Fréttablaðið - 23.02.2016, Síða 48

Fréttablaðið - 23.02.2016, Síða 48
Ég fermdist árið 1996 og mínar fermingar- myndir eru bara ofan í skúffu. ferming Kynningarblað 23. febrúar 201632 „Það eru frekar léttar greiðslur í gangi fyrir fermingarnar þetta árið, líkt og undanfarin ár. Hjá stelpunum eru litlar fléttur í hár­ inu að koma inn sem skraut með­ fram þessum stóru fléttum sem hafa verið eða alveg í staðinn fyrir þær. Einnig eru að koma inn núna snúningar í hárinu, sem ég man eftir að voru vin­ sælir fyrir 17 árum,“ segir Rán Reynisdóttir, hársnyrtimeistari á Feima hárstofu. „Stelpur eru mikið að safna hári fyrir ferminguna, þó ein og ein hafi hárið stutt. Strákarn­ ir eru mjög herralegir núna og mikið um klassískar herraklipp­ ingar fyrir fermingarnar í ár. Stutt í hliðum og hnakka en haft  síðara ofan á og í toppinn. Ég held að fermingartískan í ár muni eldast vel, það ætti ekki að verða vandræðalegt að skoða fermingarmynd­ irnar eftir nokkur ár. Ég fermdist 1996 og mínar fermingar­ myndir eru bara geymd­ ar ofan í skúffu,“ segir hún hlæjandi. Rán fékk Unni  Arn­ ette í stól­ inn hjá sér og útfærði eina fermingargreiðslu fyrir blaðið. „Við byrjuðum á að krulla allt hárið vel en skildum hárið í hliðinni eftir og sléttuð­ um það aðeins. Við greiddum síðan aðeins úr öllum krull­ unum til að mýkja þær en greiðslan er frekar létt. Slétta hárið var svo fest upp í hlið­ i n n i og svo tengd­ u m v ið þrjár litl­ ar flétt­ ur þar við. Að end ­ ingu notuð­ um við lif­ andi blóm sem skraut.“ heida @365.is fermingarmyndin mun eldast vel Hárgreiðslan er gjarnan heilmikið mál á fermingardaginn. rán reynisdóttir hársnyrtimeistari segir létt yfirbragð einkenna fermingargreiðslurnar í ár, stelpurnar safni hári og strákarnir velji klassískar herraklippingar, til dæmis í anda Justins Bieber. Hártískan í ár muni eldast vel á mynd. rán reynisdóttir hársnyrtimeistari á feima hárstofu segir létt yfir fermingar- greiðslunum í ár. mynd/anton brinK fyrsta skref er að krulla allt hárið og greiða svo í gegnum það til að mýkja liðina. Hárið í annarri hliðinni er sléttað og svo fest upp. Þrjár litlar fléttur leggjast yfir hárið og setja svip á greiðsluna. fermingargreiðsla strákanna í ár er í líkingu við kollinn á Justin bieber. nordic pHotos/getty 1 2 3

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.