Fréttablaðið - 23.02.2016, Side 44

Fréttablaðið - 23.02.2016, Side 44
Pabbi er einhver almesti listamaður sem ég þekki. Hann tók sig til og skar göt í hvít Duni- kerti sem hann límdi semelíusteina í. Hann kom þeim svo fyrir úti um allan sal sem glitraði eftir því. Greta Salóme Stefánsdóttir ferming Kynningarblað 23. febrúar 201628 Eurovision-farinn Greta Salóme Stefánsdóttir fermdist í Lága- fellskirkju 20. apríl árið 2000. Veislan var haldin í KFUM og KFUK salnum að Holtavegi. Dag- urinn er henni enn í fersku minni. „Það var bjart og fallegt veður og ég var svo heppin að foreldrar mínir lögðu svakalega mikið upp úr því að gera alla umgjörðina sem fallegasta.“ Faðir Gretu Salóme er bygg- ingameist- ari og með ein- dæmum hand- laginn. „Hann er einhver almesti listamaður sem ég þekki. Hann tók sig til og skar göt í hvít Duni-kerti sem hann límdi semelíusteina í. Hann kom þeim svo fyrir úti um allan sal sem glitraði eftir því,“ rifjar Greta upp. Móðir hennar hefur ekki síður næmt auga og var búin að dreifa rósablöðum á jarðdúk við innganginn. „Aðkoman var því stórkostleg,“ lýsir Greta Salóme. „Þá smíðaði pabbi sandblásið kertaaltari og letraði fermingar- daginn og fermingarversið mitt á hann, sem kom mjög vel út.“ Greta segir undirbúning ferm- ingarinnar ekki síður hafa verið eftirminnilegan enda átti fjöl- skyldan margar góðar samveru- stundir við föndur og skipulagn- ingu í aðdraganda hennar. Greta Salóme fékk fiðlu í fermingar- gjöf sem var án efa eftirminni- legasta gjöfin. „Hún fullkomnaði daginn.“ Í veislunni voru aðallega kökur. Greta Salóme var í hvít- um skósíðum blúndukjól með haf- meyjusniði úr Cosmo með hárið hálfuppsett. „Mér fannst kjóllinn mjög fallegur á sínum tíma en er ekki viss um að ég hefði fallið fyrir honum í dag.“ vera@365.is foreldrarnir lögðu mikið í umgjörðina Greta Salóme Stefánsdóttir fékk fiðlu í fermingargjöf. Það var draumagjöfin. greta Salóme fékk fiðlu í fermingargjöf. 50 bitar, maki 5.899 50 bitar, grænmetis 4.999 40 bitar, ekkert hrátt 5.499 50 bitar, maki, nigiri og sashimi 5.899 50 bitar, maki og nigiri 5.899 Veislubakka þarf að panta með dags fyrirvara í síma 563 5225 eða senda tölvupóst á origamisushi@origamisushi.is VEISLUBAKKAR Karamellupopp er sniðugt snakk í fermingarveisluna, bæði finnst flestum það bragðgott og svo er það fallegt á veisluborðið. Á vef- síðunni Endless Appetizers má finna þessa góðu uppskrift að karamellupoppi sem er frekar einföld. 14 bollar af poppuðu poppkorni 1 bolli jarðhnetur eða kasjúhnetur (ef vill) ½ bolli smjör 1 bolli púðursykur ¼ bolli ljóst síróp ½ tsk. salt ½ tsk. vanilluextrakt ½ matarsódi l Hitið ofninn í 120°C. Setjið poppið í mjög stóra skál. Hafið hneturnar tilbúnar í annarri skál nærri poppskálinni. Setjið til hliðar. l Breiðið út örk af álpappír á ofnplötu og aðra af bökunarpappír á borð. l Blandið saman á pönnu, smjöri, púðursykri, sírópi og salti. Hitið á meðalhita að suðu, látið malla í fimm mínútur og hrærið rólega og stöðugt í á meðan. Takið af hitanum og bætið við vanillu og matarsóda, hrærið þar til allt er alveg blandað saman. l Hellið svo karamellunni strax yfir poppkornið og hafið hraðar hendur svo hún harðni ekki. Þegar búið er að hella karamellunni yfir (og áður en farið er að hræra) stráið þá hnetunum yfir karamelluna. l Hrærið með trésleif þar til allt er vel blandað. l Hellið karamellupoppkorninu á álpappírinn og dreifið vel úr því. Bakið í ofni í hálftíma en takið álpappírinn undan poppinu eftir korter svo það snúist. l Takið poppið úr ofni, hellið því á bökunarpappírinn og látið kólna. Geymist í loftþéttum umbúðum. Karamellupopp í veisluna Karamellupopp er alltaf vinsælt hjá yngstu kynslóðinni.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.