Morgunblaðið - 12.09.2019, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 12.09.2019, Blaðsíða 38
38 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2019 Ráðgjafarnefnd Orkusjóðs hefur ákveðið að styrkveitingar Orkusjóðs á árinu 2019 verði til verkefna samkvæmt b) lið 7. gr. reglugerðar nr. 185/2016 um Orkusjóð en þar segir: „Styrkir til verkefna sem leiði til lægri kostnaðar við óniðurgreidda rafkyndingu húsnæðis og mannvirkja í eigu sveitarfélaga“. Til greina kemur meðal annars: Uppsetning varmadæla, uppsetning eða endurbætur hitastýringar- kerfa og önnur verkefni sem leiða til minni raforkunotkunar við hitun. Um er að ræða fjárfestingarstyrki, sem hæst geta numið 50% af áætluðum kostnaði við einstök verkefni, þó að hámarki 5 m.kr. Við mat á umsóknum verður sérstaklega litið til: • Að verk- og kostnaðaráætlun sé vönduð og ítarleg. • Að raunsætt mat sé lagt á áætlaðan raforkusparnað. • Hlutfalls orkusparnaðar miðað við kostnað. Umsóknarfrestur er til 20. október 2019 Skrifleg staðfesting á afgreiðslu umsókna mun berast umsækjendum eigi síðar en 20. nóvember 2019 Umsóknum skal skila rafrænt af vef Orkustofnunar www.os.is undir Orkusjóður Nánari upplýsingar á www.os.is og hjá Orkusjóði, Rangárvöllum við Hlíðarfjallsveg, 603 Akureyri. Símar 569 6083 – 894 4280 – Netfang jbj@os.is ORKUSJÓÐURORKUSTOFNUN ORKUSJÓÐUR Orkusjóður auglýsir sérstaka styrki 2019 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Áfrýjunarréttur í Skotlandi úrskurð- aði í gær að Boris Johnson, forsætis- ráðherra Bretlands, hefði brotið lög með því að ráðleggja Bretadrottn- ingu að senda þingið heim í fimm vik- ur á þriðjudaginn var. Stjórn John- sons hefur áfrýjað úrskurðinum til hæstaréttar Bretlands og gert er ráð fyrir því að hann taki málið fyrir á þriðjudaginn kemur. Johnson segir að þingslitin séu löglegt, alvanalegt og nauðsynlegt úrræði sem geri nýrri ríkisstjórn Íhaldsflokksins kleift að leggja fram stefnu sína og koma nýjum frum- vörpum á dagskrá þingsins. And- stæðingar brexit-stefnu forsætisráð- herrans segja hins vegar að mark- miðið með ákvörðuninni sé að sniðganga andstöðu þingsins við út- göngu úr ESB án nýs brexit-samn- ings. Ólíkt þinghléum og þingrofi Venja er að breska þingið sé sent heim í skamman tíma, yfirleitt í apríl eða maí. Þingmenn halda þá sætum sínum og stjórnin situr áfram en eng- in umræða og engar atkvæða- greiðslur fara fram á þinginu. Flest lagafrumvörp sem ekki hafa verið af- greidd deyja þá drottni sínum, ef svo má að orði komast. Þingið er þó ekki rofið eins og gert er þegar boðað er til kosninga og þetta úrræði er einnig ólíkt þinghléum sem þingmenn greiða atkvæði um. Um 70 þingmenn í neðri deildinni og aðalsmenn í lávarðadeildinni ósk- uðu eftir því að dómstóll í Skotlandi úrskurðaði að það væri ólöglegt að senda þingið heim til að knýja fram brexit án samnings. Skoskur dómari úrskurðaði í vikunni sem leið að ákvörðun Johnsons væri lögum sam- kvæm og það væri hlutverk þing- manna og kjósenda að dæma ákvarð- anir forsætisráðherrans, en ekki hlutverk dómstólanna. Yfirréttur á Englandi úrskurðaði einnig í vikunni sem leið vegna annarrar lögsóknar að ákvarðanir um þingslit væru „pólitískt mál“ sem dómstólar ættu ekki að hafa afskipti af. Þingið kallað saman? Skoskur áfrýjunarréttur komst hins vegar að annarri niðurstöðu. Þrír dómarar réttarins úrskurðuðu að ákvörðun forsætisráðherrans væri ólögleg vegna þess að markmið- ið með henni væri að standa í vegi fyrir þinginu. Forsætisráðherrann hefði því villt um fyrir Elísabetu 2. Bretadrottningu með því að ráð- leggja henni að senda þingið heim í fimm vikur. Gert hefur verið ráð fyrir því að þingið komi aftur saman 14. október og Bretadrottning flytji þá stefnu- ræðu stjórnarinnar, sautján dögum áður en Bretland á að ganga úr Evr- ópusambandinu verði útgöngunni ekki frestað. Leiðtogar Verka- mannaflokksins, Frjálslyndra demó- krata og Skoska þjóðarflokksins kröfðust þess að þingið yrði kallað saman án tafar eftir úrskurð áfrýj- unarréttarins. Talsmaður Johns Ber- cows, forseta neðri deildarinnar, sagði að það væri hlutverk forsætis- ráðherrans að kalla þingið saman eft- ir þingslit. Embættismenn í forsætis- ráðuneytinu sögðu að þingið hæfi ekki störf að nýju áður en niðurstaða hæstaréttar Bretlands lægi fyrir. Breskir fjölmiðlar höfðu eftir ónafngreindum aðstoðarmanni for- sætisráðherrans að þeir sem höfðuðu málið gegn þingslitunum hefðu valið skoska dómstólinn vegna þess að dómarar hans væru „pólitískt hlut- drægir“. Talsmaður Johnsons sagði hins vegar að forsætisráðherrann drægi ekki hlutleysi skoskra dómara í efa og bæri „fulla virðingu“ fyrir sjálfstæði dómstólanna. Norman Smith, stjórnmálaskýr- andi breska ríkisútvarpsins, sagði að úrskurður skoska áfrýjunarréttarins væri mikið áfall fyrir forsætisráð- herrann. „Stóra spurningin er hvort hann þurfi nú að kalla þingið saman aftur. Ég tel frekar líklegt að hann þurfi að gera það, hugsanlega jafnvel áður en hæstiréttur úrskurðar í mál- inu á þriðjudaginn kemur. Ef til vill í dag eða á morgun.“ Skosk lög ólík lögum Englands Enski lögfræðingurinn og álits- gjafinn David Allen Green telur lík- legt að hæstiréttur Bretlands hnekki úrskurði skoska áfrýjunarréttarins og segir að skosk lög séu ólík lögum Englands og Wales. „Þess vegna tel ég og fleiri að engar líkur séu á því að lögsóknin takist fyrir hæstaréttinum í London. Og það er þess vegna sem málið var höfðað í Skotlandi, þar sem dómararnir og lögin eru miklu hag- stæðari fyrir lögsóknina en á Eng- landi,“ hefur fréttavefurinn AFP eft- ir Green. The Telegraph hafði eftir Jonath- an Sumption lávarði, fyrrverandi dómara í hæstarétti Bretlands, að hann teldi að ákvörðunin um þingslit væri „pólitískt málefni, ekki mál dómstóla“, og aðeins væri hægt að „leiða það til lykta á vettvangi stjórn- málanna“. Telur að Johnson hafi brotið lög  Skoskur áfrýjunarréttur úrskurðar að forsætisráðherrann hafi villt um fyrir drottningunni með því að leggja til að þingið yrði sent heim  Stjórn Johnsons áfrýjar úrskurðinum til hæstaréttar Bretlands AFP Brexit mótmælt Andstæðingar útgöngu Bretlands úr ESB mótmæla fram- göngu Boris Johnsons í brexit-deilunni nálægt aðsetri forsætisráðherrans. Forsætisráðherrann beið ósigur í sex atkvæðagreiðslum á þinginu á einni viku Ósigrar Boris Johnsons á þingi Bretlands Brexit verði frestað Kosningar Kosningar Birting trúnaðarskjala 4. sept. 6. sept.3. sept. 9. sept. 10. sept. Neðri deildin samþykkti frumvarp um að Johnson bæri að óska eftir frestun á útgöngunni úr ESB næðist ekki nýtt samkomulag um hana Tillaga Johnsons um að efnt yrði til þingkosninga 15. október fékk ekki tilskilinn fjölda atkvæða Þingið hafnaði aftur tillögu forsætisráðherrans um að flýta kosningum Neðri deildin samþykkti ályktun um að stjórninni bæri að birta trúnaðar- skjöl um afleiðingar útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu. MEÐ MEÐ 327 298 56 46 MEÐ 311 299Á MÓTI 302Á MÓTI MEÐ 293 Á MÓTI 10. sept. – 14. okt. 31. október Þingið sent heim Bretland gengur úr ESB verði útgöngunni ekki frestað Deildin samþykkti frumvarpið sem varð að lögum eftir að Bretadrottning staðfesti það. Hópur þingmanna, sem eru á móti brexit, lagði tillöguna fram. Venjulega er dagskrárvaldið í höndum ríkisstjórnarinnar. Frumvarp um frestun á brexit í lávarðadeild þingsins MEÐ 328 Á MÓTI 301 Tillaga um að þingið tæki sér dagskrárvald 434 atkvæði þurfti Slökkviliðsmaður reynir að slökkva eld í skógi á eyjunni Súmötru í Indónesíu þar sem miklir skógar- eldar hafa geisað og valdið loft- mengun í grannríkjunum. Stjórn- völd í Malasíu hafa lagt fast að Indónesíustjórn að koma í veg fyrir skógareldana sem hafa í mörgum tilvikum verið kveiktir til að ryðja land til ræktunar. Grannríki Indónesíu kvarta yfir skógareldum AFP Valda mikilli loftmengun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.