setjið bit- ana saman: Kartafla neðst, svo sósa og melóna, loks Oumph! biti og þurrkuð steinselja yfir. Það gæti þurft að setja tvo Oumph! bita á sumar kartöflur eða skera þá í tvennt, allt eftir stærð kartafln- anna. www.hugmyndiradhollustu.is. Kartöflumunnbitar með kebab og grænni hvítlaukssósu Ljúffengur vegan réttur sem er skemmtileg tilbreyting á hlaðborðið.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.