Fréttablaðið - 23.02.2016, Qupperneq 51
Hægt er að skreyta tertur á mismunandi
hátt. Það er mjög fallegt að klæða köku með
hvítu súkkulaði. Ofan á kökuna má setja
jarðarber sem dýft hefur verið í rautt súkk
ulaði eða blátt eða hvaða annan lit sem er.
Þá er hvítt súkkulaði brætt og örlitlum mat
arlit bætt út í. Jarðarberjunum er dýft ofan
í og þau eru síðan lögð varlega á bökunar
pappír. Einnig má skreyta hvíta tertu með
frönskum makkarónu kökum ásamt jarðar
berjum og vínberjum. Þá má skreyta hvíta
tertu með blómum eða stjörnum gerðum úr
marsípani.
Hvítur súkkulaðiglassúr fyrir tertu
3 plötur matarlím
1 ½ dl mjólk
37 g glúkósi
375 g hvítt súkkulaði
Leggið matarlím í kalt vatn í fimm mínútur.
Hitið upp mjólkina og glúkósa þar til suðan
kemur upp. Takið af hita og setjið matarlímið
saman við. Hrærið þar til allt er leyst upp.
Hellið blöndunni yfir súkkulaðið og hrær
ið með töfrasprota þar til blandan er létt og
fín. Þegar glassúrinn þykknar er hægt að bera
hann á kökuna. Síðan er hún skreytt fallega.
TerTan skreyTT
TM
Innihald:
• 1 pakki Betty Crocker vanillukökumix
• 3 egg
• 180 ml vatn
• 90 ml olía
• 400 g Betty Crocker vanillukrem
• 50 g hvítt súkkulaði til að dýfa pinnunum í
• 200 g hvítt súkkulaði til að hjúpa kökupinnana
• Kökuskraut til að skreyta
Aðferð:
Eggjum, vatni og olíu er blandað saman við vanillukökumixið.
Hrært vel saman í 2–3 mínútur. Deigið er sett í ferkantað
bökunarmót 20×30 cm og bakað við 180°C í 22–27 mínútur.
Þegar kakan er orðin köld er hún tekin í sundur og mulin niður í skál.
Vanillukreminu er blandað saman við með gaffli. Blandan á að
vera þannig að hún festist ekki við hendurnar en heldur ekki of
þurr. Kúlur eru mótaðar, settar á smjörpappír og síðan í kæliskáp í
15–30 mínútur eða í frysti í 5 mínútur.
Kúlurnar eru teknar út, endunum á pinnunum er dýft í súkkulaði og
þeim stungið í miðjar kúlurnar. Kökupinnarnir eru kældir aftur í
5 mínútur. Súkkulaði er brætt yfir vatnsbaði og síðan notað til að
hjúpa kökupinnana. Kökupinnarnir eru svo skreyttir með
kökuskrautinu.
Í flestum fermingarveislum hefur
salurinn eða heimilið, hvort sem
við á, verið skreytt í tilefni dags
ins. Eins og margir hafa rekið sig á
er ekki ókeypis að halda fermingar
veislu þannig að til að spara aur
inn er gott að nota eitthvað sem
til er á heimilinu til að skreyta. Til
dæmis má fara í geymsluna og ná í
jólaseríurnar og hengja á veggi eða
leggja á borð og tína til alla kerta
stjaka á heimilinu, dreifa þeim á
borð og tendra kertin.
Einnig er sniðugt að nota eitt
hvað úr herbergi fermingarbarns
ins sem einkennir það til að skreyta
með, bæði til að setja svip á veisl
una og til að kynna söguhetjuna
fyrir gestum veislunnar sem hafa
mögulega ekki hitt barnið í tölu
verðan tíma. Til dæmis mætti nota
hljóðfæri, bolta eða ballettskó.
Skrautið
fundið heima
Í fermingarveislum er mikilvægt að
muna eftir minnstu munnunum sé
börnum á annað borð boðið í veisl
una. Sumir réttir á hefðbundnum
fermingarveisluborðum eru ekki
að skapi barna þannig að gott er að
gera ráð fyrir tveimur eða þremur
réttum sem þau gætu borðað.
Hér er uppskrift að slíkum
rétti, grillaðar samlokur með
chutney.
12 sneiðar hvítt brauð
340 g ostur, skorinn í þunnar
sneiðar
1 bolli ávaxta-chutney (til
dæmis fíkju eða mangó)
2 msk. ósaltað smjör
Útbúið sex samlokur með osti
og chutney. Bræðið smjör á stórri
pönnu á meðalhita og steikið sam
lokurnar upp úr því þar til brauðið
er orðið gullið og osturinn bráðn
aður, í um það bil tvær til þrjár
mínútur á hvorri hlið. Skerið sam
lokurnar svo í
ferninga og
berið fram.
Gómsætt
fyrir börnin
Kynningarblað FerminG
23. febrúar 2016 35