Morgunblaðið - 12.09.2019, Síða 58
Elínrós Líndal
elinros@mbl.is
Linda Baldvinsdóttir pistlahöf-
undur sérhæfir sig sem lífsráðgjafi
(e. life coach), hún er einnig mark-
þjálfi og samskiptaráðgjafi og hefur
starfað um árabil með fjölbreyttum
hópi fólks.
Hún lýsir samskiptaráðgjöf sem
ferðlagi þar sem einstaklingurinn
byrjar á því að vinna í samskiptum
við sjálfan sig og æfir sig svo í sam-
skiptum við aðra.
„Þegar kemur að samskiptum við
aðra þurfum við að byrja á því að
skoða heimsmynd okkar sjálfra. Ég
legg áherslu á að efla fólk og
styrkja það, þannig að það verði
færara í að standa með sjálfu sér,
geti sett sér og öðrum mörk og
sæki fram. En til þess að geta það
tel ég mikilvægt að vita hver maður
er. Að mæta sér þannig að maður
geti staðið uppréttur, fundið jafn-
vægi í lífinu og staðið með gildum
sínum,“ segir Linda.
Hún hefur áhuga á málefnum er
varða kulnum, bæði í einkalífi en
ekki síður í vinnu, og býður upp á
fyrirlestur ásamt gátlista um mál-
efnið fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Þegar sjálfsmyndin er í molum
„Hluti af nútímasamfélagi er allt
of mikill hraði, streita og áreiti. Það
er ýtt undir fullkomnunaráráttu
þar sem við verðum að gera
ákveðna hluti og eignast alla skap-
aða hluti, í stað þess að ýtt sé undir
að við veljum inn í líf okkar það
sem skiptir máli fyrir vellíðan okk-
ar í lífinu og að við sýnum okkur
sjálfum kærleika og virðingu sem
við getum síðan miðlað öðrum á
lífsveginum.“
Það sem sameinar þá er leita til
hennar vegna kulnunar er sjálfs-
mynd í molum, að hennar sögn.
Ástæðan telur Linda að sé hversu
erfitt er að uppfylla allar þær kröf-
ur sem til einstaklingsins séu
gerðar.
„Ég fæ einnig til mín fólk þar
sem verkefnið er sorg, atvinnu-
missir, skilnaðir, dauðsföll, veikindi
og fleira. Ég er á því að við séum
ennþá með umhverfi og aðstæður
sem skapaðar voru í kringum iðn-
byltinguna. Að við séum ennþá á
því hamsturshjóli.
Sem dæmi get ég nefnt konu sem
vinnur fullan vinnudag og reynir
síðan að vera fullkomin húsmóðir,
móðir, dóttir og eiginkona ásamt
því að standa sig einnig á fé-
lagslega sviðinu. Svona konur
brenna út því enginn einstaklingur
er fær um að sinna 100% framlagi á
öllum sviðum lífsins samtímis.“
Linda telur tól markþjálfunar
nýtast vel til að aðstoða fólk við að
taka ábyrgð á eigin hamingju og
framtíð. Hún hefur 12 ára reynslu
af því að starfa sem markþjálfi og
hefur unnið að því að auka vitund
almennings um gildi markþjálfunar.
„Ég hef mikla trú á markþjálfun
og sem dæmi er Markþjálfunardag-
urinn barnið mitt og hugarfóstur og
varð að veruleika með aðstoð frá-
bærra frumherja. Með þeirri vit-
undarvakningu sem hefur skapast í
kringum daginn hefur orðið aukin
meðvitund hjá almenningi og fús-
leiki til að leita sér aðstoðar þegar
verkefni lífsins dynja á. Hér á árum
áður mátti helst ekki tala um þessi
hluti. Verkefnum lífsins var haldið
frá og sópað undir teppi. Í dag er
meiri einlægni og fólk er opnara.
Að sjálfsögðu erum við misgóðir
leikarar og sumir virðast vera með
allt á hreinu og með allt í topp-
standi en ég tel að ekkert okkar sé
nú alveg með þetta.“
Það eru verkefni
í öllum húsum
Linda segir að þegar hún byrjaði
að starfa sem ráðgjafi hafi hún talið
að í tíunda hverju húsi í bænum
væru einhver verkefni að koma upp
á. Í dag er hún á annarri skoðun.
„Ég tel að öll hús geymi einhver
miserfið verkefni, í það minnsta
væri það mikil heppni ef eitthvert
hús slyppi.“
Þegar kemur að ástríðunni fyrir
að aðstoða fólk við verkefni lífsins
segir hún það mikið tilkomið vegna
þeirra verkefna sem hún hefur haft
og fengið í lífinu.
„Ég hef gengið í gegnum margt í
lífinu og man þegar ég hugsaði: Af
hverju er ég, þessi góða stelpa, að
fá svona mörg áföll og verkefni í líf-
inu? Þessi verkefni hafa þó kennt
mér svo margt gott og gefið mér
þrautseigju, að standa upp, aftur og
aftur, og vinna mig í gegnum það
sem lífið færir mér og vita að allt
samverkar okkur til góðs með ein-
hverjum hætti að lokum.“
Linda lýsir því hvernig hún starf-
ar á þann hátt að hún hittir fólk í
einkatíma þar sem línurnar eru
lagðar.
„Í þessum tíma fæ ég að kynnast
manneskjunni, hver hún er, hver
verkefni hennar eru og síðan ger-
um við áætlun um verkefnavinnu,
förum í sjálfsskoðun og finnum leið-
ina til að lifa í lausninni.“
Ættmóðir sem býr
við strendur Ítalíu
Linda er sjálf komin yfir miðjan
aldur, þótt hún sé frekar tímalaus
að sjá og ung í anda.
„Ég er 58 ára gömul og lýsi
sjálfri mér sem mikilli fjölskyldu-
konu. Ég er í nýju hlutverki núna.
Ég á þrjú börn sem öll eignuðust
barn á einu ári. Ég átti fimm
barnabörn fyrir þannig að fjöl-
skyldan er orðin skemmtilega stór.
Lífið snýst um fjölskylduna og
starfið mitt í dag. Ég held að ég
muni aldrei hætta að vinna; verð að
störfum eins lengi og ég get. Þegar
ég kemst á eftirlaunin langar mig
að skrifa bækur og búa í litlu húsi
niðri við strönd á Ítalíu eða Portú-
gal. Börnin mín og barnabörn gætu
svo komið í heimsókn á sumrin til
ættmóðurinnar.“
Um fyrirmyndir í lífinu horfir
Linda sér nær og nefnir ömmu sína
Sigurborgu.
„Amma heitin var ung að aldri
þegar hún var greind með park-
isonssjúkdóminn. Hún lét það hins
vegar ekki stoppa sig og gerði ým-
islegt sem hún hefði líklega ekki átt
að vera fær um. Hún var jákvæður
viskubrunnur og heimspekingur
sem hafði húmorinn í lagi og pass-
aði upp á að hafa félagslega þætti
lífsins í lagi. Hún var þrautseig og
mikil fyrirmynd.“
Konur sem hafa sigrað
karlaveldið heillandi
Eins heilla Lindu konur sem hafa
þurft að upplifa ýmislegt í lífinu.
„Konur á borð við Mayu An-
gelou, Oprah Winfrey og Ellen.
Konur sem hafa sigrað mýtur í
heiminum og tekið sér stöðu á eigin
forsendum. Konur sem hafa sigrað
karlaveldið og staðið með sér alla
leið.“
Um að breyta til í lífinu segir
Linda að sín upplifun sé sú að það
sé lítil fyrirstaða í veröldinni ef vilji
og þrautseigja séu fyrir hendi.
Fyrirstaðan sé meira innra með
okkur sjálfum.
„Við sjálf erum það sem þvælist
fyrir. Stígum ekki nóg fram og telj-
um okkur ekki eiga skilið það
besta, erum ekki nóg eða of mikið
af einhverju. Síðan þorum við ekki
að vera berskjölduð. Ef við erum
bara við eins og við erum, einstök
pg alltaf nægjanlega góð til að eiga
skilið það góða, þá erum við örugg í
okkur sjálfum og þá falla þessir
múrar um það hvað náunganum
finnst um okkur. Að leyfa sér að
standa og falla með sjálfum sér og
stíga inn í okkar lífsfarveg en ekki
annarra er vel þess virði og færir
okkur hamingjuna. Enda lífið allt of
stutt til að verja því í að hafa
áhyggjur af áliti annarra.“
Linda segist geta lært eitthvað
nýtt af öllum sem hún hittir.
„Það er mikil ungdómsdýrkun í
dag. Allur aldur hefur þó sinn
sjarma að mínu mati, ég tel þó að
unga fólkið og hinir eldri þurfi að
vinna saman svo að jafnvægi geti
orðið. Kjarkurinn, nýjungarnar og
viskan eða reynslan ættu semsagt
að mætast. Það hafa allir eitthvað
gagnlegt til málanna að leggja og
mikilvægt er að við sem höfum
reynsluna af lífinu séum til staðar
fyrir þá sem yngri eru í stað þess
að setja alla ábyrgð þjóðfélagsins
og upphafningu á þá.“
Þegar hjónabandið verður
dans á stilkum rósa
Linda segir hjónabandið áhuga-
verða stofnun. Hún þekki hvernig
það er að tilheyra slíkri einingu en
einnig þekkir hún að hafa sagt skil-
ið við hjónabandið og standa á eigin
fótum líkt og hún gerir nú sem
sjálfstæð þriggja barna móðir og
amma.
„Við lifum í svolítið einnota sam-
félagi og upplifum mörg hver verk-
efni inni í hjónabandinu sem okkur
finnst betra að sleppa við og fá
bara nýtt í staðinn og hugsum lítt
um það sem tekur við að skilnaði
loknum. Að sjálfsögðu er stundum
ástæða til að ganga frá hjónabandi
og enginn á að vera á stað sem
honum líður ekki vel á. Stundum
verður hjónabandið svolítið eins og
dans á stilkum rósa frekar en blöð-
um hennar og þá er um tvennt að
ræða; laga eða fara. Mér finnst
ótrúlega gaman að hjálpa fólki að
yfirvinna erfiðleika í hjónabandi, að
sjá það vaxa og dafna innan sam-
bands með þeim sem þeir ákveða
að elska, virða og annast.“
Linda segir að lífið sé þróun þar
sem maður er alltaf að vaxa að
visku og reynslu og stöðnun er ekki
inni í myndinni.
„Það sem er vinsælt og þykir
vera það besta núna er kannski
eitthvað allt annað en það sem var
vinsælt fyrir tíu árum. Við getum
eins gert ráð fyrir allt öðruvísi
heimsmynd þegar fram í tímann
verður litið; bæði hjá okkur sjálfum
og veröldinni allri.
Það er út frá þessari hugmynd
sem ég lifi og reyni að læra eitt-
hvað nýtt reglulega sem færir mig
nær því að skila mínu til samfélags-
ins í heild sinni.“
„Ekkert okkar er með þetta“
Linda Baldvinsdóttir,
pistlahöfundur á Smart-
landi, segir að það séu
verkefni í hverju húsi.
Ástæðan fyrir því að við
höldum að svo sé ekki
er sú að við erum mis-
góðir leikarar í lífinu.
Ljósmynd/Árni Sæberg
Kröfur Linda Bald-
vinsdóttir segir erfitt
að uppfylla allar þær
kröfur sem gerðar eru
til einstaklingsins í
samfélaginu.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2019
Z-brautir &
gluggatjöld
Opið mán.-fös. 10-18 Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | S. 525 8200 | www.z.is |
Mælum, sérsmíðum og setjum upp
Úrval - gæði - þjónusta
Falleg gluggatjöld
fyrir falleg heimili